Björn Erlendsson (Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. maí 2014 kl. 21:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. maí 2014 kl. 21:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Björn Erlendsson (Gerði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Björn Erlendsson.

Björn Erlendsson bóndi og útvegsmaður í Gerði, fæddist 18. júní 1878 í Dyrhólahjáleigu í Mýrdal og lést 8. mars 1923.
Faðir Björns var Erlendur vinnumaður í Mýrdal, f. 1845, líklega í Reynissókn í Mýrdal, d. í júní 1884, Sigurðsson bónda, síðast á Brekkum í Mýrdal, f. 8. apríl 1821, d. 25. febrúar 1859, Þórðarsonar prests þá á Felli í Mýrdal, f. 8. september 1763, d. 1. janúar 1840, Brynjólfssonar, og þriðju konu sr. Þórðar, Solveigar húsfreyju, f. 21. september 1797, d. 22. júlí 1874, Sveinsdóttur.
Móðir Erlendar vinnumanns og fyrri kona Sigurðar á Brekkum var Ragnhildur húsfreyja, f. 1815, d. 31. ágúst 1854, Björnsdóttir bónda í Kerlingardal í Mýrdal, f. 19. febrúar 1788, d. 29. apríl 1855, og konu Björns, Steinunnar húsfreyju, f. 1783, Þorleifsdóttur.

Móðir Björns í Gerði og barnsmóðir Erlendar var Soffía vinnukona, f. 4. desember 1845, d. 5. mars 1910, Björnsdóttir bónda í Kerlingardal, f. 1798, Árnasonar bónda í Kerlingardal, f. 1766, d. 26. júní 1840, Ásbjörnssonar, og síðari konu Árna, Arnbjargar húsfreyju, f. 1766, d. 11. ágúst 1843, Björnsdóttur.
Móðir Soffíu vinnukonu og kona Björns í Kerlingardal var Guðfinna húsfreyja, f. 1808 í Skammadal í Mýrdal, d. 28. nóvember 1887 í Fagradal þar, Bjarnadóttir bónda lengst á Reyni í Mýrdal, fór síðar í Gaulverjabæ í Flóa, f. 1767 í Kálfholti í Holtum í Rang., d. 14. nóvember 1852, Þórðarsonar prests Sveinssonar og konu sr. Þórðar, Guðfinnu Þorsteinsdóttur.

Björn var með vinnukonunni móður sinni í Norður-Hvammi í Mýrdal 1880. Tólf ára gamall var hann með henni í Skammadal þar, léttadrengur var hann á Rofunum þar 1891-92, vinnumaður á Suður-Fossi þar 1892-93, í Skammadal 1893-95, á Dyrhólum þar 1895-1901, er hann fluttist til Eyja.
Björn var útvegsbóndi í Norður-Gerði 1910 til æviloka.

Kona Björns var Jónína Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 25. júní 1887, d. 2. nóvember 1972.
Barn Björns og Jónínu Ingibjargar:
Guðjón Björnsson sjómaður, f. 10. maí 1908, d. 28. nóvember 2009.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Vestur- Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Manntöl.
  • Vestmannaeyjar — Byggð og eldgos. Guðjón Ármann Eyjólfsson. Ísafoldarprentsmiðja H.F. 1973.
  • Íslenskar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1976.
  • Heimaslóð.