Berent Sigurhansson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Berent Sigurhansson sjómaður, vélsmiður fæddist 24. mars 1900 í Stóru-Mörk u. V-Eyjafjöllum og lést 24. desember 1922.
Foreldrar hans voru Sigurhans Ólafsson bóndi í Gerðakoti u. Fjöllunum, síðar verkamaður í Eyjum, f. 12. september 1861 í Stóru-Mörk, d. 26. september 1931, og kona hans Dóróthea Sveinsdóttir húsfreyja, f. 30. október 1864 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 5. mars 1941.

Börn Sigurhans og Dórótheu í Eyjum:
1. Ólafur Ágúst Sigurhansson sjómaður, f. 27. ágúst 1888, drukknaði 14. janúar 1915.
2. Sveinn Sigurhansson vélstjóri, múrari, f. 21. júní 1902, d. 6. desember 1963.
3. Þorbjörg Sigurhansdóttir ráðskona, f. 21. mars 1894, d. 4. mars 1964.
4. Þorbjörn Sigurhansson sjómaður, f. 7. febrúar 1896, d. 13. ágúst 1981.
5. Tómas Karl Sigurhansson skósmiður, f. 21. janúar 1898, d. 24. janúar 1987.
5. Berent Sigurhansson smiður, f. 24. mars 1900, d. 24. desember 1922.
6. Óskar Sigurhansson vélsmiður, f. 29. apríl 1902, d. 1. apríl 1979.
7. Aðalsteinn Sigurhansson sjómaður, f. 27. nóvember 1903, drukknaði 23. janúar 1927.

Berent var með foreldrum sínum í Stóru-Mörk 1901, í Gerðakoti 1910 og fluttist með þeim að Bræðraborg 1911, var vinnumaður í Sólnesi 1918 og 1919, lærlingur þar hjá Thomas Thomsen 1920, var í Steinum við andlát 1922.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.