Bogi Leifs Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Bogi Leifs Sigurðsson.

Bogi Leifs Sigurðsson bifreiðastjóri fæddist 6. júlí 1927 í Melgerði í Glæsibæjarhreppi, Ey. og lést 15. febrúar 2008 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Sigurður Gísli Vigfússon verkamaður á Akureyri, f. 30. apríl 1890, d. 31. maí 1971, og kona hans Katrín Björnsdóttir húsfreyja, f. 2. júní 1889, d. 19. mars 1973.

Bogi Leifs var bifreiðastjóri.
Þau Anna giftu sig 1965, eignuðust þrjú börn og fósturbarn. Þau bjuggu á Kanastöðum við Hásteinsveg 22 1972, síðar í Hveragerði og Þorlákshöfn, en síðast á Barðastöðum 11 í Reykjavík.
Bogi lést 2008.

I. Kona Boga Leifs, (6. febrúar 1965), er Anna Friðbjörg Jensdóttir Joensen kennari, húsfreyja, f. 6. september 1940.
Börn þeirra:
1. Jens Jóhann Bogason, f. 1. október 1965 í Eyjum. Kona hans Viktoría Gísladóttir Jónassonar.
2. Sigurður Karsten Bogason, f. 31. október 1972 í Eyjum. Kona hans Guðný Elva Ólafsdóttir.
3. Friðmar Leifs Bogason, f. 20. mars 1977 í Eyjum. Kona hans Ingibjörg Ingibergsdóttir.
Fósturbarn þeirra:
4. Þór Jóhannesson, f. 15. desember 1983. Kona hans Fanney Friðriksdóttir .


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Anna.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Morgunblaðið 16. mars 2008. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.