Blágóma

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júní 2006 kl. 13:55 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júní 2006 kl. 13:55 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Sjávardýr
Fiskar
Önnur sjávardýr

Blágóma (Anarhichas denticulatus)

Stærð: Blágóma er svipuð að stærð og hlýri, allt að 150 cm og 20 kg. Við Ísland er hún um 124 cm.

Lýsing: Gildvaxinn og allhár fiskur. Hún hefur sérkennilega breitt enni og stóran haus. Munnurinn er frekar lítill og kemur aðeins á ská. Hún er sótrauð, dökkrauðblá eða blágrænleit á lit og hefur smæstar og veikastar tennur af þessum tegundum, hinsvegar eru þær oddhvassari. Hreistur er mjög lítið.

Heimkynni: Finnst í kringum Ísland en einnig finnst hún við Svalbarða, Grænland og Nýfundnaland. Lifir í mjúkum botni á 300-600 m dýpi.

Lífshættir: Hér er hún mest í kalda sjónum enda kaldsjávarfiskur, einkum fyrir Austurlandi.

Fæða: Blágóma lifir aðallega á skrápdýrum.

Hrygning: Hrygnir á allmiklu dýpi.

Nytsemi: Blágóma er talin óæt, vegna þess að hún er lausholda og kvapmikil.