„Blik 1974/Vornæturkyrrð, ljóð“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: SERA ÞORSTEINN L. JÓNSSON, SÓKNARPRESTUR Vornæturkyrrð Jónsmessunótt Fjalladalur ilmi andai, æðasláttur lífsins hljóðnar, fjöll og jöklar fögru skauta, fald sinn...)
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 21: Lína 21:

Friður lifi, - friðar-vaki, -fullnustunnar orkugjafi, allar götur út til stranda, innst til fjalla, vítt um byggðir, vaxi farsæld innst sem utast, andann veki himin-tungur. Pá mun dagsins þjóðin njóta, þjónustunni trúnað sverja.

Hér á lyngbrekkan laufskógar-rjóður, sem er laugað í Jónsmessudögg. Sjá, hve blóminn mót lífinu brosir, finndu bjarkanna ilmandi rögg búna töfrum frá sumri

Útgáfa síðunnar 1. október 2009 kl. 08:35

SERA ÞORSTEINN L. JÓNSSON, SÓKNARPRESTUR

Vornæturkyrrð

Jónsmessunótt

Fjalladalur ilmi andai, æðasláttur lífsins hljóðnar, fjöll og jöklar fögru skauta, fald sinn baða í vatni skyggndu, röðull blóðgum brennur loga, býst til hvíldar dagur liðinn.

Fjallavatnsins báru-blikið bifast mjúkt sem móðurfaðmur, kynjadjúpur að sér allan alheim rúmar himindjúpan, gjálpar stilltu, ljúfu lagi af lífsfögnuði um bjartar nætur.

Sælt og kyrrlátt byggðin blundar, burstaþil á verði standa, féð sig bælir mjúkt í móa, mosa-þúfa, grænu í flosi, mýrisnípa ei heyrist hneggja, hvergi vella nokkur spói.

Daginn, þegar röðull roðar, rísa af blundi annir dagsins, bæjarþila burstir gneipar búralegar úr sér teygja, reykir upp í leti-lygnu liða fyrir engum blænum.

Lækjarniður lífsóð kveður, lækinn kljúfa sporðar kvikir. ærnar lembdar lóna um grundir, lömbin sjúga, dyndli skvetta, hneggjar loft af hrossagauki. heyrist spóinn líka vella.

í friðsæld byrjar bjartur dagur, blítt hann fer á ný að skína, bóndi rís til lofts að líta um leið og sinnir þörfum brýnum. Þannig byrja bændur daginn, brauðs og neyta í andlits-sveita.