Blik 1980/Ágrip af sögu landbúnaðar í Vestmannaeyjum, III. hluti

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2007 kl. 11:56 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2007 kl. 11:56 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kartöflusýki veldur miklum skaða.

Sumrin 1915 og 1916 varð vart við töluverða kartöflusýki í görðum í Vestmannaeyjum. Þó olli hún þá ekki tilfinnanlegu tjóni. - En sumarið 1917 keyrði alveg um þverbak í þessum efnum. Þá brást kartöfluuppskeran tilfinnanlega af þessum sökum, svo að til vandræða horfði. Þá nam kartöfluuppskera Eyjafólks ekki nema hluta af þeirri uppskeru, sem það hafði fengið á undanförnum árum.(Sjá skrá yfir kartöfluuppskeru Eyjamanna á bls. 86)

- Þá hafði heimsstyrjöldin geisað undanfarin þrjú ár og þrengt mjög kjör manna, valdið miklum erfiðleikum á marga lund. Skortur á nauðsynlegum heimilisþurftum gjörði þá árlega mjög vart við sig, svo að vanlíðan margra hlauzt af.

Kartöflusýkin í Eyjum rýrði mjög afkomu margra heimilisfeðra þar og olli miklum áhyggjum þeim mönnum, sem báru hag byggðarlagsins fyrir brjósti. Björn H. Jónsson, skólastjóri barnaskóla Eyjabúa, skrifaði um kartöflusýkina í blaðið Skeggja haustið 1917. Þar gerði hann fólki grein fyrir sveppi þeim, sem ylli kartöflusýkinni. Hann sá helzt engin ráð önnur gegn henni en að leggja alla kartöflurækt á Heimaey til hliðar að þessu sinni og sá rófnafræi í garðana.

Skólastjóri hvetur Eyjamenn til þess að ræða þessi vandræði sín á almennum fundi og leita ráða, og taka svo fasta ákvörðun. Hann endar grein sína með þessum orðum: „Því næst verða að koma framkvæmdir svo frekar, að þessi óþokkagestur (kartöflusýkissveppurinn) verði gerður landrækur og eignist hér ekki friðland framar. en til þess þarf öflug samtök og félagsskap. Væri það vel til fallið, að sá félagsskapur næði yfir fleira viðvíkjandi jarðræktinni hér.“

Enn var sem sé hvatt til félagsskapar í byggðarlaginu um jarðræktar- og garðræktarmálin. Og enn fengu þær tillögur enga áheyrn hjá almenningi í Eyjum.

Bjargráðanefnd, sem svo var kölluð, var þá starfandi í Eyjum á vegum hins opinbera eins og víða í hreppsfélögum landsins sökum hinna miklu erfiðleika af völdum heimsstyrjaldarinnar 1914-1918. - Eftir nokkrar vangaveltur var það ráð tekið til bjargar kartöflurækt Eyjafólks að festa kaup á 300 tunnum af útsæðiskartöflum frá Danmörku handa Eyjamönnum, og njóta síðan umsjónar og fræðslu Einars Helgasonar, garðyrkjufræðings og ráðunauts í Reykajvík um notkun þessa útsæðis og hirðingu og eftirlit í kartöflugörðum Eyjamanna. Þessi ráð tókust mætavel, og fengu Eyjamenn um 2/3 þeirrar uppskeru haustið 1918, sem þeir höfðu fengið að jafnaði á undanförnum árum, áður en „kartöflu- plágan mikla“ dundi yfir.

Mörgu var ábótavant. Engin samtök. Hver baukar sér. Allt eftirlit skortir.

