Blik 1978/Húsanöfn í Vestmannaeyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Efnisyfirlit 1978



ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON:


Húsanöfn í Vestmannaeyjum


Frá upphafi fastrar byggðar í Vestmannaeyjum var hverju íbúðarhúsi gefið nafn, sem húsbyggjandinn valdi oft frá æskustöðvum sínum. Stundum kaus hann á íbúðarhúsið sitt nafnið á æsku- eða bernskuheimili sínu, t.d. nafn jarðarinnar þar sem hann hafði alizt upp. Stundum fékk konan að ráða húsnafninu og valdi húsinu þá nafn frá æskusveit sinni.
Á seinni árum hefur þessi siður fallið niður og hvert íbúðarhús í kaupstaðnum fær númer í stað nafns. Við þessu er ekkert að segja, en það er sögulegt atriði, að einhvers staðar sé til skrá yfir þessi húsanöfn, sem óðum eru að hverfa, — skrá, sem almenningur hefur greiðan aðgang að til fróðleiks og ánægju. Þess vegna birtir Blik, ársrit Vestmannaeyja, þessa skrá hér að þessu sinni.
Það er ætlan mín, að Byggðarsafn Vestmannaeyja hafi til nota heildarkort af Vestmannaeyjakaupstað, þar sem fólk getur áttað sig á því, hvar hin númeruðu íbúðarhús hafi staðið, þó að þau séu mörg hver horfin af sjónarsviðinu. Samtals eru þetta um 460 húsanöfn.
Fyrsti maður í Eyjum, sem hóf að safna þessum nöfnum, var frú Ingibjörg húsfreyja Jónsdóttir í Þórlaugargerði. Hún gaf undirrituðum skrá sína og síðan hefi ég haldið þessu starfi hennar áfram með hjálp velviljaðra manna. Þá hefi ég einnig borið þessa skrá saman við húsanafnaskrá bæjarfélagsins, sem byggingarfulltrúinn Valtýr Snæbjörnsson hefur góðfúslega lánað mér. Finni lesendur okkar villur í skrá þessari, eru þeir vinsamlegast beðnir að koma leiðréttingu til mín, því að alltaf skal hafa það heldur, sem sannara reynist.

Þ.Þ.V.
1 Austurvegur (Áður hét stígur þessi Vilborgarstaðavegur).
Nr.
5 Laufás
24 Svanhóll
26 Háigarður (Ein af Vilborgarstaðajörðunum)
28 Hlaðbær (Ein af Vilborgarstaðajörðunum)
29 Vilborgarstaðir (Miðhlaðbær)
30 Skáli (Áður jarðarhús á Vilborgarstöðum)
31 Vilborgarstaðir (Norðurbær)
33 Vallartún
2 Ásavegur
Nr.
2 Holt
10 Hoffell
11 Sóli
33 Vesturhús vestri (Jarðarhús, sem var rifið 1971)
35 Vesturhús eystri (Jarðarhús, sem var rifið til grunna 1969)
3 Bakkastígur
Nr.
1 Höfn (Norðar og vestar en þetta hús stóðu Miðhús (jarðarhús)
5 Einbúi
8 Gjábakki vestari (Jarðarhús)
10 Sætún
17 Gjábakki eystri (Jarðarhús)
19 Brimnes
4 Bárustígur
Nr.
2 Drífandi (Verzlunarhús Kaupfélagsins Drífanda frá 1921—1931.

Sjá Blik 1976, bls. 13—44)

3 Verzlunarhús frú Önnu Gunnlaugsson. Áður var þar Verzlun E. Jakobsen

(Sjá Blik 1972, bls. 132)

5 Reynir
6 Verzlunarhús Kaupfélags Vestmannaeyja. Kaupfélag Eyjabúa hóf byggingu þessa húss árið 1933. Stuttu síðar geispaði það golunni. Þá keypti Kaupfélag verkamanna tóftina af Útvegsbanka Íslands. Það var árið 1934.

Það flutti síðan verzlun sína í hið nýbyggða hús árið 1939. Þegar Kaupfélag Vestmannaeyja var stofnað á rústum K/f verkamanna árið 1950, keypti það verzlunarhús þetta af S.Í.S.

