Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. janúar 2018 kl. 11:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. janúar 2018 kl. 11:37 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson bóndi á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi fæddist 12. september 1889 í Gamlabæ (Syðri-Steinsmýri) í Meðallandi og lést 16. mars 1962 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Ingimundur Árnason sjómaður í Götu, f. 18. júlí 1859, d. 1. október 1923, og sambýliskona hans Sigurveig Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 29. september 1862, d. 29. apríl 1946.

Börn Ingimundar og Sigurveigar voru:
1. Konráð Ingimundarson sjómaður, f. 26. júní 1886 í Götu, d. 6. júlí 1957 í Reykjavík.
2. Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson bóndi á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, f. 12. september 1889 í Gamlabæ (Syðri-Steinsmýri) í Meðallandi, d. 16. mars 1962 í Reykjavík.
3. Gunnar Ingiberg Ingimundarson verkamaður í Eyjum og Reykjavík, f. 17. apríl 1894, d. 4. mars 1965.
4. Brynhildur Ingimundardóttir húsfreyja í Bakkakoti á Kjalarnesi, f. 20. maí 1897, d. 27. september 1973.

Börn Ingimundar og Pálínu Einarsdóttur og hálfbræður Bjarnfreðs:
5. Pálmi Kristinn Ingimundarson, f. 11. febrúar 1904, d. 19. apríl 1963.
6. Þórarinn Ingimundarson, f. 21. ágúst 1905 á Vilborgarstöðum, d. 1. júní 1906.
7. Enok Ingimundarson, f. 29. ágúst 1907 á Vilborgarstöðum, d. 2. júlí 1974.

Bjarnfreður var með móður sinni í Gamlabæ í Meðallandi til 1890, var á sveit á Syðri-Steinsmýri þar 1890-1891, á Efri-Steinsmýri þar og síðan vinnumaður 1891-1909, fyrirvinna þar 1909-1910, vinnumaður þar 1910-1913.
Hann var bóndi á Efri-Steinsmýri frá 1913. Þau Ingibjörg bjuggu þar uns hún lést 1945. Bjarnfreður brá búi 1946 og fluttist til Eyja. Þar dvaldi hann til 1948, en fluttist þá til Reykjavíkur og var verkamaður þar til æviloka 1962.

Kona Bjarnfreðs frá 1913, (giftust 1941), var Ingibjörg Sigurbergsdóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1893 í Fjósakoti í Meðallandi, d. 20. júlí 1945 í Reykjavík.
Börn Bjarnfreðs og Ingibjargar:
1. Björn Gísli Bjarnfreðsson bóndi í Ormskoti í Fljótshlíð, f. 24. júlí 1913, d. 30. apríl 1980.
2. Vilborg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja á Svanavatni, f. 19. júní 1915.
3. Sigurbergur Bjarnfreðsson sjómaður, f. 30. september 1916.
4. Haraldur Bjarnfreðsson sjómaður, f. 23. desember 1917.
5. Guðjón Bjarnfreðsson verkamaður í Reykjavík, f. 3. mars 1919.
6. Lárus Bjarnfreðsson málari, f. 18. maí 1920.
7. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir alþingismaður, f. 1921.
8. Jóhanna Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 27. desember 1922.
9. Ólöf Bjarfreðsdóttir sjúklingur, f. 24. júlí 1924.
10. Ingibjörg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1925.
11. Eygerður Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. janúar 1927.
12. Ármann Bjarnfreðsson bóndi í Hömluholtum í Eyjahreppi, f. 30. mars 1928.
13. Aðalsteinn Bjarnfreðsson sjómaður, f. 9. júní 1929.
14. Steindór Bjarnfreðsson sjómaður, f. 26. júní 1930.
15. Valdimar Bjarnfreðsson sjómaður, f. 16. febrúar 1931.
16. Magnús Bjarnfreðsson blaðamaður, þulur, f. 9. febrúar 1934.
17. Sveinn Andrés Bjarnfreðsson, f. 27. ágúst 1935, d. 17. janúar 1941.
18. Ólafur Bjarnfreðsson, f. 28. desember 1936.
19. Vilmundur Siggeir Bjarnfreðsson, f. 3. september 1939.
20. Þóranna Halla Bjarnfreðsdóttir, f. 7. september 1942.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.