Barnaskólinn í Vestmannaeyjum 1880-1930/Barnaskólinn/Gjörðabók/Gjörðabók fyrir skólanefndina í Vestmannaeyja skólahéraði 1909-1932 texti bls. 31-40

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Bls. 31


fallast á þá launahækkun fyrir næstkomandi skólatímabil.
5. Sökum þess að kennari Magnús Kristjánsson hafði tjáð sig ófáanlegan til að kenna framvegis leikfimi við skólann, ályktaði nefndin að ráða til þess starfa Magnús Stefánsson á Hofi, þar sem hún telur hann hæfan til þess og er eftir sögu formanns nefndarinnar einnig fáanlegur til þess.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.


Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson
Sveinn P. Scheving Jes A. Gíslason


Ár 1913, mánudaginn 1. september átti skólanefnd Vestmannaeyjaskólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði kl. 6 e. h. Allir nefndarmenn mættu.

Var þá tekið fyrir:

1. Jónína Guðnadóttir í Haga sem næstl. skólatímabil hafði á hendi ræstingu skólans, hafði sent nefndinni umsókn um þann starfa um skólatímabilið 1913-1914 með sömu kjörum og næstl. skólatímabil, semsje að borgunin fyrir verkið sé 110 kr., þá að því áskildu að hún væri laus við hreinsun á leikfimishúsinu eftir almenna fundi og ungmennasamkomur, nema fyrir sérstaka borgun. Nefndin ályktaði að ganga að þessum kostum.

Ýmislegt fleira kom til tals sem ekki þótti ástæða til að bókfæra.
Fundi svo slitið.
Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Jes A. Gíslason
St. Sigurðsson Sveinn P. Scheving.


Bls. 32


Ár 1913, mánudaginn hinn 13. október átti skólanefnd Vestmanneyjaskólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði. Allir nefndarmenn mættu á fundinum.

Var þá:

1. Formaður skýrði frá því að Magnús Stefánsson á Hofi sem ráðinn hafði verið til að kenna leikfimi við skólann, hefði brotið loforð sitt í því efni og tjáð sig ófáanlegan til að gefa sig við þeirri kennslu. Þessvegna var fyrverandi leikfimiskennari Magnús Kristjánsson, sem boðaður var á fundinn og mætti á honum, ráðinn til að kenna leikfimi á yfirstandandi skólatímabili 3 tíma í viku og tjáði hann sig fáanlegan til að takast það á hendur vegna ítrekaðra tilmæla skólanefndarinnar, jafnvel þó honum væri það ógeðfellt eins og hann hefði áður tjáð nefndinni.
2. Lagt var fram brjef frá skólastjóra Steini Sigurðssyni, þar sem hann skýrir frá að beðið hafi verið um skólahúsið til veisluhalds fyrir foringja varðskipsins „ Islands Falk“, og að hann vilji ekki „leysa upp skólann“ í því skyni, þar sem gert sé ráð fyrir að það verði í 2 daga, nema með samþykki skólanefndarinnar og æskir hann svars hennar um það. Nefndin ályktaði að veita samþykki sitt til þess að skólahúsið yrði léð í þessu augnamiði, en leit svo á að ef til þessa veisluhalds þyrfti tveggja daga „frí“ í skólanum, yrði annars dags „fríið“ notað sem venjulegt „mánaðarfrí“.
3. Fyrir yfirstandandi skólatímabil var kosinn formaður skólanefndarinnar Sigurður Sigurfinnsson og skrifari hennar Árni Filippusson.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.
Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Jes A. Gíslason
Sveinn P. Scheving Brynj. Sigfússon


Bls. 33


Ár 1914, föstudaginn hinn 20. mars átti skólanefnd Vestmannaeyja skólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði. Allir nefndarmenn mættu á fundinum.