7 Verzlunarhús Kaupfélags Vestmannaeyja. Áður átti Neytendafélag Vestmannaeyja þetta hús og rak þar verzlun sína. Þegar stjórnendur þess gáfust upp við reksturinn og fengu K/f Vestmannaeyja til þess að yfirtaka fyrirtækið „með húð og hári“, skuldum og eignum, varð húsið eign þess.
9A Hólshús
9B Hólshús (Gamla tómthúsið)
11 Bifröst
13 Vík
14 Múli
15 Bygging Sparisjóðs Vestmannaeyja og norðan við hana með sama númeri verzlunarhús Verzlunarinnar. Árið 1923 byggði aðventistapresturinn Olsen á lóð þessari hið svokallaða Baðhús til þrifa og heilsubóta Eyjabúum og vertíðarfólki. Þetta var mikilvægt og markvert menningarframtak í bænum með því að baðtæki voru sjaldgæf þá í heimilum Eyjafólks og aðstaða til slíkra þrifa ekki algeng.

Sparisjóður Vestmannaeyja keypti syðri hluta baðhússins með lóðarréttindum árið 1959, braut til grunna hið gamla baðhús, sem þá hafði ekki verið í notkun um árabil, og byggði þar Sparisjóðsbygginguna í kaupstaðnum á árunum 1960—1964. Síðar byggðu hjónin frú Sigurbjörg Ólafsdóttir og Magnús Kristjánsson verzlunarhús við norðurgafl Sparisjóðsbyggingarinnar, þar sem Verzl. Mozart er nú til húsa.

16 Fagridalur
18 Sandprýði
5 Bessastígur
Nr.
4 Kirkjuhóll
8 Skógar
6 Birkihlíð
Nr.
12 Kirkjuland
21 Ásbyrgi
7 Boðaslóð
Nr.
7 Þórshamar
8 Brekastígur
Nr.
3 Sólberg
4 Minni-Núpur
5A Reykjadalur
5B Oddhóll
6 Heiðarbýli
7A Árbær
7B Eyvindarholt
7C Efri-Hvoll
8 Heiðarból
10 Hæll (að Hæli)
11A Hallormsstaður
11B Háiskáli
12 Vesturholt
14 Sólheimatunga
15A Byggðarendi
15B Auðstaðir
15C Engidalur
16 Heiðarhóll
17 Betanía
18 Núpsdalur
20 Hnjúkur
21 Sóleyjartunga
22 Baldur
24B Elding
26 Bjarmahlíð
28 Háls
29 Einidrangur
30 Hofsstaðir
36 Arnarnes
9 Búastaðabraut
Nr.
2 Nýibær (Jarðarhús)
10 Faxastígur
Nr.
3 Hlíðarás
4 Brekka
6 Betel (Safnaðarhús Hvítasunnusafnaðarins, vígt 1. jan. 1926)
7B Uppsalir (Hús feðganna Sigmundar og Finns, og nú Flosa Finnssonar skipasmiðs)
8B Melstaður
10 Arnarhóll
12 Reynisholt
14 Hvíld
15 Höfðabrekka
17 Áshóll
18 Miðbær
19 Brattland
20 Berjanes
21 Sólbrekka
22 Húsadalur
23 Engey (Hús þetta var rifið til grunna stuttu eftir að gosi lauk)
24 Rafnseyri (Áður var hús þetta nr. 15 við Kirkjuveg. Það var flutt árið ?)
27 Blómsturvellir
11 Fjólugata
Nr.
2 Arnarstapi
12 Flatir
Nr.
10 Bjarmaland
12 Bakki
14 Oddeyri
16 Goðaland
13 Formannabraut (Áður hét gatan Formannasund)
Nr.
4 Óskasteinn (Húsið byggt á lóð tómthússins Kuðungs)
5 Reykhúsið
7 Ólakot
14 Hásteinsvegur
Nr.
