Blik

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. júlí 2007 kl. 14:51 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. júlí 2007 kl. 14:51 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Blik var blað málfundafélags Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Það var fyrst gefið út árið 1936 og hélt útgáfa þess áfram með stuttum hléum, stundum annað hvert ár, en á stundum árlega til ársins 1980.

Athafnamaðurinn og skólastjóri Gagnfræðaskólans, Þorsteinn Víglundsson, var stofnandi þess og ritstjóri og urðu árgangarnir alls 34 á 45 árum. Hann lét af störfum sem skólastjóri árið 1963 og þar eftir tók hann að mestu við skrifunum í Blik og nefndist þá ritið ársrit Vestmannaeyja. Þorsteinn var kosinn, einróma af bæjarstjórninni, heiðursborgari í Vestmannaeyjum árið 1978 fyrir framlag sitt til menningarmála.

Greinar

Greinar í Blik voru um menningarmál af fjölbreyttum toga en endurspegluðu þó áhugamál Þorsteins vel og í fyrstu tölublöðunum fékk Þorsteinn góða aðstoð frá nemendum sínum með skriftir. Greinarnar fjölluðu m.a. um einstaklinga, merka atburði, daglegt líf, atvinnumál, sögu, safnamál, spaug og spé, bindindismál og efnisyfirlit byggðasafnsmuna.

Blik á Heimaslóð