Blik 1974/Myndasyrpa

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Efnisyfirlit 1974




Myndir


ctr


Þessi mynd mun vera um það bil 50 ára gömul. Hún er af sigursælum knattspyrnugörpum úr Knattspyrnufélaginu Tý í Vestmannaeyjum.
Aftasta röð frá vinstri: Þórarinn Guðmundsson frá Háeyri, Þorgeir Frímannsson, Hvassafelli, Friðrik Jesson frá Hóli, Jóhann Gunnar Ólafsson frá Reyni, Frímann Helgason, Fögrubrekku.
Miðröð frá vinstri: Óskar Sigurhansson, Brimnesi, Guðni Jónsson, Ólafshúsum, Hallvarður Sigurðsson, Pétursborg.
Fremsta röð frá vinstri: Ólafur Magnússon, Sólvangi (sjá Bréf til vinar míns og frænda hér í ritinu), Einar Sigurðsson, Heiði (sjá skrif mín hér í ritinu um endalok Kf. Fram), Aðalsteinn Sigurhansson, Brimnesi.


ctr


Aftasta röð frá vinstri: Þórarinn Guðmundsson frá Háeyri, Óskar Valdason frá Sandgerði, Tómas Jóhannsson, Vöruhúsinu, Aðalsteinn Gunnlaugsson frá Gjábakka, Skarphéðinn Vilmundarson frá Hjarðarholti.
Miðröð frá vinstri: Hallvarður Sigurðsson frá Pétursborg, Þorgeir Frímannsson frá Hvassafelli, Gísli Finnsson frá Sólbakka.
Fremsta röð frá vinstri: Oddgeir Kristjánsson frá Heiðarbrún, Sigurjón Helgason Bachmann og Karl Vilmundarson frá Hjarðarholti. - Öll heimilin voru þekkt í Eyjum á sínum tíma.


ctr


KNATTSPYRNULIÐ TÝS.
Aftasta röð frá vinstri: Árni Guðmundsson frá Háeyri, Daníel Loftsson frá Borgarhól, Þórarinn Gunnlaugsson frá Gjábakka, Gísli Guðjónsson frá Kirkjubœ, Ingólfur Guðjónsson frá Skaftafelli.
Miðröð frá vinstri: Friðjón Sigurðsson frá Skjaldbreið, Þorsteinn Sigurðsson frá Melstað, Sigurður Símonarson frá Miðey.
Fremsta röð frá vinstri: Ísleifur Þorkelsson frá Reynistað, Gísli Jakobsson Tranberg og Sigurjón Valdason frá Sandgerði.


ctr


KNATTSPYRNULIÐ K.V. 1920-1922.

Aftasta röð frá vinstri: Hjálmar Eiríksson, Vegamótum, hœgri framherji, Jóhann A. Bjarnasen, Dagsbrún, vinstri innherji, Georg L. Gíslason, Stakkagerði, miðframherji, Filippus G. Árnason, Ásgarði, hægri innherji, Kristinn Ólafsson frá Reyni, vinstri framherji.
- Miðröð frá vinstri: Lárus G. Árnason, Búastöðum, vinstri framvörður, Sigurður Sveinsson frá Sveinsstöðum, miðframvörður, Árni Árnason, Grund, hœgri framvörður.
-Fremsta röð frá vinstri: Óskar A. Bjarnasen, Dagsbrún, hægri bakvörður, Guðmundur Helgason, Steinum, markvörður, Jón Jónasson, Múla, vinstri bakvörður.
-Í raun voru þetta allt félagar í Íþróttafélaginu Þór nema Jóhann A. Bjarnasen og Kristinn Ólafsson.


ctr


KNATTSPYRNULIÐ TÝS á fyrstu starfsárum þess.
Efsta röð frá vinstri: Ingólfur Guðjónsson frá Skaftafelli, Helgi Pálsson frá Laufholti, Óskar Valdason frá Sandgerði, Júlíus Sigurðsson frá Skjaldbreið, Sigurjón Valdason frá Sandgerði.