2 Heiðardalur
3 Sólbakki
6 Kiðaberg (Kiðjaberg)
10 Seljaland
11 Framtíð
12 Búrfell
13 Mörk
14 Hólar
15B Dyrhólar
16 Hekla
17 „Fjósið“
18 Laufholt
20 Eyjarhólar
21 Höfði (Áður hét húsið Núpur)
22 Kanastaðir
24 Litlu-Hólar (Litlhólar)
30 Reykhólar
32 Málmey
34 Fagranes
36 Héðinshöfði
38 Nikhóll (Húsið hét áður Skildinganes)
40 Hrafnabjörg
43 Pétursey
15 Heiðarvegur
Nr.
2 „Vosbúð“
6 Gata (Götuhús)
10 Vörubílastöð Vestmannaeyja
15 Hótel Vestmannaeyjar (Áður Hótel H.B.)
17 Félagsheimili Vestmannaeyjakaupstaðar (Goodtemplarar í Eyjum byggðu þetta hús á árunum 1948—1950.
27 Breiðabólstaður
29 Stafnsnes
32-44 „Verkamannabústaðir“
35(39) Ljósaland
41 Hulduland
51-61 „Kennarabústaðir“
16 Heimagata
Nr.
1 Árnabúð (Húsið var fyrst verzlunarhús Árna Sigfússonar kaupmanns frá Löndum, síðar hús Íslandsbanka og svo Útvegsbanka Íslands. Síðast vörugeymsluhús Haralds Eiríkssonar og Co.)
2A Þingholt (Áður var húsið nr. 5 við Kirkjuveg)
2B Herjólfsbær (Félagsheimili Oddfellow-reglunnar í bænum)
3A Borg (Barnaskóla- og þinghús Eyjabúa frá 1904—1917. Síðar Bíó-hús og svo pósthús og síðast íbúðarhús á báðum hæðum)
3B Nýjahús
4 Tunga (Reyndalsbakarí). (Magnúsarbakarí, jafnframt Hótel Berg)
7 Dvergasteinn (Þetta hús, sem hlaðið var upp úr höggnu móbergi sumarið 1883 eins og Austurbúðin árið 1880, var barnaskólahús Vestmannaeyjakauptúns á árunum 1883—1904. Eftir það íbúðarhús, sjá Blik 1962)
8 Batavía (Áður hét tómthús þetta Brandshús)
9 Merkisteinn
11 Hagi
12A Hvoll (Gamli Hvoll. Sjá nr. 17 við Urðaveg)
12B Blátindur
14 Gilsbakki
17 Bjarnleifshús (Hús þetta var rifið fyrir um það bil 40 árum)
18 Bólstaður
20 Karlsberg
22 Bær
26 Nýjaland
27 Bræðratunga
28 Herðubreið
29 Ásgarður
33 Miðey
34 Litla-Heiði („Gamla-Heiði“)
39 Bólstaðarhlíð
40 Garðshorn
42 Vallanes
17 Helgafellsbraut
Nr.
5 Heiðarhvammur
10 Staður
33 Hvassafell
18 Herjólfsgata
Nr.
2 Geitháls
5 Grundarhóll
19 Hilmisgata
Nr.
3 Haukagil
5 Árdalur
7 Ólafsvík
11 Arnardrangur
17 Akóges (Fundahús Akógesfélagsins)
20 Hólagata
Nr.
7 Hólatunga
21 Hrauntún
Nr.
20 Ketilsstaðir
22 Hvítingavegur
Nr.
2 Haukfell
3 Goðafell
5 Fagrafell
8 Snæfell
10 Hljómskálinn
12 Happastaðir
23 Höfðavegur
Nr.
11 Heiðartún
Stuðlaberg (Áður hét hús þetta Oddgeirshólar)
24 Illugagata
Nr.
54 Lyngholt
60 Hellisholt
61 Saltaberg (Áður var hús þetta nr. 19 við Höfðaveg)
63 Lyngberg
25 Kirkjubæjabraut
Nr.
11 Goðasteinn
12 Presthús (Presthús voru áður fyrr Jarðarhús)
26 Kirkjuvegur
Nr.