Árið 1920 fluttist Páll V. G. Kolka læknir til Vestmannaeyja og settist þar að. Hann varð þar kunnur sjúkrahússlæknir. Læknir þessi ól með sér brennandi áhuga á velferðarmálum fólksins, svo sem atvinnumálum, fræðslu- og heilbrigðismálum. - Eftir að læknirinn settist að i Eyjum, tók hann brátt að skrifa um ýmis velferðarmál Eyjamanna. M.a. skrifaði hann um mjólkurmálin þar, mjólkurskortinn í bænum og þörf á miklu meiri ræktunarframkvæmdum á Heimaey en þá áttu sér stað.

Þegar hann hafði búið í Eyjum í fjögur ár, gerðist hann einn af stofnendum Búnaðarfélags Vestmannaeyja. Það var sem sé árið 1924.

Eftir 12 ára dvöl í kaupstaðnum skrifaði læknirinn grein um mjólkurmálin í byggðarlaginu á Heimaey. Sú grein vakti mikla athygli. Lækninum fannst lítið hafa munað fram á við í þeim efnum á undanförnum árum, þó að Búnaðarfélagið væri þá búið að starfa í 8 ár. - Þó viðurkenndi læknirinn í skrifum sínum, að ýmislegt hefði miðað vel fram á við í ræktunarframkvæmdum og störfum búnaðarfélagsstjórnarinnar síðan Búnaðarfélagið var stofnað. En margt sat þar líka enn við sama gamla heygarðshornið, t.d. dreifing mjólkurinnar til kaupendanna, heilbrigðiseftirlit, meðferð mjólkurinnar, hreinlætiseftirlit o.m.fl. Ekkert af þessu átti sér stað eða var framkvæmt í byggðarlaginu.

Ekki er ófróðlegt að lesa þessi skrif læknisins og íhuga þau. Þau eru líka sálfræðilegs efnis.

Hann segir þar: „Menn eru margir þannig gerðir hér, að ef þeir eiga eina belju og áttunda part í bát, þótt hann sé allur í skuld, þá þykjast þeir vera kapitalistar og sjálfum sér nógir og finnst það hinn mesti óþarfi að hafa samtök við þá, sem líkt er ástatt fyrir. Þess vegna byggir hver sér fjós og hlöðu fyrir sína eigin belju, og er þessum stórhýsum dreift um allan bæ til skrauts og prýði. Á sumrin rekur hver og einn sér sína einu belju suður fyrir Fell eða inn í Dal og sækir hana aftur að kvöldi.

Bændurnir fyrir ofan hraun rorra hver með sína mjólk daglega niður í bæinn og flytja hana heim í húsin til kaupendanna. Niðurstaðan af þessu samtakaleysi er sú, að það fer heilt dagsverk í það að þjóna einni eða tveimur beljum, nema á stærri búunum. Með þessu verður mjólkurframleiðslan óeðlilega dýr og lendir það bæði á kaupanda og seljanda. Mjólkurframleiðendur hér fá hærra verð fyrir mjólk sína en nokkurir aðrir bændur á landinu, en eru samt engu betur staddir, því að kostnaðurinn á hverja kú er hærri hér en nokkurs staðar annars staðar.

Þrátt fyrir hátt mjólkurverð, hafa kaupendur enga tryggingu fyrir því að fá góða og ósvikna vöru fyrir peninga sína aðra en þá, sem felst í persónulegu trausti á seljandanum. Hér er ekkert eftirlit með sölu mjólkur eða annarra matvæla, því að heilbrigðisnefnd, sem þetta heyrir undir, virðist skoða sig sjálfa frekar til stáss en til starfs, og er þó vissulega til hennar vandað, þar sem tveir helztu embættismennirnir í bænum eiga sæti í henni. Auk þess hefur bærinn fastráðinn heilbrigðisfulltrúa, sem aðallega á að líta eftir því, að ákvæðum heilbrigðisreglugerðarinnar sé fylgt, en hann kvartar jafnaðarlega undan því, að hann fái enga áheyrn hjá nefndinni með kærur sínar.

