Bjarný Guðjónsdóttir (Skjaldbreið)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. mars 2017 kl. 14:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. mars 2017 kl. 14:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Bjarný Guðjónsdóttur (Skjaldbreið) á Bjarný Guðjónsdóttir (Skjaldbreið))
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún Bjarný Guðjónsdóttir.

Guðrún Bjarný Guðjónsdóttir frá Raufarfelli u. Eyjafjöllum, húsfreyja fæddist 17. mars 1921 og lést 8. júlí 2003.
Foreldrar hennar voru Guðjón Vigfússon bóndi, f. 17. júní 1887, d. 29. mars 1932 og kona hans Þorbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 16. nóvember 1884, d. 27. janúar 1968.

Bjarný bjó nýgift með Kristni í Höfða við Hásteinsveg 1940 og þar fæddist Ásta 1942. þau voru á Skjaldbreið 1945 við fæðingu Sigfríðar. Þau byggðu húsið við Urðaveg 38 og bjuggu þar til Goss.
Eftir Gos byggðu þau við Bröttugötu 2 og bjuggu þar meðan heilsa leyfði.
Þau eignuðust fimm börn, en misstu eitt þeirra á fyrsta ári. Auk þess ólu þau upp eina dótturdóttur sína.
Kristinn lést 1984. Bjarný dvaldi síðustu árin á Sjúkrahúsinu.
Hún lést 2003.

Maður Bjarnýjar, (12. október 1940), var Kristinn Sigurðsson frá Skjaldbreið, f. 2. september 1917, d. 26. júní 1984.
Börn þeirra:
1. Ásta Kristinsdóttir, f. 8. ágúst 1942 á Hásteinsvegi 21.
2. Sigfríð Kristinsdóttir, f. 8. september 1945 á Urðavegi 36.
3. Drengur, f. 3. september 1951 á Urðavegi 38, d. 19. október 1951.
4. Jóna Björg Kristinsdóttir, f. 18. desember 1953 á Urðavegi 38.
5. Eygló Kristinsdóttir, f. 9. júlí 1959 á Urðavegi 38.
Fósturbarn þeirra var dótturdóttir þeirra
6. Guðrúnu Bjarný Ragnarsdóttur, f. 6. október 1959.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.