Barnaskólinn í Vestmannaeyjum 1880-1930/Barnaskólinn/Gjörðabók/Gjörðabók fyrir skólanefndina í Vestmannaeyja skólahéraði 1909-1932 texti bls. 131-140

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. nóvember 2017 kl. 17:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. nóvember 2017 kl. 17:36 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Bls. 131


Árið 1928, föstudaginn 6. janúar var fundur haldinn að Ásgarði að loknum þeim fundi sem fyrr getur. Á fundinum voru mættir allir skólanefndarmennirnir og auk þeirra skólastjóri Páll Bjarnason.
Var þar og þá tekið fyrir:
1. Lögð voru fram og lesin upp tvö bréf dags. 20. sept. og 5. okt f. á., frá þeim Viggó Björnssyni og Páli Kolka, þar sem þeir fara fram á það, að þeim verði veitt undanþága frá því að láta börn á skólaskyldualdri ganga í skólann á yfirstandandi vetri. Fundarmenn samþykktu undanþágubeiðnirnar með þeim lögboðnu skilyrðum, að börn þessi tvö: Gísli Gíslason í Tungu og Guðmundur Kolka mæti við hið opinbera próf skólans.
2. Lesið upp og lagt fram bréf dags. 31. okt. f. á. frá tannlækni Leifi Sigfússyni, um meðferð á tönnum barna og varnir til að komast hjá tannskemmdum í kennsluformi. Eftir nokkrar umræður kom fram svohljóðandi tillaga sem var samþykkt:
Að tannlæknirinn tækist á þessu ári fram rannsókn og ráðlegging við tannskemmdum, sem jafnframt veitti börnunum stutta fræðslu um meðferð tanna, og að honum væri greiddar 5 kr. fyrir kennslustund hverja sem tannlæknirinn vinnur að þessu í skólanum.
3. Lesið upp og lagt fram bréf, dags. 22. des. f. á. frá nokkrum nemendum (9) Unglingaskóla Vestmannaeyja, um að unglingaskólinn verði framlengdur um 1 mánuð eða til marz-loka þ. á. Nefndin var sammála um að verða við ósk nemendanna um framlenging skólans um einn mánuð, án aukins skólagjalds.
4. Þá minntist bæjarstjóri á það, að í ráði væri að fullgera leikfimishúsið við barnaskólann á komanda sumri, og mundi þá verða ráðist í það um leið, að byggja ofan á álmu þá austan við skólann, sem ætluð væri til leikfimishúss.

Bls. 132


Lagði hann til að þá yrði jafnframt gert þar ráð fyrir húsnæði fyrir bókasafn bæjarins í væntanlegri yfirbyggingu ef húsrúm þar leyfði.
5. Skólastjóri fór fram á það, að hann fengi leigufrían bústað eða herbergi það í skólanum uppi, sem hann hefði til afnota þar fyrir tengdamóður sína, og sem hann hefði greitt 15 krónur í húsaleigu fyrir mánaðarlega undanfarið. Nefndin var sammála um að verða við þessum tilmælum skólastjóra.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson, Kristinn Ólafsson, J. A. Gíslason

Sigurjón Árnason, Hallgr. Jónasson, Páll Bjarnason

---


Árið 1928, miðvikudaginn 4. apríl, kl. 4 e.h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði.
Af nefndarmönnum voru mættir formaður Árni Filippusson, Hallgrímur Jónasson, Jes A. Gíslason, en fjarverandi voru þeir bæjarstjóri Kristinn Ólafsson og séra Sigurjón Árnason. Viðstaddur á fundinum var skólastjóri Páll Bjarnason.
Fundarefnið:
Að ræða um fyrirhugaða vatnsleiðslu frá skólahúsinu til Sjúkrahúss Vestmannaeyja.
Eftir nokkrar umræður varð nefndin sammála um það, að ekki geti komið til mála að svipta barnaskólanum vatni því, sem honum sé nauðsynlegt til notkunar, en hinsvegar getur nefndin fallist á það, að meðan ekki sé fært að iðka leikfimi eða taka böð í skólanum, geti komið til álita, að miðla af vatni því, sem safnast kynni í brunni þeim, sem gerður hefur verið undir leikfimishússbyggingu þeirri, sem nú er í smíðum.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson, J. A. Gíslason