Þar sem seld er mjólk úr 200-300kúm án þess að nokkurt opinbert eftirlit sé haft með kúnum, fjósunum eða meðferð mjólkurinnar, þá gefur það að skilja, að almenningur á það á hættu, að mjólkin geti verið úr berklaveikum kúm eða smituð af berklum á heimili mjólkurframleiðendanna, ennfremur að hún geti verið svikin, óhrein eða á annan hátt ekki sæmileg vara. Ég segi þetta ekki til þess að vekja tortryggni á neinum þeim, sem hér eiga hlut að máli, því að skoðun mín er sú, að á þessu beri miklu minna en við mætti búast, heldur til að benda á þá hættu, sem ekkert er gert til að afstýra.

Hin mðrgu smáfjós með tilheyrandi haugum um allan bæ, eru mesta óhæfa. Að réttu lagi væri mátulegt að hafa hér aðeins tvö fjós fyrir 150-200 kýr hvort, annað austur á Kirkjubæ en hitt fyrir ofan Hraun, og 2-3 mjólkurútsölustaði niðri í bænum. Þetta fyrirkomulag væri, þegar til lengdar léti, ódýrara en hið núverandi og gæfi auk þess fullkomna tryggingu fyrir góðri og heilnæmri mjólk. Með því móti væri einnig hægt að koma við nauðsynlegum kynbótum á kúnum, en hvergi er jafnmikill munur á gagnsemi skepna sömu tegundar eins og góðrar kýr og ónýtrar.

Ég geri nú ekki ráð fyrir, að svo róttæk breyting sem þessi, komist á í bráðina. En núverandi ástand er óþolandi og verður að breytast í rétta átt. Hið fyrsta, sem þarf að gera, er að innleiða berklarannsóknir á kúnum, heilbrigðiseftirlit með fjósunum og meðferð mjólkurinnar og koma upp 2-3 útsölustöðum, sem öll sú mjólk, sem seld er í bænum, fari í gegnum. Yrði þar hægt að hafa eftirlit með, að mjólkin væri hrein og ósvikin....... Annars er mjólkurframleiðslan alls ekki of mikil, því að hér þyrfti að réttu lagi 400 kýr, ef mjólk, hin ágæta og holla fæða, væri notuð eins og vert er í staðinn fyrir kaffisullið, sem allt of mikið er drukkið af.“

Þetta var þá „mjólkurhugvekja“ Kolka læknis 1932. Efni hennar er rétt og sannsögulegt og sannar okkur, hversu mörgu var ábótavant hjá Eyjamönnum á þessum árum og gamlir hættir steinrunnir.

Skrif Kolka læknis höfðu þá sín áhrif og vöktu menn til íhugunar. Um árabil hafði óskiljanlegur kúadauði átt sér stað í Eyjum. Kýr lágu dauðar á bás sínum, þegar í fjós var komið að morgni. Hvað olli? Það vissi enginn enn. Engin rannsókn hafði farið fram á þessu fyrirbrigði. Eftir þessi skrif læknisins skaut þeirri hugmynd upp, að nauðsynlegt væri að ráða dýralækni til starfa í Eyjum til lengri eða skemmri tíma. Gæti hann þá rannsakað hinn óeðlilega mikla kúadauða, rannsakað mjólkurgæði og beitt áhrifum sínum til aukins hreinlætis í fjósum Eyjamanna.

Stofnað Búnaðarfélag Vestmannaeyja

Og enn liðu fimm ár án sérlegra breytinga á ræktunarmálum Eyjamanna. Hver og einn baukaði við sín ræktunarstörf á graslendi og í görðum með gömlu, þjóðlegu tækjunum, erfiðu og seinvirku, án þess að gefa nokkurn kost á þátttöku í einhverjum samtökum til að bæta vinnubrögðin og auka framleiðsluna, hvort sem það var mjólk eða garðávextir.

Árið 1923 samþykkti alþingi hin merku Jarðræktarlög, sem mörkuðu strax mikilvæg og markverð spor fram á við í öllum ræktunarframkvæmdum þjóðarinnar í heild og þá líka í Vestmannaeyjum.

