Bergur Elías Guðjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Bergur Elías Guðjónsson

Bergur Elías Guðjónsson fæddist 10. júní 1913 í Vestmannaeyjum. Hann lést 7. júní 2003. Foreldrar Bergs voru Margrét Símonardóttir og Guðjón Pétur Valdason. Síðari kona Guðjóns og fósturmóðir Bergs var Guðbjörg Þorsteinsdóttir.

Árið 1937 kvæntist Bergur Elías Guðrúnu Ágústsdóttur. Börn Bergs og Guðrúnar eru Ágúst, Margrét Klara og Kristín.

Bergur Elías, sem ætíð var kallaður Elli Bergur, hóf ungur störf við sjávarútveg og vann við það alla sína starfsævi. Hann gerðist útgerðarmaður, meðeigandi í Ísfélagi Vestmannaeyja og sat þar í stjórn, var verkstjóri í Stakki hf. og Ísfélagi Vestmannaeyja. Einnig var hann fjárbóndi í mörg ár með öðrum störfum.

Myndir


Heimildir

  • Morgunblaðið, 14. júní 2003. Minningargreinar um Berg Elías Guðjónsson.