Hallgr. Jónasson, Páll Bjarnason

Bls. 133


Árið 1928, fimmtudaginn 21. júní var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði.
Af nefndarmönnum voru mættir: formaður Árni Filippusson, séra Sigurjón Árnason, Hallgrímur kennari Jónasson og Jes A. Gíslason.
Auk þeirra mættu á fundinum: skólastjóri Páll Bjarnason og trésmiður Magnús Ísleifsson.
Var þar og þá tekið fyrir:
Lagðar fram teikningar af leikfimishúsi barnaskólans og væntanlegri skólaviðbótarbyggingu til athugunar. Þar eð bæjarstjóri Kristinn Ólafsson mætti ekki á fundinum, var Magnúsi Ísleifssyni afhentar teikningarnar og honum í samráði við bæjarstjóra falið að taka nauðsynlegar ákvarðanir í samræmi við athuganir nefndarinnar við hinar framlögðu teikningar, og skyldi síðan bæjarstjóri, sem ætlaði til Reykjavíkur með fyrstu ferð héðan, bera sig saman við húsameistara ríkisins, um hin ýmsu atriði byggingum þessum við skólann viðkomandi.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson, Sigurjón Árnason, J. A. Gíslason

Páll Bjarnason, Magnús Ísleifsson, Hallgr. Jónasson

---


Árið 1928, fimmtudaginn 5. júlí kl. 5 e.h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Allir nefndarmennirnir mættu á fundinum og auk þeir skólastjórarnir Páll Bjarnason og Þorsteinn Víglundsson.
Var þar og þá tekið fyrir:
Lagt fram bréf dags. 24. maí þ.á. frá fræðslumálastjóra, um að ráðuneytið, hefði með bréfi dags. s.d. skipað Árna Filippusson formann skólanefndarinnar í Vestmannaeyjum.
Lagðar fram, athugaðar og undirskrifaðar prófskýrslur og kennsluskýrslur barnaskólans fyrir síðastliðið skólaár 1927/28.

Bls. 134


Lagðar fram, athugaðar og undirskrifaðar kennslu- og prófskýrsla Unglingaskóla Vestmannaeyja fyrir síðastliðið skólaár 1927/28.
Skýrslurnar báru með sér, að nemafjöldinn var 22, en af þeim tók 19 próf. Námstími 25 vikur hjá þeim, sem lengst sóttu skólann. Kennarar 3.
Ennfremur lagði formaður skólanefndarinnar fram reikning barnaskólans í Vestmannaeyjum ásamt fylgiskjölum fyrir árið 1927.
Var því næst snúið sér að því að semja við Þorstein kennara Víglundsson um framhaldskennslu við Unglingaskóla Vestmannaeyja.
Eftir nokkrar umræður varð að samkomulagi milli skólanefndarinnar og kennara Þorsteins Víglundssonar, að Þorsteinn er ráðinn kennari fyrir Unglingaskóla Vestmannaeyja fyrir næsta skólaár 1928/29 með byrjunarlaunum barnaskólakennara í bæjum, og að kennslutíminn sé miðaður við 6 mánuði.
Fleira tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson, Hallgr. Jónasson, J. A. Gíslason, Kristinn Ólafsson

Sigurjón Árnason, Páll Bjarnason, Þorsteinn. Þ. Víglundsson

---


Árið 1928, mánudaginn 10 september kl 5:30 e.h. var skólanefndarfundur settur og haldinn að Ásgarði.
Af nefndarmönnum voru mættir: Árni Filippusson, séra Sigurjón Árnason, Hallgrímur Jónasson, Jes A. Gíslason og bæjarstjóri Kristinn Ólafsson.
Auk nefndarmanna var mættur á fundinum skólastjóri Páll Bjarnason.
Var þar og þá tekið fyrir:
Rætt var um niðurfærslu skólaskyldualdurs úr 10 árum niður í 8 ár. Með því að það upplýstist á fundinum, að hin nýja viðaukabygging skólahússins, sem nú er unnið að, yrði ekki fullgerð eða nothæf fyrr en eftir áramót 1928/29, þá áleit skólanefndin þýðingarlaust að þessu sinni, að taka nokkra ákvörðun um niðurfærslu skólaskyldualdursins.