Með Jarðræktarlögunum var afráðið, að atvinnumálaráðneytið hefði á hendi æðstu stjórn allra ræktunarmála í landinu. Búnaðarfélag Íslands skyldi svo vera ráðuneytinu hin hægri hðndin um þessi mál öll. Samkvæmt lögum þessum skyldi veita styrk til ræktunarframkvæmda, og hafði Búnaðarfélag Íslands umsjón með þeim. Ráðunautar þess og trúnaðarmenn skyldu meta, mæla og dæma þær ræktunarframkvæmdir, sem njóta skyldu styrks úr ríkissjóði.

Þá er tekið fram í Jarðræktarlögunum, að bæjarstjórnir í kaupstöðum landsins og hreppsnefndir í kauptúnum beri að senda Búnaðarfélagi Íslands skýrslur eða greinargerðir um land það, sem að áliti þeirra liggi bezt við til ræktunar innan takmarka kaupstaðarins eða kauptúnsins, nema byggingarframkvæmdir séu fyrirsjáanlegar á landinu. - Þegar kirkjujörð eða þjóðjörð lá að landi kauptúns eða kaupstaðar, náðu þessi ákvæði einnig til hennar.

Þessi síðustu ákvæði jarðræktarlaganna, sem ég nú nefndi, voru Vestmannaeyingum verulega hagkvæm, þar sem ríkið átti allar Eyjarnar og þá auðvitað allt hið ræktanlega land á Heimaey, þó að það væri þá allt leigt bændum þar til lífstíðar samkvæmt fornu fari. Í þessum efnum hlaut því ríkisvaldið að láta til sín taka, þegar á reyndi, og liðka mál þetta fram til sigurs, þurrabúðarfólkinu í vil. Ella yrði ekki um neinar teljandi ræktunarframkvæmdir að ræða í Vestmannaeyjum.

Þá er rétt að geta þeirra ákvæða í Jarðræktarlögunum, að hver sá, sem njóta vill styrks af opinberu fé til jarðræktarframkvæmda eða mannvirkjagerðar á þessu sviði, skal vera félagsmaður í búnaðarfélagi hrepps eða bæjar. Þá er það einnig tekið fram í lögum þessum, að hreppabúnaðarfélögin njóti styrks úr opinberum sjóðum til verkfærakaupa, enda heitir sá sjóður Verkfærakaupasjóður. Þegar svo var komið þessum málum, gaf það auga leið, að Vestmannaeyingar urðu að stofna búnaðarfélag í kaupstaðnum til þess að hrinda í framkvæmd margskyns framfaramálum í landbúnaði Eyjamanna og njóta til þess styrks af opinberu fé.

Búnaðarfélag Vestmannaeyja var stofnað 24. maí 1924. Þessi félagsskapur markaði síðan veigamikil spor fram á við í ræktunarmálum Vestmannaeyjabyggðar, svo að fá samtök hafa skilað þar drýgri arði til heilla öllum almenningi í bænum en þessi búnaðarsamtök.

Aðeins 14 menn stóðu að stofnun Búnaðarfélags Vestmannaeyja árið 1924. Þar af voru 2 bændur. - Þessir voru stofnendur félagsins: Páll Bjarnason, fyrrv. ritstjóri Skeggja, þá orðinn skólastjóri barnaskóla bæjarins; Páll V.G. Kolka, læknir; sr. Sigurjón P. Árnason, sóknarprestur að Ofanleiti; Guðmundur Sigurðsson, verkstjóri, Heiðardal; Sigurður Sigurðsson skáld frá Arnarholti, lyfsali; Erlendur Árnason, smiður, Gilsbakka; Jón Guðmundsson, bóndi, Suðurgarði; Bjarni Jónsson, gjaldkeri, Svalbarða; Guðjón Jónsson, skipstjóri, Heiði; Steinn Sigurðsson, klæðskeri, Ingólfshvoli; Þorbjörn Guðjónsson, bóndi, Kirkjubæ; Símon Egilsson, útgerðarmaður, Miðey; Einar Símonarson, útgerðarmaður, London; Jón Gíslason, útgerðarmaður að Ármótum við Skólaveg.

