Bertha María Grímsdóttir Waagfjörð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Bertha María Grímsdóttir Waagfjörð.

Bertha María Grímsdóttir Waagfjörð í Garðhúsum, húsfreyja, kaupmaður fæddist 13. febrúar 1926 í Reykjavík og lést 12. febrúar 2022 á Hjúkrunarheimilinu Ísafold Strikinu 3 í Garðabæ.
Foreldrar hennar voru Grímur Kristrúnus Jósefsson járnsmiður, verkamaður í Kálfakotshúsi við Laugaveg í Reykjavík, f. 16. september 1891, d. 10. febrúar 1961, og kona hans Halldóra Jónsdóttir húsfreyja, f. 11. september 1885, d. 28. mars 1954.

Systir Berthu í Eyjum var
1. Jósebína Grímsdóttir húsfreyja, f. 25. nóvember 1921, d. 28. desember 1993.

Bertha var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim í Kálfakotshúsi 1930.
Hún lærði skermagerð hjá Edith Guðmundsson. Hún bjó á Njálsgötu 106 við fæðingu Halldórs 1947 og á Rauðarárstíg 3 við fæðingu Kristins 1949. Þau Jón giftu sig í Eyjum 1948 og fluttust þangað 1950, eignuðust sex börn.
Þau bjuggu í Garðhúsum við Kirkjuveg 14, fluttust í Garðabæ við Gosið 1973.
Bertha og Jón tóku við rekstri Félagsbakarísins (Vogsabakarí) og ráku til Goss 1973. Þá stofnuðu þau og ráku Skermagerð Berthu og ráku á heimili sínu í Holtsbúð 16 í Garðabæ. Bertha rak hana síðan meðan kraftar entust til 85 ára aldurs.

I. Maður Berthu, (15. maí 1948), var Jón J. Waagfjörð bakari, málarameistari frá Garðhúsum, f. 24. febrúar 1920, d. 17. september 2005.
Börn þeirra:
1. Halldór Waagfjörð vélstjóri, vélvirkjameistari, útgerðarmaður, f. 2. maí 1947 í Reykjavík. Kona hans var Ásta Þorvaldsdóttir, látin. Sambúðarkona hans Birna Ben.
2. Kristinn Waagfjörð bakari, múrarameistari í Mosfellsbæ, f. 27. nóvember 1949 í Reykjavík. Kona hans er Hjördís Sigmundsdóttir.
3. Þorvaldur Waagfjörð sjómaður, f. 3. júní 1954, d. 16. september 1979 af slysförum. Fyrrum kona hans var Sigríður Tómasdóttir.
4. Grímur Rúnar Waagfjörð rafvirki í Hafnarfirði, f. 9. apríl 1956. Kona hans er Helga Gunnarsdóttir.
5. Þorsteinn Waagfjörð vélstjóri, frystivélvirki í Garðabæ, rekur fyrirtækið Frystitækni ehf., f. 27. apríl 1962. Kona hans er Sigrún Snædal Logadóttir.
6. Rósa María Waagfjörð húsfreyja í Reykjavík, f. 29. nóvember 1966. Sambýlismaður hennar var Hreiðar H. Hreiðarsson. Unnusti Einar Ingason.
Barn Jóns fyrir hjónaband:
7. Már Viktor Jónsson bifvélavirki, f. 5. desember 1940. Kona hans var Þyrí Hólm Þorleifsdóttir, látin. Sambýliskona hans var Sonja Ólafsdóttir, látin.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Halldór Waagfjörð
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 28. febrúar 2022. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.