Barnaskólinn í Vestmannaeyjum 1880-1930/Barnaskólinn/Gjörðabók/Gjörðabók fyrir skólanefndina í Vestmannaeyja skólahéraði 1909-1932 texti bls. 141-150

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. maí 2017 kl. 14:03 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. maí 2017 kl. 14:03 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) (Ný síða: Ár 1930, þriðjudaginn 22. júlí var fundur settur í skólanefnd Vestmannaeyja að Ásgarði. Allir nefndarmenn eru mættir, að undanteknum Jóh. Þ. Jósefssyni, sem er veik...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ár 1930, þriðjudaginn 22. júlí var fundur settur í skólanefnd Vestmannaeyja að Ásgarði.

  Allir nefndarmenn eru mættir, að undanteknum Jóh. Þ. Jósefssyni, sem  er veikur.  Viðstaddur er Páll Bjarnason skólastjóri.
    Tekið var fyrir.

Lagðar fram prófskýrslur barnaskólans, unglingaskólans og aðventistaskólans 1930. Lagðar fram umsóknir þessara settu kennara, Jes A. Gíslasonar, Friðriks Jessonar , Ársæls Sigurðssonar, Arnbjörns Sigurgeirssonar um að fá meðmæli nefndarinnar með því að þeir verði skipaðir. Nefndin samþykkir að veita öllum umsækjendum meðmæli sín. Lagt var fram erindi hjeraðslæknisins um salerni barnaskólans og frárennsli svo og um þvaghús og for ???. Nefndin felur formanni sínum að sjá um í samráði við skólastjóra að láta gera nauðsynlegar ráðstafanir til bráðabirgðarendurbóta á salernum barnaskólans og að koma upp þvaghúsi og sje notuð fjárveiting sú sem fyrir hendi er í þessu skyni. Nefndin tekur undir það með hjeraðslækni að æskilegt sje að holræsi verði lagt frá skólanum og vatnssalernum eða rotþró komið þar upp ef fært þykir. Leggur nefndin til við bæjarstjóra að þetta sje athugað og rannsakað til hlítar sem fyrst, svo að framkvæmdir getið orðið ? Nefndin fól formanni að láta gera nauðsynlegar viðgerðir á gluggum gamla skólahússins og láta kítta rúður, þar sem þörf teldist og sömuleiðis endurbæta stiga í eldra húsinu. Sömuleiðis fól nefndin formanni að útvega 2 borð í kennslustofu og 20 stóla og láta setja þar fastan skáp. Ennfremur láta setja hemla á tvær hurðir.

??? Fundi slitið.

Árni Filippusson Kr. Linnet

Sigurjón Árnason P.V.G.Kolka Páll Bjarnason











Ár 1930, miðvikudaginn 13. ágúst, kl. 8. e. h. var fundur haldinn í skólanefnd Vestmannaeyja að Ásgarði. Mættir voru auk formanns nefndarmennirnir Sigurjón Árnason og P. V. G. Kolka, hinir voru fjarverandi vegna sjúkleika.

  Var þar fyrir tekið:

Lagt fram brjef frá bæjarstjóra, dags. 2. ágúst 1930, þar sem skólanefnd er tilkynnt, að bæjarstjóri hafi samþykkt að fela nefndinni umsjón með stofnun og rekstri gagnfræðaskóla í Vestmannaeyjum.

  Nefndin tekur stofnun gagnfræðaskóla til athugunar, gerandi ráð fyrir því, að kennslumálaráðuneytið staðfesti þessa samþykkt bæjarstjórnar.  Henni þykir ekki tiltækilegt að koma stofnun slíks skóla til fullkominna framkvæmda að sumri til, vegna þess hve fyrirvari er naumur, en vill haga kennslu í unglingaskólanum þannig, að hún geti jafngilt því sem kennt muni í 1. bekk gagnfræðaskólans, svo að þeir nemendur, sem næsta vetur verða í unglingaskólanum, geti haft rjett til að setjast í 2. bekk gagnfræðaskólans.  Að öðru leyti verði unglingaskólinn rekinn á svipaðan hátt og verið hefur og leggur nefndin til að Þorst. Þ. Víglundsson verði ráðinn aftur kennari við hann fyrir næsta kennsluár eins og að undanförnu.  Nefndin felur formanni sínum, að bera tillögur þessar fram við kennslumálastjórnina.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Sigurjón Árnason

P. V. G. Kolka










Ár 1930, föstudaginn 5. september, var haldinn fundur í skólanefnd Vestmannaeyjakaupstaðar í Ásgarði. Mættir voru auk formanns Árna Filippussonar, nefndarmennirnir Kr. Linnet, síra Sigurjón Árnason og P. V. G. Kolka.

      Var þar og þá tekið fyrir.