Var þá

1. Lagðar fram, yfirskoðaðar og undirskrifaðar hinar fyrirskipuðu skýrslur um skóla hjeraðsins fyrir næstl. skólatímabil.
2. Lagður fram reikningur yfir band og aðgerð á bókum skólabókasafnsins og samþykkti skólanefndin að mæla fram með því við hreppsnefndina, að reikningurinn sem er að upphæð 11 kr. 50 a, yrði greiddur úr hreppsjóði.
3. Formaður skólanefndarinnar lagði fram brjef dags. 18. þ. m. til skólanefndarinnar í Vestmannaeyjum frá Magnúsi Kristjánssyni, einum af kennurum skólans. Efni brjefsins það, að nefndur kennari ber fram við skólanefndina ýmis kæruatriði gegn formanni skólans Steini Sigurðssyni t.d. að Steinn Sigurðsson hafi, að því er Magnúsi Kristjánssyni virtist, látið fá tækifæri ónotuð til að veikja álit hans (Magnúsar) á ýmsan hátt bæði við skólanefndina og börnin, að samvinna skólastjóra og undirkennara hafi verið svo slæm, að ekki virðist vanþörf á, að skólanefndin grennslist eftir orsökum þess, að honum (Magnúsi) virðist allmargt athugavert við daglegt eftirlit og stjórn skólans, jafnvel svo að sum fyrirmæli fræðslulaganna eru að vettugi virt,óskar Magnús að gefa munnlegar upplýsingar þessu viðvíkjandi, þegar skólanefndin tæki þetta til athugunar, kveðst Magnús að síðustu þess einráðinn að snúa sér til fræðslumálastjórans og lýsa ýtarlega fyrir honum ástandi skólans, ef skólanefndin láti þetta ekki til sín taka.
Um brjef þetta urðu talsverðar umræður í skólanefndinni, en hún sá sér ekki fært að svo stöddu að taka nokkra aðra ákvörðun en þá, að kalla á fund með sér á nálægum tíma, þrjá af aðalkennurum skólans þá Stein Sigurðsson, Magnús Kristjánsson og Ágúst Árnason, til þess að komast eftir því hvort eða á hve miklum rökum fyrrnefnt kærubréf væri byggt.

Fleira fjell ekki fyrir fundinn. Fundi slitið.
Sigurður Sigurfinnsson Sveinn P. Scheving Jes A. Gíslason
Br. Sigfússon Árni Filippusson


Bls. 34


Ár 1914, sunnudaginn 29. mars, átti skólanefnd Vestmannaeyja skólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði samkvæmt fundarboði formanns skólanefndarinnar.

Á fundinum voru mættir allir skólanefndarmennirnir og auk þeirra þrír af kennurum skólans, þeir Steinn Sigurðsson, Magnús Kristjánsson og Ágúst Árnason sem einnig höfðu verið boðaðir á fundinn.
Tilefni fundarins var kærubréf það frá einum kennara skólans, Magnúsi Kristjánssyni gegn skólastjóra Steini Sigurðssyni sbr. fundargerð næst á undan 20 s. m. þar sem einnig er lýst aðalinnihaldi þessa kærubréfs.
Formaður skólanefndarinnar las í fundarbyrjun upp kærubréfið og gaf því næst kennurum skólans viðstöddum kost á að gefa þær skýringar, sem málum gæti að gagni orðið. Tók skólastjóri fyrst til máls og kvað kæruna ástæðulausa og koma sér öldungis að óvörum, en var tregur að gefa skýringar. Tók því næst til máls kennarinn Magnús Kristjánsson, skýrði kæruskjalið, gaf ýmsar nýjar skýringar og bar ákaft sakir á skólasstjóra, einnig tók Ágúst kennari Árnason til máls og virðist styrkja umsögn Magnúsar í þeim atriðum sem mest skiptu máli.

