Bjarnheiður Guðmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. maí 2021 kl. 17:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. maí 2021 kl. 17:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Bjarnheiður Jóna Guðmundsdóttir húsfreyja fæddist 7. nóvember 1919 á Ragnheiðarstöðum í Flóa og lést 10. ágúst 1976 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson bóndi, f. 6. janúar 1875, d. 13. febrúar 1925 og kona hans Guðný Ólöf Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. október 1878, d. 18. apríl 1962.

Þau Páll giftu sig 1933, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Brekku, í Þingholti, á Herðubreið við Heimagötu 28 og á Heiðarvegi 44.
Páll lést 1975 og Bjarnheiður 1976.

I. Maður Bjarnheiðar, (20. maí 1933), var Páll Þorbjörnsson sjómaður, skipstjóri, kaupfélagsstjóri, alþingismaður, kaupmaður, f. 7. október 1906, d. 20. febrúar 1975.
Börn þeirra:
1. Guðrún Pálsdóttir sjúkraliði, f. 23. september 1933 á Brekku, d. 25. ágúst 2013. Maður hennar Þröstur Sigtryggsson, látinn.
2. Hrafn Pálsson sjómaður stýrimaður, f. 10. mars 1935 í Þingholti, d. 22. maí 1986. Barnsmóðir hans Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir. Kona hans Johanna Nielsen.
3. Guðbjörg Pálsdóttir sjúkraliði, f. 20. júlí 1937 á Herðubreið. Fyrrum maður hennar Sturla Friðrik Þorgeirsson, látinn.
4. Arndís Pálsdóttir húsfreyja, f. 29. september 1938 á Herðubreið, d. 20. apríl 2009. Maður hennar Georg Stanley Aðalsteinsson, látinn.
5. Þorbjörn Þórðarson Pálsson framkvæmdastjóri, fasteignasali, f. 3. maí 1951. Kona hans Ester Jóhanna Antonsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.