1. Stofnun væntanlegs gagnfræðaskóla. Kennslumálaráðherra hafði tilkynnt formanni nefndarinnar í símtali, að ekki myndi verða gerð undanþága frá því að láta slíkan skóla taka til starfa nú þegar. Nefndin ákveður að gagnfræðaskóli Vestmannaeyja skuli stofnast og taka til starfa 1. október. Tekur þá 1. bekkur skólans til starfa, og 2. og 3. bekkur einnig, ef nægir nemendur fást í þá, sem náð hafa því mentunarstigi, sem krefjast verður. Nefndin álítur altof nauman tíma til að auglýsa skólastjórastöðuna lausa fyrir veturinn og leggur því til að Þorst. Þ. Víglundsson verði settur skólastjóri í vetur.

Nefndin ákveður laun hans til að byrja með kr. 3000.00 og dýrtíðaruppbót að auki.  Launin hækka eftir því sem síðar verður ákveðið.
  Nefndin semur ekki reglugerð fyrir skólann að svo komnu, þar eð hún hefur farið fram á við fræðslumálastjórnina að fá uppkast að slíkri reglugerð, svo samræmi verði milli þessa skóla og annara samskonar skóla á landinu.

Fleira ekki fyrir tekið. Fundi slitið.

Árni Filippusson Kr. Linnet

Sigurjón Árnason P. V. G. Kolka












Ár 1930, fimtudaginn 25. október kl. 6 ½ , var fundur haldinn í skólanefnd Vestmannaeyja að Ásgarði. Mættir voru allir nefndarmennirnir og auk þess skólastjórarnir Páll Bjarnason og Þorst. Þ. Víglundsson ásamt Sveinbirni Gíslasyni byggingarfulltrúa.

Var þar og þá tekið fyrir: 1. Umsóknir um undanþágu frá skólagöngu skólaskyldra barna. Þær höfðu borist frá 23 börnum úr söfnuði aðventista, sem tilkynnti, að þau myndu fá skólagöngu í sérskóla aðventista, með sama kennara og síðastliðið ár, Sigfúsi Hallgrímssyni. Nefndin samþykkti að veita undanþágu þessa, gegn því að börnin njóti kennslu í þessum sjerskóla. Ennfremur var sótt um, undanþágu fyrir 3 börn úr þjóðkirkjusöfnuðinum, sem sjé Aðalheiði Fanney Ármannsdóttur í Þorlaugargerði, 8 ára, Sigurð Þóri Ágústssyni á Melstað, sem verður 8 ára í desember nk., og Guðbjörg Höllu Gísladóttur í Arnarnesi, 8 ára. Nefndin samþykkir að veita þessar undanþágur, með því skilyrði, að börnin njóti kennslu í vetur í heimahúsum og komi til prófs næsta vor. 2. Lagt fram skeyti frá fræðslumálastjóra, dags. 17. þ. m. og viðbótarskeyti, dags. 20. s. m., um það, að útvarp í fræðsluskyni fyrir barnaskóla fari fram þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 9.10 til kl. 9.40. Skólanefnd samþykkir að leita samþykkis bæjarstjórnar til að kaupa vönduð viðtökutæki, helst með tveim gjallarhornum, aðra fyrir barnaskólann og hina fyrir gagnfræðaskólann. 3. Nefndin samþykkir að lána eftir því sem haft er húsrúm fyrir iðnaðarnámskeið í sambandi við gagnfræðaskólann skv. 14. gr. laga nr. 48 frá 19. maí 1930, og heimilar skólastjóra Þorst. Þ. Víglundssyni að halda kvöldskóla þar ef húsrúm leyfir.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Kr. Linnet

Þorst. Þ . Víglundsson P. V. G. Kolka Sigurjón Árnason










Ár 1930, fimmtudaginn 20. nóvember kl. 6 eh. var haldinn fundur í skólanefnd Vestmannaeyja í Ásgarði.

Mættir voru þessir nefndarmenn:  Árni Filippusson, Páll V. G. Kolka og Sigurjón Árnason,  Kr. Linnet og auk þeirra Þorst. Víglundsson skólastjóri.

Var þar og þá tekið fyrir: 1. Fjárhagsætlun fyrir árið 1931 vegna barnaskólans. Formaður lagði fram uppkast að þessari áætlun sem var samþykkt. 2. Fjárhagsætlun fyrir gagnfræðaskólann sama ár. Einnig samþykkt. 3. Ákveðið að taka engin skólagjöld af nemendum gagnfræðaskólans. 4. Kaup fyrir tímakennslu ákveðið kr. 2.50


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.


Árni Filippusson Kr. Linnet Sigurjón Árnason

Þorst. Þ. Víglundsson P. V. G. Kolka















Árið 1931, fimmtudaginn 26. febrúar kl. 10 fh. var haldinn fundur í skólanefnd Vestmannaeyja í Ásgarði. Mættir voru þessir nefndarmenn: Árni Filippusson, Páll V. G. Kolka, Sigurjón Árnason, Kr. Linnet. Auk þeirra viðstaddir hjeraðslæknir Ó. Ó. Lárusson og Páll Bjarnason skólastjóri.

