Bjarni Vilhelmsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Bjarni Vilhelmsson.

Bjarni Vilhelmsson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður fæddist 12. apríl 1882 á Hólum í Norðfirði og fórst með m.b. Gandi NK 85 4. október 1942.
Foreldrar hans voru Vilhelm Eyjólfsson þá vinnumaður, síðar húsbóndi í Bjarnaborg, f. 10. september 1852, d. 11. febrúar 1907, og kona hans Sigríður Jónsdóttir, þá vinnukona, síðar húsfreyja í Bjarnaborg, f. 1854, d. 29. september 1909.

Bjarni var með foreldum sínumí Bjarnaborg í Norðfirði 1890, var sjómaður í Lúðvíkshúsi þar 1901, verkamaður í Nýjahúsi þar með Jósefínu konu sinni 1910, og þar var einnig Jakobína systir hennar.
Þau fluttu til Eyja frá Seyðisfirði 1911, bjuggu í Vestra-Stakkagerði 1913.
Hann eignaðist barn með Jakobínu í Eyjum 1912 og 1913.
Bjarni var sjómaður í Eyjum við skírn Huldu 1. júlí 1919, en Guðrún móðir hennar var þá húskona á Barðsnesi í Norðfirði.
Þau fluttu til Eyja, eignuðust Stefán í Birtingarholti 1920, en bjuggu á Hrafnabjörgum í lok ársins 1920. Þar fæddist Vilhelmína Sigríður 1921, en Guðfinna fæddist á Kirkjuhól 1922, en þau Guðrún bjuggu í Viðey í lok árs 1922.
Þau Bjarni fluttu með börnin til Neskaupstaðar 1923 og bjuggu þar síðan.
Þau giftu sig 1930, eignuðust 15 börn, en misstu eitt þeirra á öðru ári aldurs síns. Þau bjuggu á Tröllanesi í Neskaupstað 1925, í Fögrubrekku þar 1929, í Brennu þar 1933, í Miðhúsi þar 1936 og 1941.
Bjarni fórst með m.b. Gandi NK 85 4. október 1942. (Sjá grein Gísla Pálssonar prófessors frá Bólstað í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2001, Síðasti róðurinn).

I. Barn Bjarna Vilhelmssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur:
1. Indíana Katrín Bjarnadóttir, f. 15. ágúst 1904 á Norðfirði, d. 10. maí 1989.
II. Barn Bjarna og Guðnýjar Sólveigar Gísladóttur:
2. Gísli Bjarnason í Neskaupstað, f. 14. september 1917, d. 23. febrúar 1993.
III. Barn Bjarna og Amalíu Gísladóttur:
3. Unnur Fjóla Bjarnadóttir, f. 2. janúar 1920, d. 15. febrúar 2010.

IV. Kona Bjarna, (27. janúar 1905, skildu), var Jósefína Guðbrandsdóttir húsfreyja, síðar húsfreyja í Grindavík, f. 6. júlí 1886 á Hóli á Langanesi, d. 25. júní 1961. Foreldrar hennar voru Guðbrandur Jónsson, f. 6. júlí 1886 í Skeggjastaðarsókn í N.-Þing., d. 14. mars 1926, og kona hans Ólöf Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 1856 í Kvíabekkjarsókn í Ólafsfirði, d. 7. janúar 1909.
Þau voru barnlaus.

V. Barnsmóðir Bjarna var Jakobína Guðbrandsdóttir, f. 11. október 1893, d. 20. janúar 1969.
Börn þeirra voru:
4. Hans Einarsson Bjarnason, f. 3. maí 1912 í Stakkagerði-vestra, d. 3. október 1912 í Skuld.
5. Fanney Bjarnadóttir húsfreyja, f. 24. desember 1913 í Birtingarholti, d. 25. október 2008.

VI. Kona Bjarna, (24. janúar 1930), var Guðrún Halldórsdóttir frá Eyrarbakka, f. 7. júní 1891, d. 21. janúar 1979.
Börn þeirra:
6. Hulda Bjarnadóttir húsfreyja, matráðskona í Reykjavík, f. 5. október 1918 á Norðfirði, d. 17. janúar 2014. Fyrri maður hennar var Valdimar S. Runólfsson, fórst með Gandi NK 85. Síðari maður hennar Finnbogi Ólafsson.
7. Stefán Bjarnason sjómaður í Neskaupstað, f. 10. júlí 1920 í Birtingarholti, d. 13. apríl 1945. Kona hans Elísabet Guðnadóttir.
8. Vilhelmína Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja á Höfn í Hornafirði, f. 6. júlí 1921 á Hrafnabjörgum, d. 20. desember 2014. Maður hennar Björn Þórarinn Ásmundsson.
9. Guðfinna Bjarnadóttir húsfreyja, f. 23. desember 1922 á Kirkjuhól, d. 12. febrúar 1997. Maður hennar Jón Garðar Sigjónsson
10. Fjóla Bjarnadóttir húsfreyja í Keflavík, f. 26. mars 1924, d. 26. mars 2009. Maður hennar Haraldur Hermannsson.
11. Bjarni Bjarnason sjómaður í Hafnarfirði, f. 17. febrúar 1925 í Neskaupstað, d. 15. júní 2012. Kona hans Auður Sigurðardóttir.
12. Þuríður Bjarnadóttir, f. 3. mars 1926 í Neskaupstað, d. 26. febrúar 2015.
13. Lilja Bjarnadóttir, f. 20. apríl 1927, d. 24. júní 1928.
14. Lilja Bjarnadóttir, f. 24. ágúst 1928.
15. Ingvar Bjarnason sjómaður, verkamaður í Hafnarfirði, f. 8. september 1929, d. 10. apríl 2009. Fyrrum kona hans Aðalbjörg Björnsdóttir.
16. Olga Steinunn Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. október 1930, d. 16. október 2014. Maður hennar Stefán Runólfsson.
17. Guðrún Vibeka Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. janúar 1932, d. 31. október 2019. Maður hennar Guðbjartur Þorleifsson.
18. Kolbeinn Bjarnason, f. 18. desember 1933.
19. Halldór Bjarnason, f. 2. mars 1935, d. 28. júní 2012.
20. Þórður Bjarnason smiður, síðast í Kópavogi, f. 12. mars 1937, d. 18. júní 2018. Kona hans Arndís Ágústsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.