Miðröð frá vinstri: Árni Guðmundsson frá Háeyri, Alfreð Sturluson frá Hvassafelli, Páll Ingibergsson frá Hjálmholti.
Fremsta röð frá vinstri: Friðjón Sigurðsson frá Skjaldbreið, Oddgeir Kristjánsson frá Heiðarbrún og Steingrímur Björnsson frá Kirkjulandi.
Myndin mun tekin á árunum 1923-1925. Heimilin voru þekkt í Eyjum á sínum tíma.


ctr


SIGURSÆLIR KAPPAR

Keppt var um svokallað Framhorn 30. maí 1937. Þessi kappleikur fór fram á gamla íþróttavellinum í Vestmannaeyjum, íþróttavellinum við Hástein.
Týs-lið þetta vann leikinn með 3:2. Dómari var Guðjón Einarsson frá Reykjavík.
Aftasta röð frá vinstri: Martin Tómasson frá Höfn, Sigurður Júlíusson, Sigurjón Friðbjörnsson, Daníel Loftsson, Hermann Guðmundsson frá Háeyri.
Miðröð frá vinstri: Óskar Valdason frá Sandgerði, Gísli Guðjónsson frá Kirkjubæ, Leifur Þorbjörnsson frá Kirkjubœ.
Fremsta röð frá vinstri: Þórarinn Guðmundsson frá Háeyri, Karl Guðjónsson frá Breiðholti, Sigurjón Valdason frá Sandgerði.


ctr


Aftasta röð frá vinstri: Hjálmar Jónsson frá Enda, Ingólfur Arnarson, Pálmi Sigurðsson frá Skjaldbreið, Hermann Guðmundsson frá Háeyri. Gunnar Stefánsson frá Gerði.
–Miðröð frá vinstri: Vilhjálmur Árnason frá Burstafelli, Ágúst Friðþjófsson, Baldur Þorgilsson.
Fremsta röð frá vinstri: Jóhann Vilmundarson frá Hlíð, Einar Halldórsson, Skólavegi 25 og Leifur Þorbjörnsson frá Kirkjubæ.


ctr


Vestmannaeyskar blómarósir
Frá vinstri: Kristbjörg Kristjánsdóttir, Þórey Bergsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Kristín Georgsdóttir, Halla Bergsteinsdóttir, Ágústa Bjarnadóttir, Ingibjörg Guðlaugsdóttir og Árný Guðjónsdóttir. - Mynd þessi var tekin 1963.


ctr


GLÍMUMENN Í EYJUM.

Frá vinstri: Sigurður Guðjónsson frá Framnesi, Ólafur Sigurðsson frá Skuld, Ásmundur Steinsson frá Ingólfshvoli, Guðjón Þorkelsson frá Sandprýði, Sigurjón Valdason frá Sandgerði, Húnbogi Þorkelsson frá Sandprýði og Emil Andersen frá Sólbakka.


ctr


Aftasta röð frá vinstri: Lárus Ólafsson, Arnardrangi, Árni Guðmundsson frá Háeyri, Karl Kristmannsson, Steinholti, Lárus Ársœlsson, Fögrubrekku, Þórarinn Gunnlaugsson, Gjábakka, Skarphéðinn Vilmundarson, Hjarðarholti, Sigurjón Valdason, Sandgerði. - Miðröð frá vinstri: Páll Scheving frá Hjalla, Guðjón Friðriksson, Látrum, Óskar Valdason, Sandgerði, Sverrir Matthíasson, Gísli Finnsson, Sólbakka. - Fremsta röð frá vinstri: Bergsteinn Jónasson, Múla, Sveinn Ársœlsson, Fögrubrekku og Oddgeir Kristjánsson frá Heiðarbrún.


ctr


Heimilisfólkið í Suður-Vík í Mýrdal um 1920.

- Frá vinstri: Guðlaug Sigurðardóttir frá Hofsnesi í Örœfum, Guðríður Þorleifsdóttir, Þorgerður Þorgilsdóttir, Hermann Einarsson (bróðir séra Sig. Einarssonar), Guðjón Markússon (sonur Markúsar Loftss., Hjörleifshöfða), Haraldur Jónsson, Jón Stefánsson frá Fagurhól, Kristján Soffíasson Pálssonar, Júlíus Steindórsson (dótturs. Páls Jökuls), Magnús Einarsson, Matthildur Gottsveinsdóttir, Soffías Pálsson (maður Guðríðar Þorleifsdóttur), Guðbörg Ólafsdóttir (móðir Magnúsar Einarssonar), Jóhanna Lafransdóttir, Agnes Jakobsdóttir (búsett í Ameríku) og hundurinn Hektor. - Á myndinni er aðeins nokkur hluti þess fólks sem heimnilisfast var í Suður-Vík um þetta leyti. (Þórður Stefánsson, bókavörður í Vík í Mýrdal, gaf Bliki skýringu við mynd þessa).