Björg Brynjólfsdóttir (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júní 2015 kl. 17:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júní 2015 kl. 17:21 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Björg Brynjólfsdóttir húsfreyja í Háagarði fæddist 10. mars 1788 á Torfastöðum í Fljótshlíð og lést 6. nóvember 1853.
Foreldrar hennar voru Brynjólfur Sveinsson bóndi á Torfastöðum og kona hans Valgerður Jónsdóttir húsfreyja.

Hún var 12 ára vinnustúlka í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð 1801, 26 ára vinnukona á Gjábakka 1815, vinnukona í Kornhól 1816, ekkja í Háagarði (á Vilborgarstöðum) 1835. Hjá henni var Magnús Jónsson tengdafaðir hennar, f. 1768. Hún var gift kona í Háagarði 1840 og síðan til dd.

Björg var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (25. október 1818), var Sigurður Magnússon bóndi í Háagarði, f. 28. mars 1794, d. 10. febrúar 1833.
Börn Bjargar og Sigurðar hér:
1. Brynjólfur Sigurðsson, f. 30. janúar 1821, d. 6. febrúar 1821 úr „Barnaveiki“.
2. Valgerður Sigurðardóttir húsfreyja í Háagarði, f. 31. ágúst 1822, d. 3. febrúar 1894, kona Sveins Sveinssonar, f. 1825.
3. Sesselja Sigurðardóttir, f. 13. apríl 1826, d. 7. apríl 1826 úr „Barnaveiki“.
4. Sigurður Sigurðsson, f. 19. júlí 1827, d. 8. ágúst 1827 úr „Barnaveiki“.
5. Þorbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Miðmörk u. Eyjafjöllum, f. 20. ágúst 1832, d. 24. október 1916, kona Eyjólfs Eyjólfssonar.

II. Síðari maður Bjargar, (27. júlí 1835), var Sigurður Jónsson bóndi í Háagarði, f. 24. desember 1801, d. 21. maí 1859 í Götu.
Þau voru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.