Blik 1946. Ársrit/Frá skólanum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2022 kl. 11:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2022 kl. 11:22 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1946


Nýtt skólakerfi

Í dag undirritaði forseti Íslands ný fræðslulög fyrir landið. Framhaldskennslan er nú loks skipulögð í landinu, og þjóðin fær heilsteypt skólakerfi. Skólaskylda barna verður til 15 ára aldurs í stað 14 ára. — Börnin ljúka fullnaðarprófi barnafræðslunnar 13 ára að aldri. Þá færist skólaskylda þeirra upp í gagnfræðaskólana. Eftir tvö ár í gagnfræðaskóla ljúka unglingarnir svokölluðu unglingaprófi, og ljúka þar með skólaskyldunni. Þá tekur miðskóladeild gagnfræðaskólanna við. Eftir eins árs nám í þeirri deild ljúka unglingarnir svonefndu miðskólaprófi. Það próf veitir rétt upp í lærðudeild menntaskóla, 1. bekk kennaraskóla, og inn í ýmsa sérskóla. Einnig veitir það rétt til starfa hjá opinberum stofnunum, svo sem pósti og síma. — Eftir fjögurra vetra námi í gagnfræðaskóla ljúka nemendur gagnfræðaprófi.

10. apríl 1946.
——————
Miðskólapróf

Að þessu sinni þreyta 9 unglingar miðskólapróf við gagnfræðaskólann hér í Eyjum. Þeir eru þessir:
Bernódus Þórarinsson.
Guðjón Kristófersson.
Haraldur Ragnarsson.
Högni Sigurjónsson.
Hörður Haraldsson.
Inga Sigurjónsdóttir.
Jóhanna H. Sveinbjarnardóttir.
Sigurbergur Hávarðsson (utan skóla).
Öll úr Vestmannaeyjum; og Haraldur Jóhannsson frá Hofsósi.
Væntanlega hefst miðskólaprófið um miðjan maímánuð. Það er þreytt á sömu dögum og sama tíma dags í öllum gagnfræðaskólum landsins, héraðsskólum og báðum menntaskólunum. Sérstök nefnd manna í Reykjavík semur öll prófverkefnin og dæmir úrlausnir.

————————

Gagnfrœðapróf hófst í skólanum 6. þ.m. Bekkjarpróf 10. þ.m.
Skólanefnd Gagnfræðaskólans skipa nú þessir menn:

Eyjólfur Eyjólfsson, form.
Björn Guðmundsson.
Karl Guðjónsson.
Ástþór Matthíasson.
Þorvaldur Sæmundsson.

Gagnfrœðaskólinn þakkar fráfarandi formanni, Sveini Guðmundssyni, velvilja og ötulleik í starfi.

———————
Ritnefnd:
Stjórn Málfundafélags Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum
Ábyrgðarmaður:
Þorsteinn Þ. Víglundsson