„Björn Sigurðsson (Heiðarhól)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 42: Lína 42:
[[Flokkur: Íbúar við Herjólfsgötu]]
[[Flokkur: Íbúar við Herjólfsgötu]]
[[Flokkur: Íbúar við Skólaveg]]
[[Flokkur: Íbúar við Skólaveg]]
[[Flokkur: Íbúar við Urðagötu]]
[[Flokkur: Íbúar við Urðaveg]]

Útgáfa síðunnar 12. febrúar 2020 kl. 12:20

Jóhann Björn Sigurðsson útgerðarmaður frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, fæddist 8. október 1889 og lést 17. september 1972.
Foreldrar hans voru Sigurður Sveinsson bóndi á Rauðafelli, f. 10. ágúst 1851, d. 24. júní 1920, og kona hans Jakobína Steinvör Skæringsdóttir húsfreyja, f. 8. ágúst 1858, d. 8. febrúar 1917.

Börn Jakobínu og Sigurðar í Eyjum:
1. Skæringur Sigurðsson bóndi, smiður, f. 14. mars 1886, d. 27. febrúar 1973.
2. Guðlaug Sigurðardóttir húsfreyja, Bessastíg 8, f, 24. mars 1888, d. 22. mars 1983.
3. Jóhann Björn Sigurðsson útgerðarmaður, Brekastíg 16, f. 8. október 1889, d. 17. september 1972.
4. Sigurlína Sigurðardóttir verkakona, öryrki, f. 4. desember 1892, d. 8. október 1960.
5. Elín Sigurðardóttir húsfreyja, Skólavegi 25, f. 10. maí 1899, d. 7. maí 1966.
6. Árni Sveinbjörn Kjartan Sigurðsson netagerðarmaður, f. 22. október 1903, d. 13. janúar 1997.

Jóhann Björn var með foreldrum sínum á Rauðafelli í æsku og enn 1910.
Hann og Jónína Þóra fluttust til Eyja 1914.
Þau giftu sig 1915, leigðu á Garðstöðum 1915, á Rafnseyri 1917, á Geithálsi 1919 og 1920, á Hvoli 1922, í Varmadal 1924 og 1927.
Þau voru komin á Heiðarhól 1930 og bjuggu þar síðan, eignuðust 5 börn, en misstu tvö þeirra á unglingsaldri og eitt um tvítugt.
Jónína Þóra lést 1967 og Björn 1972.

Kona Björns, (17. júlí 1915), var Jónína Þóra Ásbjörnsdóttir húsfreyja f. 19. apríl 1896, d. 1. desember 1967.
Börn þeirra:
1. Rútur Eyberg Björnsson, f. 28. desember 1917 á Rafnseyri, d. 23. janúar 1938.
2. Eiríkur Björnsson vélvirki, rennismiður á Selfossi f. 20. júní 1919 á Geithálsi, d. 26. maí 2001.
3. Filippía Fanney Björnsdóttir, f. 8. desember 1920 á Geithálsi, d. 10. júní 1933 á Vífilsstöðum.
4. Sigurður Jakob Björnsson, f. 18. júlí 1922 á Hvoli, d. 4. júní 1936.
5. Ásbjörn Björnsson heildsali, forstjóri, f. 22. júlí 1924 í Varmadal, d. 22. mars 2009.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.