Óskaði nefndin því næst ýtarlegri skýringa eða andsvara frá skólastjóra, en hann kvað sig ófáanlegan til þess og sömuleiðis til þess að dvelja lengur á fundi og vék hann því næst með skyndi af fundi. Ræddi nefndin því næst nokkra hríð málið við þá tvo kennara, sem eftir voru og leitaði frekari skýringa um mál þetta, véku þeir síðan af fundi og ræddi nefndin því næst málið sín sín á milli ýmsa vegu og skoðaði það frá ýmsum hliðum. Nefndinni duldist það ekki að samkomulaginu milli skólastjóra og kennara væri verulega ábótavant, svo illt að væri slíkt látið afskiftalaust, hlyti það að verða skólanum til hnekkis á ýmsan veg. Kom það fram í umræðum nefndarinnar, að álag það sem á væri komið yrði að öllum líkindum ekki lagfært á annan veg en með uppsögn tveggja kennaranna að minnsta kosti, þeirra Steins Sigurðssonar skólastjóra og Magnúsar Kristjánssonar undirkennara og ályktaði nefndin því einhuga, að segja þessum tveim kennurum þeim skólastjóra Steini Sigurðssyni og kennara Magnúsi Kristjánssyni, upp stöðu þeirra við barna


Bls. 35


skólann í Vestmannaeyjaskólahjeraði svo snemma, að það kæmi ekki á bága við kennslusamninga þeirra við skólann og var formanni falið að tilkynna þessum kennurum uppsögnina skriflega. Jafnframt var formanni skólanefndarinnar falið að auglýsa eftir skólastjóra í skólablaðinu og einhverju öðru víðlesnu blaði og skyldi það gjört hið allra fyrsta, en hinsvegar fannst nefndinni ekki ástæða til að auglýsa eftir undirkennara, með því að nefndinni barst munnlegt tilboð frá kennara í þá stöðu, sem ekki var ástæða til að hafna að svo stöddu.
Lagðir voru fram reikningar skólans fyrir síðastliðið ár, þeir endurskoðaðir af skólanefndinni og undirskrifaðir af nefndarmönnum athugasemdalaust.

Fleira fjell ekki fyrir fundinn. Fundi slitið.
Sigurður Sigurfinnsson Jes A. Gíslason
Sveinn P. Scheving Árni Filippusson Br. Sigfússon


Mánudaginn 20. apríl árið 1914 átti skólanefnd Vestmannaeyjaskólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði.

Var þar og þá tekið fyrir.

1. Formaður las upp uppsagnir á kennarastörfum við barnaskólann hér, frá þeim Steini Sigurðssyni, uppsögnin dags. 29. f. m. og Magnúsi Kristjánssyni, uppsögnin dags. 30. f. m. Jafnframt lýsti formaður yfir því að yfirkennarastaðan væri auglýst í Lögréttu og hefði hann einnig sent skólablaðinu samskonar auglýsingu til birtingar.
2. Las formaður upp brjef frá Steini Sigurðssyni dags. 11. og 13. þ. m. til skólanefndarinnar. Efni brjefanna var, auk smávægilegra aðfinnsla til skólanefndarinnar, voru gegn kærubréfi Magnúsar Kristjánssonar gegn Steini, dags. 18. f. m. sbr. fundargerð 20 f. m. og munnlegum kæruatriðum sama kennara á hendur sama á skólanefndarfundi 29 f. m. Fylgdu bréfinu þrjú vottorð, frá þeim Sigurjóni Högnasyni fyrrum kennara og Högna Sigurðssyni fyrrum kennara og Eiríki Hjálmarssyni núverandi kennara við skólann hjer.

Um brjef þetta urðu nokkrar umræður meðal


Bls. 36


nefndarmanna og áleit nefndin, að brjefið hefði fátt nýtt til brunns að bera og þar gengið framhjá mikilsvarðandi atriðum, sem meðkennarar hans hafa borið á hinn kærða um samvinnuna í skólanum, auk þess sem brjefið hefur bersýnilegar ýkjur inni að halda.
Enda þótt Steinn Sigurðsson hafi með uppsögninni dags. 29. f. m., sagt af sér kennslustarfinu við barnaskólann, sem hann svo tekur aftur í bréfinu dags. 11. þ. m., þá áleit nefndin réttara að tilkynna Steini Sigurðssyni kennara uppsögn þá skriflega, sem hún einhuga hafði komið sér saman um á nefndarfundi 29. f. m. og var formanni nefndarinnar falið að gera það sem fyrst eða svo snemma að það komi í tæka tíð til hlutaðeiganda.

Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.
Sigurður Sigurfinnsson Jes A. Gíslason
Sveinn P. Scheving Árni Filippusson Br. Sigfússon


Miðvikudaginn 1. júlí 1914 átti skólanefnd Vestmannaeyjskólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði. Tilefni fundarins: Að veita skólastjórastarfan við Barnaskólann í Vestmannaeyjum, sem auglýstur hafði verið í Skólablaðinu og Lögrjettu (í maímánuði og apríl)
Umsóknir höfðu nefndinni borist frá þessum:
1. Einari Loptssyni p. t. Vestmannaeyjum, ódagsett og óstaðsett.
2. Agli Hallgrímssyni, Minni-Vogum í Nesjum, dags. 6/6 ´14
3. Birni Jóhannssyni, Skarði í Suður-Þingeyjarsýslu, dags. 20/6 ´14
4. Jónasi Magnússyni, Patreksfirði, dags. 22/5 ´14
5. Jóhannesi Friðlaugssyni, Bolungavík, dags. 20/6 ´14
6. Birni H. Jónssyni, Askov, dags. 20/4 ´14
7. Jóhanni Einarssyni, Statens Lærerhöjskole Kbhn., 4/6 ´14
8. Einari G. Þórðarsyni, p. t. Vestmannaeyjum, dags. 19/5 ´14
Umsóknarbrjef allra umsækjendanna voru lesin upp ásamt meðfylgjandi vottorðum og meðmælendum. Var síðan gengið til atkvæða um umsækjendur og hlaut umsækjandinn Björn H. Jónsson í Askov atkvæði allra nefndarmannanna og var samþykkt að fela formanni skólanefndarinnar að tilkynna Birni veitinguna sem allra fyrst með símskeyti og var símskeytið tekið saman á fundinum.


Bls. 37


Ennfremur tók nefndin til meðferðar umsókn Jónínu G. Þórhallsdóttur um kennarastöðu við barnaskólann í stað hins fráfarna kennara Magnúsar Kristjánssonar. Umsóknarbrjefið sem er dagsett 11. apríl þ. á., var lesið upp á fundinum ásamt prófskírteini. Með samþykki skólanefndarinnar að meiri hluta, var henni veittur starfi sá við barnaskólann sem hún hefur sótt um.
Fleira fjell ekki fyrir fundinn. Fundi slitið.
Sigurður Sigurfinnsson Jes A. Gíslason
Árni Filippusson Sveinn P. Scheving Brynj.Sigfússon


Miðvikudaginn 31. ágúst 1914 átti skólanefndin í Vestmannaeyjaskólahjeraði fund með sjer að Ásgarði.
Allir skólanefndarmenn mættir.

Formaður skólanefndarinnar lýsti yfir því, að hreppsnefndin hefði á nýafstöðnum fundi samþykkt 100 kr. launaviðbót fyrir kennslu í 2. bekk skólans. Lagt fram brjef frá umsjónarmanni fræðslumálanna sem tilkynnir 600 kr. kennslustyrk, veittur barnaskólanum fyrir síðastliðinn vetur.
Formaður skýrði frá því, að hann hefði ráðið Berg Jónsson í Stafholti til að sjá um ræstingu salerna næstkomandi skólaár.
Lögð fram umsókn frá Helgu Halldórsdóttur í Godthaab dags. 14. júlí þ. á. um hreinsun og hirðingu á barnaskólanum næsta skólaár með sömu kjörum og að undanförnu og samþykkti skólanefndin að veita umsækjanda starfa þennan með 120 kr. launum um skólaárið 1914-1915.

