Blik 1980/Hafsteinn Stefánsson (kvæði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2007 kl. 14:58 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2007 kl. 14:58 eftir Dadi (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hafsteinn Stefánsson, skipaeftirlitsmaður í Eyjum, var kunnur hagyrðingur í kaupstaðnum. Hann kvað við stýrið í meðbyr:

Beggja skauta sigling ævin er,
í áttina til grafarinnar þokast.
Djúpa ristu í hafið skútan sker,
en skurðurinn í kjölfarinu lokast.

Hafsteinn sat þingmálafund. Þá kvað hann:

Sýnist mér það sannleiksdropi tær
að sjáist ekki gróm á hegðun vorri,
ef mann bara hafa tungur tvær
og tala eftir þörfum sitt með hvorri.