8A Framtíðin (Verzlunarhús)
8B Dagsbrún
9A Steinholt
9B Byggðarholt
9C Eiðar
10 Gróuhús
11 Borgarhóll
12 Bókabúðin (Verzlun Þorsteins Jónssonar (Johnson) og svo sonar hans Óskars Johnson). Á þessari lóð stóð áður tómthúsið Gata, þar sem hreppurinn geymdi þurfalinga sína.
13 Grafarholt
14 Garðhús (Áður hét hús á þessari lóð Garðbær)
15A Einarshöfn
15B Rafnseyri (Fyrir mörgum árum var hús þetta flutt á lóð nr. 24 við Faxastíg. Það stóð vestan við Einarshöfn og þótti standa of nálægt gamla rafstöðvarhúsinu, sem síðast var skólahús Véstjóraskóla Vestmannaeyja og hvarf undir hraun 1973.
17 Gimli
19 Þinghóll
20 „Franski spítalinn“. (Frakkar byggðu þetta sjúkrahús árið 1906. Rekstri þess var lokið, þegar Gísli J. Johnsen afhenti kaupstaðnum til nota „nýja sjúkrahúsið“, (1927), sem nú er ráðhús Vestmannaeyjakaupstaðar.
21 Brynjólfsbúð (Verzlunarhús Brynj. Sigfússonar, kaupmanns og organista. Sjá Blik 1972)
22 Samkomuhús Vestmannaeyja (Frá 1893—1936 stóð á lóð þessari „Gamla Goodtemplarahúsið“, sem byggt var upprunalega á Mylluhól í Stakkagerðistúni. Þar stóð vindmylla eða kornmylla þeirra Stakkagerðisbænda til ársins 1890 eða þar um bil.
23 Hús Útvegsbanka Íslands. Áður stóð þarna í námunda íbúðarhúsið Völlur, sem flutt var á sínum tíma á lóð nr. 30 við Miðstræti
27 Sólvellir (Áður hét hús þetta Höjdalshús, kennt við útlendan mann, sem byggði það)
28 Sunnudalur
29 Sólvangur
31 Grund (Tómthúsið Grund, sem byggt var rétt eftir aldamótin, var rifið árið 1975)
35 Dalur
39A Stóri-Hvammur
39B Litli-Hvammur (Nú er hús þetta nr. 14 við Sólhlíð)
40 Stakkagerði eystra (Húsið var rifið til grunna árið ????)
41 Langi-Hvammur
43 Fagri-Hvammur
45 Breiðablik
49 Ás
50 Ráðhúsið (Sjúkrahús kaupstaðarins frá 1927—1973)
53 Staðarfell
57 Staðarhóll
59 Litlaland
64 Raftsholt
65 Kirkjuhvoll
66 Reynivellir
70 Hergilsey
82 Breiðavík
84 Drangey
27 Landagata
Nr.
3A Ingólfshvoll
3B Brautarholt
4 Hraun
5B Sólnes (Áður hét hús þetta Hnausar)
9 Hraungerði
11 Stóru-Lönd
15A Vestri-Lönd
15B Eystri-Lönd eða Litlu-Lönd
17 Akur
20 Gíslholt
22 Skálholt (Hið eldra)
25 Hof
30 Vatnsdalur
28 Miðstrœti
Nr.
3 London
4 Bjarmi (Síðast var hús þetta verzlunarhús Helga Benediktssonar. Áður hét húsið Frydendal, — byggt 1886—1887. Það var verzlunarhús K/f Bjarma frá stofnun 1914. Hús þetta var rifið til grunna haustið 1975)
5A Hóll
5B Hlíðarhús. Hús þetta var rifið 1975(?)
9A Strönd
9B Hruni
9C Veggur (Áður hét hús þetta Litlakot)
12 Skjaldborg (Vörugeymslu- og veiðarfærahús)
14 Úrval (Verzlunar- og skrifstofuhús)
15 Steinn (Áður var hús þetta nr. 10 við Vesturveg)
16 Litlibær (Áður var Litlibær nr. 35 við Strandveg)
18 Fögruvellir (Áður nr. 39C við Strandveg)
19 Hólmur (Áður nr. 16 við Vesturveg)
20 Skarð (Áður nr. 43C við Strandveg)
21 Varmahlíð (Áður nr. 18 við Vesturveg)
22 Lundur (Áður nr. 12 við Vesturveg)
24 Sunnuhvoll
26 Landakot (Áður nr. 51 við Strandveg)
28 Sigtún (Áður nr. 53 við Strandveg)
30 Völlur (Hús þetta var upprunalega byggt 1918 á lóð nr. 15 við Vestmannabraut)
29 Njarðarstígur
Nr.