Bls. 135


Þá var rætt um að hve miklu leyti hægt mundi að taka börn í skólann, sem væru innan skólaskyldualdurs, en óskuðu að fá inntöku í skólann. Skólanefndin áleit sjálfsagt að taka við eins mörgum börnum innan skólaskyldualdurs, sem hægt væri, og skyldi í því vali þau börn verða látin ganga fyrir, sem væru frá þeim heimilum, sem sökum efnaskorts, gætu ekki greitt kennslukaup. En kennslukaupið fyrir þau börn, sem hér um ræðir ákvað skólanefnd hið sama og í fyrra eða 20 krónur fyrir allan tímann.
Þá var rætt um starfsfólk við skólann til ræstingar og annað þess háttar í komandi skólaári, og var formanni skólanefndar falið að ráða það starfsfólk og skyldi að minnsta kosti bætt við einni ræstingarkonu, sem hafa skyldi á hendi ræstingu í viðbótarbyggingunni.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson, Sigurjón Árnason, Jes A. Gíslason

Hallgr. Jónasson, Kristinn Ólafsson, Páll Bjarnason

---


Árið 1928, föstud. 28 sept. kl. 5 e.h. var skólanefndarfundur settur og haldinn í Ásgarði.
Allir skólanefndarmennirnir mættu á fundinum.
Auk skólanefndarmannanna mættu á fundinum þeir Páll Bjarnason skólastjóri barnaskólans og skólastjóri unglingaskólans Þorsteinn Víglundsson.
Var þar og þá tekið fyrir:
Lagðar voru fram beiðnir um undanþágu frá skólagöngu frá eftirtöldum fyrir eftirgreind börn 10 ára að aldri, Sigurjóni Högnasyni fyrir Garðar, son hans, 10 ára 22. okt. þ.á., Viggo Björnssyni, fyrir Gísla Gíslason stjúpson hans, 10 ára, Páli Kolka, fyrir Guðmund son hans, 11 ára í haust, Nikulási Illugasyni fyrir Gísla Magnús Guðmundsson, fósturson hans 11 ára.

Bls. 136


Þrjú þau fyrrnefndu eiga að njóta kennslu ungfrúar Önnu Konráðsdóttur, en sá síðasttaldi nýtur kennslu hjá Guðlaugu í Fögruvöllum.
Ennfremur sækir ekkjan Valgerður Sigurðardóttir í Miðey um það, að sonur hennar Egill Símonarson, sem verður 13 ára að aldri í næstkomandi októbermánuði, fái undanþágu frá því að ganga í barnaskólann, en verði leyft að ganga í unglingaskóla bæjarins.
Skólanefndin samþykkti að veita fjórum hinum fyrstnefndu undanþágu frá því að ganga í barnaskóla bæjarins á komandi skólaári, að því tilskyldu að börn þau, sem þar um ræðir, komi til vorprófs í skólanum í lok skólaársins.
Ennfremur kom nefndin sér saman um, að fengnu áliti viðstaddra skólakennara, að veita Valgerði Sigurðardóttur undanþágu þá, sem hún hefur sótt um fyrir son hennar Egil Símonarson. Þó tekur nefndin það fram, að gætilega verði að fara í því að veita slíkar undanþágur, með því að undanfarin reynsla í þeim efnum hefði gefist illa.
Þá lagði skólastjóri fram stundaskrá fyrir komandi skólaár. En gat þess jafnframt, að stundaskránni yrði að breyta, þegar byrjað yrði á leikfimiskennslu í skólanum, sem að líkindum yrði ekki fyrr en um áramót. Nefndin samþykkti hina framlögðu bráðabirgðastundaskrá.
Í sambandi við tannlækningar í skólanum var nefndin því meðmælt, að veitt væri einhver fjárupphæð til þess að kenna börnunum daglega hirðingu tannanna, og skyldi leiðbeining í þeim efnum fengin hjá tannlækni bæjarins og fyrir daglegar fortölur og aðhald kennaranna.
Hvað handavinnu í barnaskólanum viðkom, var nefndin sammála um það, að hún færi fram í líku sniði og síðastliðið skólaár, þó skyldu börnin ekki vinna í eins stórum flokkum og þá var gert, og skyldi því taka nauðsynlega hjálp aukalega við þá kennslu. Í unglingaskólanum skyldi varið 6 tímum á viku til handavinnu, þar af 2 tímar til netabætingar.

