Blik 1974/Jónsmessunótt, ljóð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. október 2009 kl. 08:40 eftir Elinbjork (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. október 2009 kl. 08:40 eftir Elinbjork (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jónsmessunótt

Hér á lyngbrekkan laufskógar-rjóður, sem er laugað í Jónsmessudögg. Sjá, hve blóminn mót lífinu brosir, finndu bjarkanna ilmandi rögg búna töfrum frá sumri og sólu, saman tengja hér köllun og mál: Gróandans gleði og þroska til að gefast af lífi og sál.

Hér er kliðandi sólfugla sveimur. Heyrðu sönginn um Skaparans mátt. Hvílík lifandi tilbeiðsla og tjáning, hér á tilhugalífið sinn þátt. Innst í fylgsnum í hugar míns heimum heyri ég skyldleikans ómþrungna nið.

Taki því tunga mín undir í tengslum við Almættið.

Nú skín miðnætursólin á sumri, og sannar gróandans eilífa mátt. Ég get því óruggur beðið hér bænar um bróðurkærleikans þjónustu og sátt.

Þessi nótt veitir andanum orku, eggjar lögeggjan sóknar þann dug, sem ætlar að byggja brýrnar til bræðra með framandi hug.