1 Þingvellir (Áður hét hús þetta Vísir. Þá var þar rekin samnefnd verzlun. Í þessu húsi rak Gísli J. Johnsen pósthús Vestmannaeyja um árabil, þegar hann var póstmeistari í Eyjum)
2 Boston (Þetta hús var byggt um eða rétt eftir aldamótin síðustu. Þá var það brauðbúð. Síðan var það verzlunarhús E. Jakobsen. Árið 1911 var þar rekin fyrsta símstöðin í Eyjum (Sjá Blik 1972). Árið 1924 hóf Einar Sigurðsson þar verzlunarrekstur, og rak þar verzlun í nokkur ár. (Sjá Blik 1972)
3 Bræðraborg
4 Verzlunarhús (Upprunalega var það verzlunarhús Verzlunarfélags Vestmannaeyja, en síðar verzlunarhús Helga Benediktssonar)
5 Stíghús
6 Sveinsstaðir
10 Pálsborg (Vörugeymslu- og veiðarfærahús K/f Bjarma og síðar Helga Benediktssonar kaupmanns og útgerðarmanns)
15 Sólheimar
16 Klöpp (Íbúðarhús þetta var flutt austur á Urðir árið 1969 og gert þar að hesthúsi. — Hrossarækt!)
17 Nýborg (Íbúðarhús þetta var byggt 1876. Sjá Blik 1960)
18 Mandal(ur)
30 Sjómannasund
Nr.
3 Björgvin (Tómthús þetta var byggt árið 1899)
5 Garðstaðir (Húsið var rifið árið 1969)
8 Sjávarborg
10A Sjávargata
10B Sjónarhóll
12 Skel
Kuðungur
31 Skildingavegur
Nr.
8B Sjávarbrún
32 Sólhlíð
Nr.
14 Litli-Hvammur (Áður nr. 39B við Kirkjuveg)
17 Tindastóll
19 Heiði (Stóra-Heiði). Hús þetta var brotið niður til grunna árið 1976 sökum skemmda á því í eldgosinu).
33 Skólavegur
Nr.
1 Vöruhús Vestmannaeyja
2 Skrifstofur Flugfélags Íslands og verzlunarhús. (Upprunalega verzlunarhús K/f alþýðu, byggt 1933)
3 Hlíðarendi
4A Straumur
4B Hlíð
7 Ásnes
8 Búðafell
10 Hörgsholt
11 Grundarbrekka
12 Hrísnes
14 Ármót
17 Stakkagerði vestara
18 Mjölnir
19 Ráðagerði
21A Geysir
21B Alþýðuhúsið (Samkomuhús verkalýðsfélaganna)
21C Aðalból
22 Þrúðvangur
23 Nýhöfn
24 Varmadalur
26 Bakkaeyri
27 Grímsstaðir
29 Arnarfell
31 Sléttaból
32 Vegberg
33 Hamar
34 Hrófberg (Húsið var rifið fyrir mörgum árum)
36 Eskihlíð
37 Þingeyri
38 Hólland (?)
41 Búland
45 Kirkjudalur
47 Ásar
35 Strandvegur
Nr.
1 Kornhóll
2 Kornloftið (Þetta aldraða hús einokunarverzlunarinnar var byggt 1830)
5 Garðurinn (Þetta íbúðarhús byggði K/f Fram árið 1923)
? Jakobshús (Görn)
? Godthaab (Síðast skrifstofuhús Einars Sigurðssonar útgerðarmanns og eiganda Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja. Það var upprunalega byggt 1833. Það var pósthús 1904—????, eftir að G.J.J. gerðist póstmeistari í Eyjum).
