Blik 1946. Ársrit/Svarti engillinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. maí 2010 kl. 22:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. maí 2010 kl. 22:13 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1946


Svarti engillinn
(Smásaga)



Ölvaður maður, ofurölvi, ráfar um nótt austur að Kornhól vissra erinda. — Hann staulast austur traðirnar með stuðningi hleðslunnar. Þegar hana þrýtur, hrópar hann: „Meira grjót, lengri garð, lengri hleðslu!“ — Hann fálmar út í myrkrið með lausu hendinni. Brátt birtist honum svartur engill, sem réttir honum svörtu hendina sína og leiðir hann til húsa. Þar sökkvir hann honum að fullu í eiturpyttinn. Næsta dag leggur svarti engillinn inn í banka marga blóðpeninga. Það eru „mjólkuraurarnir“ hans.

Þ.Þ.V.