Strax völdust þarna mætir menn og dugnaðarforkar til forustu og létu strax mikið að sér kveða í erfiðri aðstöðu á ýmsa lund. Fyrsti formaður Búnaðarfélags Vestmannaeyja var Guðmundur verkstjóri í Heiðardal. Ritari fyrstu búnaðarfélagsstjórnarinnar var Páll Bjarnason, skólastjóri. Gjaldkeri stjórnarinnar og samtakanna var Þorbjörn Guðjónsson, bóndi, og meðstjórnendurnir: Séra Sigurjón Þ. Árnason, sóknarprestur, og Jón Gíslason, útgerðarmaður. Þannig skiptu stjórnarmennirnir með sér verkum samkvæmt fimmtu grein félagslaganna.

Lög Búnaðarfélags Vestmannaeyja, eins og þau voru samþykkt á 2. stofnfundi þess 11. nóvember 1924:

  1. gr. Félagið heitir Búnaðarfélag Vestmannaeyja.
  2. gr. Tilgangur félagsins er að efla jarðrækt og aðrar framfarir í landbúnaði í Vestmannaeyjum með samtökum og aukinni þekkingu í þeim efnum.
  3. gr. Félagsmaður getur hver sá orðið, karl eða kona, sem vill sinna viðfangsefnum félagsins. Árstillag fyrir hvern félagsmann er kr. 10,00 - tíu krónur, - og greiðist fyrir 1. júní ár hvert. Reikningar félagsins skulu gerðir upp fyrir hver áramót.
  4. gr. Félagið heldur aðalfund í janúarmánuði ár hvert. Þá skulu lagðir fram endurskoðaðir reikningar fyrir umliðið ár til samþykktar. Þá er og kosin stjórn félagsins og tveir endurskoðendur. Aðalfundur er lögmætur, ef 2/3 félagsmanna mæta. Einfaldur meiri hlutiatkvæða ræður úrslitum, nema við lagabreytingar. Þá þarf 3/5 atkvæða. Aukafund skal halda svo oft, sem stjórn félagsins telur nauðsynlegt.
  5. gr. Í stjórn félagsins skal kosin fimm manna nefnd á hverjum aðalfundi. Nefndin skiptir sjálf stðrfum með sér og kýs úr sínum hópi formann, ritara og gjaldkera, en tveir eru meðstjórnendur.
  6. gr. Sjóði félagsins skal aðeins varið til að standast nauðsynlegan kostnað við rekstur félagsins og styrkja tilraunir, ef ástæður þykja til, svo og að afla félaginu nauðsynlegra upplýsinga í starfi þess. Sjóði félagsins má aldrei verja til neinnar kaupsýslu.
  7. gr. Lögum þessum má ekki breyta nema á aðalfundi og þarf til þess 3/5 atkvæða þeirra, sem á fundi eru.

Rammeflda hnúta þurfti að leysa.

Þá er rétt að geta þess, að búnaðarfélagsstjórnin naut fyllsta stuðnings bæjarfógetans í kaupstaðnum, Kristjáns Linnets, en það var stjórninni mikill fengur sökum þess, að nú þurfti að sækja á um það, að fá mikið ræktunarland á Heimaey leyst úr leiguböndum bænda, sem töldu sig hafa þar óskoraðan rétt á öllu landi samkvæmt byggingarbréfunum. Hér þurfti að leysa bönd, sem umboðsmaður ríkisins, bæjarfógetinn, gat orkað á, svo að leystust giftusamlega.

