Björn Finnbogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. september 2019 kl. 11:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. september 2019 kl. 11:45 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þessi mynd af Birni er tekin árið 1962, tveimur árum áður en hann lést.
Lára Kristín Guðjónsdóttir og bræður Láru - Björn Guðjónsson frá Kirkjubóli t.v. og Bergur Guðjónsson t. h.

Björn Þórarinn Finnbogason fæddist á Eiríksstöðum á Seyðisfirði 7. desember 1885 og lést 4. apríl 1964. Foreldrar hans voru Rósa Eyjólfsdóttir og Finnbogi Björnsson, sem voru þá vinnuhjú á Eiríksstöðum.
Björn fluttist til Eyja með foreldrum sínum 1888.
Þau bjuggu í Nöjsomhed fyrst um sinn. Síðan fluttust þau í húsið Uppsali. Fljótlega flutti fjölskyldan að Pétursborg, en að Norðurgarði fluttust þau 1892 og þar bjuggu þau síðan.
Þar var æskuheimili Björns og fjögurra bræðra hans.
Bræður hans voru Ágúst Kristján, Stefán, Finnbogi og Árni Sigurjón.
Eftir lát móður þeirra giftist faðir þeirra aftur og eignaðist tvo syni, Jón Rósinkrans og Guðni.

Björn giftist Láru Guðjónsdóttur frá Kirkjubæ árið 1910. Reistu þau heimili sitt Kirkjuland og bjuggu þar í rúm 53 ár. Þau hjón eignuðust sex börn en eitt þeirra lést í æsku.
Börn þeirra Láru voru:
1. Ólafur Rósant húsgagnasmíðameistari, f. 5. nóvember 1910, d. 1. nóvember 1969.
2. Steingrímur Örn skipstjóri, f. 1. febrúar 1913, d. 17. september 1983.
3. Þórunn Alda húsfreyja, f. 20. apríl 1915, d. 9. desember 2012.
4. Ágúst Kristján birgðastjóri, f. 4. nóvember 1916, d. 27. ágúst 1979.
5. Hlöðver, f. 30. mars 1919, d.s.á.
6. Birna Guðný, f. 9. maí 1922, d. 5. mars 2002.

Björn hóf að stunda sjómennsku með föður sínum. Þegar Björn var 15 ára reri hann með föður sínum á áraskipinu Nýja öldin. Eigandi þess skips var Gísli J. Johnsen en Björn eignaðist síðar hluta í því.
Björn var svo formaður þess skips þar til vélbátaútgerðin hófst.
Gísli og Björn, ásamt Birni Jónssyni frá Gerði, keyptu vélbátinn Neptúnus, og var Björn Finnbogason formaður á honum til árins 1923.

Björn stundaði ekki einungis sjósókn af kappi heldur einnig fuglaveiðar, en Björn var heiðursfélagi í Bjargveiðimannafélagi Vestmannaeyja.

Björn starfaði í sóknarnefnd Landakirkju á þeim árum, þegar safnað var fyrir nýju orgeli og byggingu fordyris.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Björn:

Sjóra prýðin Boga Björn,
bundinn Kirkjulandi,
mund á víðis véla örn
veiðir undir sandi.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Björn Finnbogason

Myndir


Heimildir