Birgir Þór Baldvinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Birgir Þór Baldvinsson.

Birgir Þór Baldvinsson kennari fæddist 15. janúar 1952 í Steinholti við Kirkjuveg 9a.
Foreldrar hans voru Baldvin Skæringsson frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, sjómaður, matsveinn, stýrimaður, skipstjóri, bátasmiður, f. 30. ágúst 1915, d. 24. febrúar 2006, og kona hans Þórunn Elíasdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1916, d. 29. júlí 1990.

Börn Þórunnar og Baldvins:
1. Kristín Elísa Baldvinsdóttir húsfreyja, starfsmaður Íslandspósts, f. 19. ágúst 1936 á Bala í Djúpárhreppi, d. 19. júlí 2003. Maður hennar Hörður Runólfsson.
2. Elías Baldvinsson slökkviliðsstjóri, f. 1. júní 1938 á Háarima í Djúpárhreppi, d. 16. september 2003. Kona hans Halla Guðmundsdóttir, látin.
3. Baldur Þór Baldvinsson húsasmíðameistari í Kópavogi, f. 19. júní 1941 á Staðarfelli. Fyrrum kona hans Arndís Ármann Steinþórsdóttir. Kona hans Hugrún Hlín Ingólfsdóttir, látin.
4. Kristinn Skæringur Baldvinsson húsasmíðameistari í Eyjum, f. 29. júní 1942 í Steinholti. Kona hans Sigríður Mínerva Jensdóttir.
5. Ragnar Þór Baldvinsson bifvélavirki, slökkviliðsstjóri í Eyjum, f. 31. desember 1945 í Steinholti. Kona hans Anna Jóhannsdóttir.
6. Birgir Þór Baldvinsson kennari í Reykjavík, f. 15. janúar 1952 í Steinholti. Kona hans Halldóra N. Björnsdóttir.
7. Hrefna Baldvinsdóttir húsfreyja, launafulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ, f. 23. janúar 1954 í Steinholti. Maður hennar Snorri Þ. Rútsson.
8. Baldvin Gústaf Baldvinsson sagnfræðingur, framkvæmdastjóri hjá Seagold, dótturfyrirtæki Samherja í Hull, f. 30. ágúst 1957. Kona hans Anna Gunnlaugsdóttir.
9. Hörður Baldvinsson safnstjóri Byggðasafns Vestmannaeyja, síðan framkvæmdastjóri Þekkingarsetursins, f. 25. nóvember 1961. Kona hans Bjarney Magnúsdóttir.

Birgir Þór var með foreldrum sínum, bjó hjá þeim í Steinholti og við Illugagötu 7.
Hann lauk kennaraprófi í Háskóla Íslands 1979, lauk meistaraprófi í University of Alberta í Kanada 1986.
Birgir Þór var kennari við Gagnfræðaskólann í Eyjum, Barnaskólann í Eyjum, Öskjuhlíðarskóla, Menntaskólann í Hamrahlíð og Klettaskóla í Reykjavík.
Þau Halldóra giftu sig 1990, eignuðust fjögur börn.

I. Kona Birgis Þórs, (12. apríl 1990), er Halldóra N. Björnsdóttir húsfreyja, íþróttafræðingur, framhaldsskólakennari, stjórnandi morgunleikfimi í RÚV frá 1988, f. 12. apríl 1961. Foreldrar hennar Björn Blöndal Kristmundsson skrifstofumaður í Reykjavík, f. 8. desember 1937, d. 30. janúar 2019, og kona hans Sigríður Jóna Kjartansdóttir skrifstofustjóri, f. 21. mars 1939.
Börn þeirra:
1. Kjartan Þór Birgisson verkfræðingur í Noregi, f. 30. apríl 1987. Sambýliskona hans Hrefna Gunnarsdóttir.
2. Sigríður Þóra Birgisdóttir læknir í Reykjavík, f. 27. október 1991. Sambúðarmaður hennar Óli Hörður Þórðarson.
3. Halldóra Þóra Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, f. 1. júní 1991. Sambúðarmaður hennar Jón Friðrik Helgason.
4. Kristín Þóra Birgisdóttir starfsmaður leikskóla, f. 19. nóvemebr 1998.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.