Stjórn hins nýstofnaða Búnaðarfélags Vestmannaeyja leitaði fljótlega samvinnu við Búnaðarfélag Íslands um öll réttindi til handa félögum sínum, sem æsktu þess að fá land til ræktunar en gátu að svo komnu máli ekki fengið það.

Sumarið 1924 sendi Búnaðarfélag Íslands til Eyja einn af ráðunautum sínum, Methúsalem Stefánsson, til þess að kynna sér ræktunaraðstöðu alla þar, og hvernig leysa mætti hnútana á hagkvæmastan hátt. Nokkrum vikum eftir dvöl sína í Eyjum skrifaði hann Búnaðarfélagi Íslands og Búnaðarfélagi Vestmannaeyja bréf, þar sem hann gerir grein fyrir ferð sinni til Eyja og viðhorfum sínum til ræktunarmála þar. Margan fróðleik hafði þetta bréf að færa ráðandi mönnum um málefni þessi, svo að ég leyfi mér að birta hér töluverðan hluta þess, þar sem mér hefur orðið lán það léð að eignast það.

Búnaðarfélag Íslands,
Lækjargötu 14, Reykjavík.
Gróðrarstöðin í Reykjavík.
Reykjavík, 8. sept. 1924.

Um miðjan júlí s.l. kom ég til Vestmannaeyja eftir beiðni þaðan til þess að auka mætti þar túnræktina og skapa þannig skilyrði fyrir auknu kúahaldi og mjólkurframleiðslu, sem nú skortir mikið á, að sé fullnægjandi. Meðan ég stóð við í Eyjum, fór ég um túnin og kring um Helgafell með hr. skólastjóra Páli Bjarnasyni.

Túnin bera með sér, að túnræktarskilyrði eru góð í Eyjunum, enda er aðstaða að því leyti betri þar en víða annars staðar, að því nær óþrjótandi sjávarfang berst þar á land árlega með aflanum, og reynslan þar og annars staðar hefur sýnt, að það kemur að ágætu gagni við grasræktina. Eflaust á þessi áburður sinn þátt í því að tún eru betri í Vestmannaeyjum, en annars staðar á landinu, og það svo að um munar, ef treysta má Hagskýrslunum. Eftir þeim hefur meðal töðufengur yfir allt landið ekki náð 30 hestburðum (á 80 kg) af hektara að meðaltali árin 1920-1922, en í Vestmannaeyjum hefur hann þessi 3 árin verið að meðaltali 71 hestburður af ha. Þetta skyldi vel athugað, áður en menn hætta að nota fiskifangið til áburðar sakir flutningskostnaðar, enda þótt túnin færðust út og fjær með aukinni ræktun.

Kringum Helgafell er enn mikið land óræktað, og býst ég við, að allmikið af því sé ekki öllu ver fallið til ræktunar, en sumt af því, sem þegar er ræktað.

Með tímanum og helzt sem allra fyrst á að taka allt þetta land til ræktunar, slægna og beitar og byggja á þeirri reynslu, sem fengin er um túnrækt í Eyjunum.

Þetta er að vísu beitiland, og þeir, sem beitarréttinn hafa, vilja vitanlega ógjarnan gefa hann eftir. En það hlýtur að liggja öllum í augum uppi, að með því að rækta landið, þá gefur það meira af sér en nú gerir það. Og möguleikar opnast til þess að hafa fleiri kýr og meiri mjólkurframleiðslu. Allir þeir, sem í Eyjunum búa, munu finna þörfina á þessu. Enda er það svo, ef miðað er við mannfjölda árið 1920 en nautgripahald 1922, þá er yfir land allt sem næst 5,3 menn um hverja mjólkurkú (kýr og kelfdar kvígur), en í Vestmannaeyjum eru um 17 manns um hverja mjólkurkú, - meira en 4 á hverjum spena. - Þótt gert sé ráð fyrir, að allur nautpeningur í Eyjunum sé mjólkandi. En væri það ekki nema 2/3 nautgripanna þar, eins og nærri lætur fyrir landið allt, þá verða rösklega 6 menn á hverjum spena, og auk þess allt vertíðarfólkið.