Bls. 137


Skólanefndarmaður Kristinn Ólafsson bæjarstjóri lagði það til, að kennararnir brýndu fyrir börnunum að fylgja rækilega settum umferðarreglum hér í bænum, og gæfu þeim leiðbeiningar þar að lútandi. Nefndin samþykkti þessa tillögu og vænti þess að kennarar skólans brýndu þessar reglur rækilega fyrir nemendunum.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson, Sigurjón Árnason, J. A. Gíslason

Þorsteinn Þ. Víglundsson, Hallgr. Jónasson, Páll Bjarnason, Kristinn Ólafsson

---


Árið 1928, mánud. 22. október kl. 5 e.h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði.
Á fundi þessum mættu allir skólanefndarmennirnir og auk þeirra skólastjóri Páll Bjarnason.
Var þar og þá tekið fyrir:
Lagðar voru fram beiðnir um undanþágu frá skólagöngu frá eftirtöldum fyrir eftirgreind börn á skólaskyldualdri:
Þorbjörn Arnbjörnsson sækir um undanþágu frá skólagöngu fyrir tvær dætur sínar: Elísabet og Sóley.
Stefán Vilhjálmsson sækir um undanþágu fyrir dóttur sína Sigurleif að nafni.
Sveinfríður Á. Guðmundsdóttir sækir um undanþágu fyrir Sigurveigu M. Gunnarsdóttur, 10 ára að aldri.
Stefán Erlendsson sækir um undanþágu fyrir son sinn Inga G. 10 ára að aldri.
Þorvarður Valdimar Jónsson í Búrfelli sækir um undanþágu fyrir dóttur sína Svöfu, 10 ára að aldri.
Guðmundur Jónsson Heiðarbæ sækir um undanþágu fyrir Ásþór son sinn, 10 ára að aldri.
Sveinbjörn Einarsson sækir um undanþágu fyrir dóttur sína Fanney, 10 ára að aldri.
Kristján Þórðarson, Reykjadal sækir um undanþágu fyrir son sinn, Jóhann að nafni.
Allir þessir umsækjendur ætla sér að nota sem kennara fyrir börn þau sem hér um ræðir, barnakennara Sigfús Hallgrímsson, sem ætlar að hafa á hendi hér í bæ í vetur barnakennslu innan safnaðar Sunnudags Aðventista (S.D.A.).

Bls. 138


Þær upplýsingar fengust á fundinum, að kennari þessi hafi fengið menntun á Eiðaskóla, og ennfremur að ætlast væri til að kennslan færi fram í samkomuhúsi Aðventista hér í bæ.
Skólanefndin var sammála um að veita fyrrnefndar undanþágur með því skilyrði, að kennarinn sýni prófskírteini ásamt tilskyldum vottorðum frá héraðslækni og lögreglustjóra bæjarins.
Þá bar skólastjóri fram tillögu um það, að haldið væri almennt lestrarpróf hér í bæ, sem allra fyrst, fyrir börn 8 og 9 ára að aldri. Skólanefndin samþykkti tillögu þessa og fól skólastjóra allan undirbúning og framkvæmd prófs þessa.
Því næst tók nefndin til meðferðar kennslu þá í skólanum, sem Eiríkur Hjálmarsson, barnakennari, hefur haft með höndum, en sem hann sökum heilsubrests, er orðinn, að því er virðist, óhæfur að starfrækja. Í sambandi við mál þetta kom fram svolátandi tillaga, sem nefndarmenn samþykktu í einu hljóði:
Þar sem Eiríkur Hjálmarsson kennari hefur fengist við kennslu hér í bænum yfir 30 ár, en er nú þrotinn að heilsu og þolir ekki lengur að annast kennslustörf sín við barnaskólann, þá leggur skólanefnd það til, að honum verði veittur álitlegur styrkur úr bæjarsjóði, allt að 2000 krónum ef hann segir nú þegar lausu kennslustarfi sínu við skólann.
Skólanefndarmanni Kristni Ólafssyni bæjarstjóra var falið af nefndinni, að koma tillögu þessari á framfæri við bæjarstjórnina.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson, J. A. Gíslason