18 Geirseyri (Hús þetta stóð rétt austan við Gömlu-Bæjarbryggjuna og sneri stafni að henni. Fyrsti eigandi þess var K/f Herjólfur. Samvinnufélag þetta byggði það á árunum 1909—1910.
20 „Svarta húsið“, (Bryggjuhúsið), sem stóð vestan við Gömlu-Bæjarbryggjuna gegnt Geirseyri. Það var byggt 1905. Norðmaðurinn Lyder Höydal lét byggja þetta hús, en hann rak verzlun í Eyjakauptúni nokkur ár.
22 Andrahús (Sjóhús, kró)
37 Brimberg
39A Strandberg
41 Sjólyst (Húsið var rifið í marzmán. 1976)
42 Gefjun
43A Valhöll
43B Landlyst (Vesturhluti þessa húss, sem er nú annað elzta hús bæjarins, var byggður 1848. Það var „Stiftelse“, — fæðingarstofnunin nafnkunna, þar sem orsakir ginklofans voru rannsakaðar. Austurhluti hússins mun byggður tveimur árum síðar. Landlyst var bústaður Þorsteins héraðslæknis Jónssonar frá 1867—1905)
43C Skarð (Nú nr. 20 við Miðstræti).
45-47 „Smiður“, áður trévinnuverkstæði og verzlunarhús. Nú félagsheimili Oddfellow-reglunnar í Eyjum & skrifstofuhús, verzlunarhús.
49 „Neisti“, (Raftækjaverkstæði. Þetta hús var upprunalega frystihús, sem S.Í.S. byggði og rak í nokkur ár).
50 Sæból (Hús þetta var rifið fyrir hálfri öld eða þar um bil)
51 Landakot (Nú er hús þetta nr. 26 við Miðstræti)
53 Sigtún (Nú er húsið nr. 28 við Miðstræti)
55 Fagurhóll
61 Ólafsvellir
63 Sandur
65 Vosbúð (?)
75 Vélsmiðjan Magni h/f
35 Strembugata
Nr.
6 Berghólar
36 Suðurvegur
Nr.
22 Víðivellir
37 Túngata
Nr.
15 Kirkjulundur
22 Mosfell
38 Urðavegur
Nr.
2 Sjóbúð (Hús þetta lét G.J.J. byggja rétt eftir síðustu aldamót. Það var rifið árið 1926. Vörugeymsluhús og sjóbúð)
4 Vegamót (Áður hét hús þetta Nýi-Kastali til aðgreiningar frá hinum enska Kastala frá 15. öld eða svo, sem Englendingar byggðu, eftir að þeir urðu alls ráðandi um verzlunarrekstur í Eyjum)
5 Vinaminni
6 Smiðja Þorsteins Steinssonar; (Áður Thomsenssmiðjan)
7 Gröf (Hús þetta var brennt til ösku fyrir mörgum árum sökum sjúkdóms, sem þar var talinn liggja í landi)
8 Steinar
9 Sæberg (Á húslóð þessari hét tómthús fyrst Vanangur, síðar Péturshús)
11 Reykholt (Hið yngra)
15 Reykholt (Hið eldra)
16 Fagurlyst (vestri)
17A Hvoll (Nýi-Hvoll til aðgreiningar frá nr. 12 við Heimagötu)
17B Hvoll (Litli-Hvoll, bakhús)
18 Fagurlyst (eystri)
20 Ekra
24 Bergstaðir
28A Húsavík (Annar helmingur hússins)
28B Breiðabólstaður (Hinn helmingur hússins)
34 Hjálmholt
36 Skjaldbreið
41 Eiríkshús
43 Skálholt (Hið yngra. Síðast var þar rekið elliheimili kaupstaðarins)
39 Vallargata
Nr.
6 Bjarkarlundur
40 Vestmannabraut (Áður hét brautin Breiðholtsvegur)
Nr.
1 Brúarhús („Hornið“)
3 Kalmanstjörn
5 Samkomuhús K.F.U.M. og K.
6 Jaðar
8 Geirland
9 Dalbær
10 Lágafell
11 Haukaberg
12 Hólmgarður (Þetta hús var rifið fyrir nokkrum árum)
13A Miðgarður
13B Hellir
15 Völlur. Íbúðarhús þetta var flutt af lóðinni árið 1956, þegar Útvegsbanki Íslands þurfti að fá lóðlóðina og breyta henni í bifreiðastæði bifreiðastæði. Húsið er nú nr. 30 við við Miðstræti.