Ég býst við, að engum blandist hugur um, að meira beri að rækta til slægna; beitilandsrækt eru menn svo óvanir hér á landi, að mörgum mun finnast fjarstæða að tala um hana. En hér finnst mér allt mæla með henni: Lítið landrými, tilfinnanlegur mjólkurskortur, góð ræktunarskilyrði samfara reynslu um ágætan árangur túnræktar, meiri hagnaðar og heilsubót fyrir menn og skepnur. - Og eins og hér stendur á, býst ég við, að litið verði svo á samkv. Jarðræktarlögunum, að menn verði að láta landið af hendi, þeir sem beitarréttinn hafa, og ræktanlega landinu verði skipt í skákir til ræktunar.

Mér var sagt, að svo miklir örðugleikar og kostnaður væri því samfara að koma sjávarfanginu á ræktunarlandið, að nærri væri frágangssök að nota það til áburðar. Nokkuð kann að vera hæft í þessu. En ég vil þó benda á það, sem ég hefi áður tekið fram um túnin í Eyjunum og töðufallið og sjávarfangið í því sambandi. En til þess að draga úr örðugleikunum og svo alls hagræðis vegna, er nauðsynlegt að leggja vegi um landið, og það með allri hagsýni. Það mætti virðast ekki ósennilegt, að landsdrottinn, - ríkið, - vildi leggja aðal stofnvegina, en einstaklingarnir legðu vegi til sinna sérþarfa eða bærinn. Mönnum til leiðbeiningar og hvatningar í öllu þessu máli er nauðsyn á öflugu jarðræktarfélagi, er hafi áhugasama og dugandi stjórn, - og félagið er til. Ætti það m.a. að beita áhrifum sínum að því, að útvega mönnum hagkvæm jarðræktarlán.

Ég hefi nú í stuttu máli bent á og rökstutt nokkuð þá stefnu, sem mér sýnist heppilegust í túnræktarmálum Eyjaskeggja og vænti þess, að þetta verði tekið til rækilegrar athugunar á fundi í Eyjunum. En um ræktunaraðferðirnar ræði ég ekki, enda er ekki tímabært að gefa leiðbeiningar, fyrr en búið er að skipta landinu í skákir, athuga staðhættina í heild sinni betur en ég gat gert, og svo ákveða skipulagsgrundvöllinn a.m.k. í aðalatriðum. - En eflaust má treysta því, að Búnaðarfélag Íslands liðsinni að þessu leyti eftir beztu föngum, þegar til framkvæmdanna kemur.

Virðingarfyllst
M. Stefánsson (sign)

Dropinn holar steininn, segir máltækið. - Óneitanlega höfðu ummæli þekktra og mikilsvirtra manna í ræktunar- og landbúnaðarmálum landsmanna áhrif á Eyjabændur og vöktu þá til íhugunar og ályktana um framtíð og gildi aukinnar ræktunar á Heimaey, vaxandi mjólkurframleiðslu og öryggi um heilsufar fólksins. Fullyrða má, að þeir skiptust fljótlega í tvo hópa, þegar til mála kom að gefa eftir réttinn á landinu og láta skipta því í ræktunarskákir almenningi til afnota. Búnaðarfélagsstjórnin stefndi hér einhuga og óskipt að settu marki, en þó kaus hún umfram flest, að mál þetta yrði leyst í friði og vinsemd, ef þess yrði nokkur kostur, öllum til farsældar. Ekki skyldi rasað um ráð fram. Nokkur frestur var hér á öllu beztur, þó að áróðri yrði beitt og stefnt fast að settu marki.

Og ár leið án sérlegra tíðinda. Sumarið 1925 beitti stjórn Búnaðarfélags Vestmannaeyja sér fyrir BLIK 4