Blik 1938, 2. tbl./Í dag er vor.

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. maí 2010 kl. 16:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. maí 2010 kl. 16:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1938


Helgi Sæmundsson:

Í DAG ER VOR.
Í dag er sólskin í sveitum,
er sigrandi völdin fær,
og drottnandi vættur vorsins
á viðkvæma strengi slær.
Í dag er söngur í sálu,
og seiðandi þrár í hug.
— Hraðfara svanir hugans
hefja sitt vængjaflug.
Í dag er tign yfir tindum,
er töfrar hvern byggðarmann.
Og norn hinna örvandi óska
örlagavefi spann.
Vorannir bóndans bíða,
og bjartsýni á hann enn.
Hann ætlar að drýgja dáðir
og draumar hans rætast senn.
Í dag er himinninn heiður
og helgi í sálu manns.
— Í dag er vorið að völdum
og vakir í byggðum lands.
— Því burtu er vetur vikinn
með vald sitt og ægimátt.
— Horfinn í fyrnsku og fjarska.
— Hann flýði í norðurátt.
Í dag er ljóðandi lækur,
er lýður um gróinn völl;
sem kastaðist fram af klettum,
og kvaddi hin bláu fjöll,
— og hafði ólgandi útþrá
eignast í vöggugjöf.
— Ljóðandi fer hann og finnur
í fjarskanum hafsins gröf.
Í dag er ég draumsins sonur.
Í dag er mér létt um spor.
— Í dag er ég frjáls úr fjötrum
og fagna þér — nýja vor.
— Frjálsbornar vermast og vaxa
vonir, sem hjarta mitt ól.
— Hraðfara svanir hugans
hefja sig — móti sól.






ctr