22 Pósthús og símstöð (Miðstöð)
23 Georgsbúð (Búðin kennd við kaupmanninn, sem byggði hana upprunalega, Georg Gíslason. Nú er hér skóverzlun Axels Lárussonar)
24 Lyfjabúð (Apótekið) (Húsið hét upphaflega Stakkahlíð, byggt á fyrstu árunum eftir aldamótin)
25 Mundahús
26 Sunnuhóll
27 Garðsauki
28 Þórshamar (Hús þetta hét öðru nafni Nýjabíó í daglegu tali fólks, því að þarna rak Þorsteinn Jónsson (Johnson) frá Jómsborg kvikmyndahús um árabil. Síðast var hús þetta vörugeymsluhús Heildv. H. Sigmundsson h/f. Það brotnaði undan þunga gjóskunnar á tímum eldgossins 1973)
29 Hrafnagil
30 Viðey
31 Kaupangur
32 Garðar
33 Víðidalur
34 Fell
35 Þorvaldseyri
36 Sandfell
37A Gunnarshólmi (Síðar var Magnúsarbakarí byggt á lóðinni)
37B B Marland (Geymsluhús Einars Sigurðssonar)
38 Mjólkursamsalan (Hús Mjólkursamsölunnar í Rvk.)
40 Skuld (Hús þetta var rifið árið 1971(?)
42 Nýlenda
44 Látur
46A Akurey
46B Skipholt
47 Björk
48A Langholt
48B Ey
49 Stakkholt
51A Uppsalir eystri
51B Uppsalir vestri
52 Breiðholt
53A Laugaland (vestri endi hússins)
53B Einholt (eystri endi hússins)
54 Reykir
55 Uppsalir (Loftur Þórðarson)
56A Lögberg
56B Pétursborg
57 Hjalli
58A Úthlíð
58B Rauðafell
59 Heiðarbrún
60 Hvanneyri
61 Birtingarholt
62 Skaftafell
63A Oddi
63B Bergholt (Gamla-, Litla-)
65A Burstafell
65B Hlíðardalur
67 Bergholt (Stóra-Bergholt)
68 Fagrabrekka
69 Hjarðarholt
71 Lýtingsstaðir
41 Vesturvegur
Nr.
2 Sælundur
3A Landamót (Hús þetta brann fyrir nokkrum árum)
3B Framnes
4 Jóhannshús
5A Baldurshagi
5B Laugardalur
6 Sædalur
8 Höfðahús
9A Reynistaður (Húsið rifið fyrir nokkrum árum)
9B Sandgerði (Húsið rifið fyrir nokkrum árum)
10 Steinn (Nú nr. 15 við Miðstræti)
11A Háeyri
11B Litla-Eyri
12 Lundur (Nú er húsið nr. 22 við Miðstræti)
13A Skálanes
13B Hjalteyri
14 Sunnuhvoll (Nú er húsið nr. 24 við Miðstræti)
15A Djúpidalur
15B Reynifell
17C Litla-Hraun
18 Varmahlíð (Nú nr. 20 við Miðstræti)
19 Lambhagi
20 Ártún
21 Túnsberg
23A Setberg(?)
23B Berg
24 Litla-Grund (Hús þetta var rifið fyrir nokkrum árum, þegar Vesturvegurinn var malbikaður)
25 Eyri
26 Selalækur
27 Bjargholt
28 Bjarg (Þetta hús var upprunalega byggt árið 1907 á lóð, sem gæti nú verið nr. 13 við Miðstræti. Það var flutt að Vesturvegi 28 árið 1952)
30 Sunnuhlíð
34 Endi
42 Víðisvegur
Nr.
7A Stafholt (Gunnst. Eyjólfsson)
7B Stafholt (Júlíus Jónsson)
7C Stafholt (Sveinn S. Sveinsson)
9 Jómsborg