Bjarni Austmann Bjarnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. maí 2021 kl. 14:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. maí 2021 kl. 14:53 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bjarni Austmann Bjarnason í Götu, verkamaður fæddist 16. ágúst 1876 á Gíslastöðum í Vallaneshreppi á Héraði, S.-Múl. og lést 30. apríl 1955.
Foreldrar hans voru Bjarni Bjarnason vinnumaður, f. 1834, og Álfheiður Jónsdóttir vinnukona, f. 1845, d. 20. janúar 1886.

Bjarni var með vinnuhjúunum foreldrum sínum á Meðalnesi í N.-Múl. 1880, var 14 ára vinnumaður á Keldhólum í fæðingarsókn sinni 1890, vinnumaður í Árnagerði í Fáskrúðsfirði 1901, vinnumaður á Hóli í Breiðdal við giftingu þeirra Stefaníu.
Þau Stefanía giftu sig 1903, eignuðust 10 börn, en misstu eitt þeirra tveggja ára og annað 14 ára. Þau voru á Norðfirði 1905 og 1906 við fæðingu Þórðar og Guðrúnar, á Hóli í Breiðdal 1909 við fæðingu Ágústs, vinnuhjú á Ásunnarstöðum þar 1910, voru í Víkurgerði á Fáskrúðsfirði við fæðingu Garðars 1911, bjuggu í Gerði þar 1920, síðar í Bjarnaborg þar.
Þau fluttu til Eyja 1937 með Þórð, Andrés, Oddnýju og Garðar og voru skamma stund á Mosfelli, en á Gunnarshólma við Vestmannabraut 37 1938 með Þórði Andrési, Garðari og Alberti Sigurgeirssyni, syni Guðrúnar dóttur þeirra, og 1940 án Alberts, komin að Götu 1941 og bjuggu þar síðan.
Bjarni lést 1955. Stefanía dvaldi síðast á Hrafnistu í Reykjavík. Hún lést 1975.

I. Kona Bjarna, (7. maí 1903), var Stefanía Markúsdóttir húsfreyja, f. 28. ágúst 1884 á Þuríðarstöðum í Fljótsdal á Héraði, d. 10. apríl 1975.
Börn þeirra:
1. Þórður Bjarnason sjómaður, skósmiður, f. 5. apríl 1905 á Norðfirði, d. 31. mars 1963.
2. Guðrún Björg Austmann húsfreyja á Djúpavogi, f. 28. maí 1906 á Norðfirði, d. 16. nóvember 1946.
3. Ágúst Austmann Bjarnason bóndi á Sauðanesi í Úlfsdölum, f. 10. september 1909 á Hóli í Breiðdal, d. 21. maí 1968.
4. Garðar Bjarnason, f. 30. nóvember 1911 í Víkurgerði á Fáskrúðsfirði, d. 1. janúar 1914.
5. Oddný Guðný Bjarnadóttir fiskverkakona, síðar húsfreyja og forstöðumaður, f. 23. apríl 1914, d. 29. september 2000.
6. Andrea Bjarnadóttir, f. 1. júní 1917 í Fáskrúðsfirði, síðast í Reykjavík, d. 19. nóvember 1986.
7. Andrés Bjarnason gullsmiður í Reykjavík, f. 21. febrúar 1921 á Búðum í Fáskrúðsfirði, d. 28. apríl 2002.
9. Karl Bjarnason, f. 21. febrúar 1921 á Búðum í Fáskrúðsfirði, d. 12. júlí 1935.
10. Hansína Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík, bjó síðast í Hveragerði, f. 21. febrúar 1921 í Fáskrúðsfirði, d. 26. september 2011.
11. Garðar Björgvin Bjarnason stýrimaður, f. 28. maí 1928 á Fáskrúðsfirði, síðast í Hafnarfirði, d. 29. desember 1980.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.