Á fundinum var lagt fram brjef frá bakara Johan Sörensen hér, um undanþágubeiðni frá skólaskyldu fyrir stúlkuna Halldóru V. Sörensen. Undanþágan var veitt með venjulegu skilyrði.
Söngkennari með sömu kjörum og sama fyrirkomulagi og síðasta skólaár, var ráðinn organisti Brynjólfur Sigfússon.
Á fundinum var mættur skólastjórinn, Björn H. Jónsson og lagði hann fram fyrir nefndina stundaskrár fyrir skólann og hafði nefndin ekkert við þær skrár að


Bls. 38


athuga.

Fleira fjell ekki fyrir fundinn. Fundi slitið.
Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Jes A. Gíslason
Sveinn P. Scheving Brynj. Sigfússon


Sunnudaginn 18. apríl 1915 átti skólanefnd Vestmannaeyjaskólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði.
Allir nefndarmenn mættir.
Þar gjörðist þetta:
Lagður fram reikningur barnaskólans fyrir árið 1914-1915. Var reikningurinn athugaður og endurskoðaður á fundinum og fannst ekkert athugavert við hann.
Lagðar fram, yfirskoðaðar og undirskrifaðar hinar fyrirskipuðu skýrslur skólans fyrir síðastliðið skólatímabil (í tvennu lagi).

Leitað var hófanna hjá organista Brynjólfi Sigfússyni um það, hvort hann mundi fáanlegur til að taka að sér söngkennslu við skólann næstkomandi skólaár og taldi hann ekki vandkvæði á því ef sérstakt tímaleysi hamlaði ekki.
Var því næst til umræðu bygging nýs skólahúss. Nefndin var sammála um það, að hjá því yrði ekki til lengdar komist að reist yrði nýtt skólahús, á það benti meðal annars barnafjölgun héraðsins, nauðsynlegt væri því að byrja á undirbúningi þeirrar byggingar: fá lóð undir húsið og viða að byggingunni á komanda sumri því að fyrirsjáanlegt væri að húsið yrði ekki nothæft sama árið og það væri byggt. Eftir nokkrar umræður kom fram svolátandi tillaga, samþykkt í einu hljóði:

Skólanefndin ályktar að fela formanni sínum að mæla út og afmarkaða nægilega stóra lóð fyrir skólahús og því tilheyrandi leikvöll og að skora á hreppsnefnd Vestmannaeyjahrepps að útvega efni, verkamenn og áhöld, eftir því sem kringumstæður framast leyfa, til þess að byrjað verði á skólahúsbyggingunni á næstkomandi sumri.

Var því næst kosinn fyrir næsta skólaár, Sigurður Sigurfinnsson formaður og Árni Filippuson ritari
skólanefndarinnar.
Fleira fjell ekki fyrir. Fundi slitið.
Sigurður Sigurfinnsson Sveinn P. Scheving Árni Filippusson
Br. Sigfússon Jes A. Gíslason


Bls. 39


Föstudaginn 18. júní 1915 átti skólanefnd Vestmannaeyjaskólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði.
Allir nefndarmenn mættu.

Tilefni fundarins var brjef frá yfirkennara Birni H. Jónssyni, þar sem hann skýrir frá því, að kennslukona skólans Jónína Þórhallsdóttir muni ekki getað tekið að sér kennslustörf við skólann næsta skólaár. Býðst hann til að útvega skólanum kennara í hennar stað, ef skólanefndin vilji ekki gefa henni eftir starfann, annars felur hann nefndinni að ráða sjálf fram úr þessu máli. Brjefið dags. 3. júní 1915.
Skólanefndinni barst umsókn um kennslustarfið frá Guðnýju Jónsdóttur frá Galtafelli, dags. í Reykjavík 12. júní 1915.