Umræðuefni: hvort þá og hvenær skuli loka skólum hjer vegna yfirvofandi influenslufaraldurs. Samþykkt var að leggja það til við sóttvarnarnefndina að barnaskóli Vestmannaeyja og aðdventista og gagnfræðaskólanum sje lokað undir eins og influensunnar verður áreiðanlega vart og ekki síðar en um næstu helgi.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.


Árni Filippusson Kr. Linnet ÓL. Ó. Lárusson

Sigurjón Árnason P. V. G. Kolka Páll Bjarnason
















Ár 1931, mánudaginn 20. apríl k. 8 ½ e. h. var fundur haldinn í skólanefnd Vestmannaeyja í Ásgarði.

 Mættir voru nefndarmennirnir Árni Filippusson, síra Sigurjón Árnason og P. V. G. Kolka.  Auk þess skólastjórarnir Páll Bjarnason og Þorsteinn Þ. Víglundsson.

Fyrir tekið: 1. Að skipa prófdómendur við vorpróf í barnaskólanum. Þessir voru ákveðnir: Síra Sigurjón Árnason, Jóh. G. Ólafsson bæjarstjóri, Anna Eiríksdóttir á Vegmótum, Sveinbjörn Gíslason byggingafulltrúi. 2. Að skipa prófdómendur í handavinnu og teikningu við gagnfræðaskólann. Ákveðnir voru: Anna Konráðsdóttir og Katrín Gunnarsdóttir.


Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson Sigurjón Árnason

Páll V. G. Kolka Þorst. Þ. Víglundsson Páll Bjarnason
















Ár 1931, mánudaginn 8. júní kl 8 ½ e. h. var fundur haldinn í skólanefnd Vestmannaeyja í Ásgarði.

 Mættir voru nefndarmennirnir Árni Filippusson, P. V. G. Kolka, Jóhann P. Jósefsson, sjera Sigurjón Árnason, Kr. Linnet.

Fyrir fundinum lá: 1. Lagðar fram skólaskýrslur barnaskólanna og gagnfræðaskólans svo og um iðnaðarnámskeið. 2. Um skólastjórastöðu við gagnfræðaskólann og ráðning fasts kennara við hann. Samþykkt að auglýsa skólastjórastöðuna en eð fresta því að svo stöddu að sækjast eftir föstum kennara. Umsóknarfrestur sje til 15. ágúst þ. á. 3. Skólanefnd gerir það að tillögu sinni við bæjarstjórn að ekkja Eiríks Hjálmarssonar sáluga verði greidd eftirlaun hans yfirstandandi ársfjórðung.

Fleira var ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Sigurjón Árnason Árni Filippusson Kr. Linnet

Jóhann Þ. Jósefsson P. V. G. Kolka














Ár 1931, fimmtudaginn 9. júlí kl. 20.00 var fundur haldinn í skólanefnd Vestmannaeyja í Ásgarði. Mættir voru nefndarmannirnir Árni Filippusson, Jóh. Þ. Jósefsson, Sigurjón Árnason og Kr. Linnet. Á fundinn kom Páll Bjarnason skólastjori.

  Árni Filippusson skýrði frá því að fundur þessi væri boðaður að tilhlutan J. G. Ólafssyni bæjarstjóra og Ásgeirs Ásgeirssonar fræðslumálastjóra tl þess að nefndin ljeti uppi álit sitt um það hvort ráðlegt þætti að kaupa húseignina „Breiðablik“ hjer vegna gagnfræðaskólahalds.

Nefndin fól formanni sínum að afla sem ítarlegastra upplýsinga um mál þetta xxxxxx, hvort og þá hve miklar umbætur kunni að þurfa og annað þ. h.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Kr. Linnet Árni Filippusson

Jóhann Þ. Jósefsson Sigurjón Árnason

















Ár 1931, laugardaginn 5. sept. kl. 9 e. h. var fundur haldinn í skólanefnd Vestmannaeyja í Ásgarði. Mættir voru nefndarmennirnir Árni Filippusson, Sigurjón Árnason, Jóhann Þ. Jósefsson, P. V. G. Kolka og Kr. Linnet. Fyrir tekið: 1. Veiting á skólastjórastöðunni við Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja. Þessir höfðu sótt um stöðuna: Síra Helgi Konráðsson á Bíldudal, cand. theol. Óskar J. Þorláksson, Hofi hjer í bæ, cand. mag. Þórhallur Þorgilsson, Reykjavík, og settur skólastjóri Þorsteinn Þ. Víglundsson.

  Nefndin samþykkti með 4 atkv. gegn 1 að mæla með því að veita cand. theol. Óskari Þorlákssyni stöðuna.  Einn nefndarmaðurinn mælir með Þorsteini Víglundssyni.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson P. V. G. Kolka

Sigurjón Árnason Jóhann Þ. Jósefsson Kr. Linnet