Borg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 15:31 eftir Simmi (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 15:31 eftir Simmi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Húsið Borg stóð við Heimagötu 3a og var reist sumarið 1904 til að hýsa Barnaskólann í Vestmannaeyjum. Yfirsmiður við byggingu hússins var Ágúst Árnason og aðrir smiðir sem komu að byggingu hússins voru Magnús Ísleifsson í London og Sigurður í Merkisteini. Einnig var þarna, þinghús Vestmannaeyja, réttarsalur og fangelsi, sem var viðbygging austast á húsinu.

Áður á lóðinni stóð torfhús sem reist var á tíð Andreas August von Kohl sýslumanns og hafði verið þinghús Eyjanna síðan 1857.

Borg var timburhús á tveimur hæðum, með hlöðnum kjallara og kom sérstakt timburskip með viðinn og músteina. Var það mjög vel byggt í og var annað stærsta húsið á sínum tíma, aðeins Austurbúðin var stærri.

Fyrsta kvikmyndin, sem var sýnd 3. mars, hét Zirli. Kunnu Vestmannaeyingar vel að meta þessa nýjung

Barnaskóli Vestmannaeyja

Gamla bíó

Árið 1917 keyptu Sigurjón Högnason frá Baldurshaga og Arnbjörn Ólafsson á Reyni Borg á 13 þúsund krónur og komu á fót kvikmyndarekstur í húsinu. Á vesturhluta hússins stóð „Biograph Theatre — Moving Pictures“.

Rýmið á neðri hæð hússins var stækkað þannig að þetta var einn stór salur með tjaldið á vestur-vegg salsins. Salurinn tók 118 manns í betri sæti og 72 í almenn sæti, en fremst voru þrír bekkir með barnasætum. Norðan megin við tjaldið var klefi þar sem spilað var á píanó í tíð þögla kvikmynda. Gengið var inn í húsið að austan og var þar miðasala og sýningarklefi. Salurinn var fallega skreyttur af Engilberti Gíslasyni listmálara. Sunnan megin við tjaldið var málverk af grísku goði og fyrir ofan glugga voru grískar leikgrímur.

Arnbjörn var sýningarstjóri, Sigurjón sá um litla rafstöð, sem var gamla fangaklefanum. Kvikmyndahúsið þurfti að hafa sér rafstöð vegna þess að Rafveita Vestmannaeyja gat ekki haft svo stóran notanda.

Kvikmyndahúsið var að Borg til ársins 1930, er Nýja bíó varð að kvikmndahúsi.

Einnig stóð hús á Stakkagerðistúni sem bar nafnið en var flutt árið 1894.