Bergþóra Jónsdóttir (Mandal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Bergþóra Jónsdóttir.

Bergþóra Jónsdóttir frá Mandal, húsfreyja, fiskiðnaðarkona fæddist þar 24. ágúst 1953 og lést 13. ágúst 2012.
Foreldrar hennar Jón Ingólfsson frá Mandal, sjómaður, vélstjóri, stýrimaður, bifreiðastjóri, f. 23. september 1934 í Reykjavík, d. 24. febrúar 2000, og kona hans Halldóra Sigríður Hallbergsdóttir húsfreyja, fiskiðnaðarkona, f. 11. desember 1932 á Blómsturvöllum á Stokkseyri, d. 8. september 2016.

Börn Halldóru og Jóns:
1. Þuríður Jónsdóttir, f. 12. september 1952. Maður hennar Jóel Þór Andersen.
2. Bergþóra Jónsdóttir, f. 24. apríl 1953, d. 13. ágúst 2012. Maður hennar Óskar Veigu Óskarsson.
3. Stella Jónsdóttir, f. 31. júlí 1955, d. 24. júní 1998. Maður hennar Benóný Færseth.
4. Hallbjörg Jónsdóttir, f. 24. ágúst 1956. Maður hennar Róbert Gíslason.
5. Berglind Jónsdóttir, f. 4. janúar 1964. Maður hennar Steinar P. Jónsson.

Bergþóra var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann við fiskiðnað auk húsfreyjustarfa.
Þau Óskar giftu sig 1974, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu Skipholti við Vestmannabraut 46b í fyrstu, þá í Mandal við Njarðarstíg 18 við Gos 1973, síðan á Foldahrauni 26 og á Goðahrauni 7.
Þau fluttu til Hafnarfjarðar og bjuggu þar síðast við Suðurbraut 24.
Bergþóra lést 2012.
Óskar býr nú á Hverfisgötu 93 í Reykjavík.

I. Maður Bergþóru, (12. apríl 1974), er Óskar Veigu Óskarsson frá Hrafnabjörgum, rafvirki, fiskimatsmaður, verkstjóri, framleiðslustjóri, sölustjóri, f. þar 18. september 1950.
Börn þeirra:
1. Jóna Dóra Óskarsdóttir húsfreyja, f. 12. apríl 1972. Maður hennar Óskar Rúnar Harðarson.
2. Sigþór Óskarsson rafeindavirki, f. 27. september 1974. Kona hans Jariya Tuanjit.
3. Maren Óskarsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 18. september 1979. Fyrrum maður hennar Valdimar Kristjánsson. Maður hennar Viðar Örn Eðvarðsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 25. ágúst 2012. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.