Eptir nokkrar umræður um það, hvort fela skyldi yfirkennara Birni að ráða kennara í stað Jónínu eða að auglýsa starfann lausan í blöðunum, varð það samþykkt af meirihluta nefndarmanna að fela Birni að útvega kennara í stað Jónínu og skuli það jafnframt tekið fram, að sá kennari sé fær um að kenna leikfimi við skólann sem og að gegni öllum sömu kennslustörfum og Jónína og að launakjörin séu hin sömu og að ráðningin sé ekki nema til eins árs.

Lagt var fram bréf og „riss“ af nýrri skólahúss byggingu frá Einari Erlendssyni í Reykjavík. Óskar hann sem fyrst umsagnar skólanefndarinnar, svo að gera mætti ýtarlegri uppdrátt af fyrirhugaðri skólahúss byggingu. Nefndinni fannst ekki fært að taka mál þetta til meðferðar að þessu sinni með því að það væri enn í höndum hreppsnefndarinnar.
Formaður skýrði frá því að búið væri að fá útmælda lóð undir fyrirhugaða skólahússbyggingu, 1 vallardagslátta að stærð, norður og vestur af kirkjunni.
Fleira fjell ekki fyrir fundinn. Fundi slitið.
Sigurður Sigurfinnsson Árni Filippusson Jes A. Gíslason.
Sveinn P. Scheving Brynjólfur Sigfússon.
Svarað bréfi Bjarnar 20.06.´15.


Bls. 40


Miðvikudaginn 1. september 1915 átti skólanefnd Vestmannaeyjaskólahjeraðs fund með sjer að Ásgarði.

Allir nefndarmenn mættir og auk þess skólastjóri Björn H. Jónsson.

Verkefni fundarins var að ræða um og ráða fram úr vandræðum sem stafa af þrengslum í barnaskólanum með því að við skólasetninguna þennan sama dag, kom það í ljós, að algerlega vantaði rúm fyrir yfir 20 börn, sem gefið höfðu sig fram sem nemendur skólans hið nýbyrjaða skólaár og var þó gert ráð fyrir að tvísett væri í skólann.
Urðu nokkrar umræður um þetta efni og meðal annars minnst á, að fá kjallararúm leigt til kennslu, sem ekki var ófáanlegt, en þurfti þó talsverðara umbóta. Nefndin áleit að ýmsir meinbugir væru þar á, meðal annars, að ekki væri hægt að tryggja húseiganda nægilega húsaleigu og því síður að gerlegt væri að ráða kennara til þess starfa, með því að húsrúmið reyndist ekki nema fyrir 9 börn. Þar á móti gerði skólastjóri Björn H. Jónsson nefndinni það tilboð, að kenna fyrrnefndum börnum tveggja mánaða tíma, að skólatímanum loknum (mars og apríl) gegn því loforði, að hann fengi ókeypis húsnæði í skólanum til kennslunnar ásamt ræstingu og hita. Nefndin tók feginsamlega þessu tilboði skólastjóra og mælti eindregið með því að hreppsnefndin (annaðist- eða) borgaði ræstinguna og hitann.
Af sérstökum ástæðum var fundinum frestað þangað til kl. 8 1/2 e. h. næsta dag.
Að kveldi hins 2. september var fundinum haldið áfram á tilteknum tíma og stað og þar lagt fram brjef frá þremur kennurum skólans, þeim Birni H. Jónssyni, Ágústi Árnasyni og Eiríki Hjálmarssyni, þess efnis að þeir fara fram á 200 kr. launahækkun hver á yfirstandandi skólaári sökum ríkjandi dýrtíðar hækkunar á öllum nauðsynjum lífsins. Brjefið dags. 1. sept. þ. á. og stílað til skólanefndar Vestmannaeyja.
Eptir nokkrar umræður kom nefndin sjer saman um það, að verða við þeim tilmælum nefndra kennara að hækka laun þeirra hvers um sig um 200 krónur fyrir yfirstandandi skólaár.

Formaður skólanefndarinnar skýrði frá því, að