Blik 1971/Nýstárlegur kappleikur, bæjarstjórn og bifreiðastjórar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. júlí 2012 kl. 16:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2012 kl. 16:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1971



Nýstárlegur kappleikur


ctr


Haustið 1970 var háður nýstárlegur og markverður kappleikur á íþróttavellinum í Vestmannaeyjum.
Keppnisaðilar voru bæjarfulltrúar Vestmannaeyjakaupstaðar og þeir, er bæjarstjórn kaus sér til fulltingis, annars vegar, og svo bifreiðastjórar á B.S.V. (Bifreiðastöð Vestmannaeyja) hins vegar, og höfðu þeir hinir síðari skorað á bæjarstjórn til keppninnar.
Ingólfur Theodórsson, netjagerðarmeistari, stjórnaði leiknum.
Leiknum lauk með jafntefli. Tekjur af leik þessum urðu býsna miklar eða um kr. 45 þúsundir. Kappliðið gaf þær allar hinu nýja sjúkrahúsi kaupstaðarins.
Bifreiðastjórar eiga skilið miklar þakkir fyrir þessa snjöllu hugkvæmd að bjóða hinum snarborulegu bæjarfulltrúum til þessarar arðvænlegu keppni, því að margir girntust að sjá „öldunga“ þessa taka til fótanna.
Hér birtir Blik mynd af kappleiksköppunum.
Aftari röð frá vinstri: 1. Hallgrímur Þórðarson netjagerðarmeistari. 2. Guðni B. Guðnason kaupfélagsstjóri. 3. Reynir Guðsteinsson barnaskólastjóri. 4. Hörður Jónsson skipstjóri. 5. Sigurgeir Kristjánsson forseti bæjarstjórnar. 6. Magnús H. Magnússon bæjarstjóri.
Fremri röð frá vinstri: Ármann Eyjólfsson skólastjóri Stýrimannaskólans. 2. Gísli Sigmarsson skipstjóri. 3. Sigurgeir Ólafsson skipstjóri. 4. Garðar Sigurðsson kennari. 5. Eggert Sigurlásson bólstrari.