Sigurjón Árnason, Hallgr. Jónasson

Bls. 139


Árið 1929 fimmtud. 14. mars kl 4 e.h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Af skólanefndarmönnum voru allir viðstaddir nema hinn nýkomni skólanefndarmaður Jóhann Þ. Jósefsson, alþingismaður, sem var í Reykjavík á alþingi. Auk þess mætti á fundinum skólastjóri Páll Bjarnason.
Var þar og þá tekið fyrir:
Tilefni fundarins var bréf frá fræðslumálastjóra, dags. 18. janúar þ.á., sem tilkynnir það, að ákveðið sé að láta framfara um land allt sameiginleg skrifleg próf fyrir börn á skólaskyldualdri, 10 - 14 ára, í skrift, stafsetningu og reikningi - og að ákveðið hafi verið „að prófið fari fram hinn 23. mars, laugardaginn fyrir Pálmasunnudag.“
Er í bréfi þessu skýrt frá tilhögun prófs þessa, og að skólanefndinni sé falið að sjá um prófið, samkv. heimild í lögum nr. 40, 15. júní 1926 um fræðslu barna. Prófað skal í skrift, stafsetningu og reikningi.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson, J. A. Gíslason

Sigurjón Árnason, Hallgr. Jónasson, Páll Bjarnason

---


Árið 1929, fimmtud. 4. apríl k. 4:30 e.h. var skólanefndarfundur haldinn að Ásgarði. Á fundinum mættu skólanefndarmennirnir Árni Filippusson, formaður nefndarinnar, Hallgrímur Jónasson, Jes A. Gíslason, séra Sigurjón Árnason. Fjarverandi var Jóhann Þ. Jósefsson alþingismaður.
Á fundinum var auk fyrrnefndra nefndarmanna mættur Páll Bjarnason, skólastjóri.
Var þar og þá tekið fyrir:

Bls. 140


að sækja um niðurfærslu skólaskylduraldurs úr 10 árum í 8 ár. Skólastjóri upplýsti að þessi breyting mundi auka tölu barnanna á næsta ári 1929/30 um 143 börn, en nú væru skólaskyld ca. 256 börn og yrði þá skólaskyld næsta ár, sem næst 400 börn. Ef tekinn yrði fastur handavinnukennari, þá leiddi af þessari breytingu, að biðja yrði um 3 kennara til viðbótar við kennara þá, sem fyrir eru.
Nefndin var sammála um það, að óhjákvæmilegt væri, eftir því sem á stendur í þessu skólahéraði, að fenginni undanfarandi reynslu, að hallast að breytingu þeirri, sem hér um ræðir, hvað niðurfærslu skólaskyldualdurs viðvíkur, þ.e. færa skólaskylduna niður um 2 ár úr 10 árum niður í 8 ár. Fól nefndin skólastjóra Páli Bjarnasyni, sem kvaðst mundi skreppa til Reykjavíkur bráðlega, að leita hófanna um breytingu þessa og annað í sambandi við hana t.d. kennarafjölgunina við fræðslumálastjóra, og formanni skólanefndarinnar fól nefndin að afgreiða síðan mál þetta, að afloknu vorprófi, til hlutaðeigandi stjórnarvalda.
Nefndin var sammála um það, að nauðsyn bæri til að auka handavinnukennsluna í skólanum og hallaðist helst að því að ráða fasta handavinnukennara við skólann, ef það yrði úr, að 3 viðbótarkennarar fengjust til skólans.
Hvað leikfimiskennslu í skólanum viðkemur, var nefndin sammála um það, nauðsyn bæri til að kenna öllum börnum skólans leikfimi, þeim er heilsu hefðu til þess, og var skólastjóra einnig falið að leita hófanna um þetta atriði og annað leikfiminni viðkomandi í Reykjavíkurförinni.
Nefndin minntist á notkun leikfimissals skólans, og hölluðust nefndarmenn eindregið að því, að nota leikfimissalinn ekki til annars en leikfimis- og líkamsiðkana nema þá ef stæði alveg sérstakleg á, t.d. ef svo bæri undir að safna þyrfti skólanum saman í eina heild. En hins vegar kæmi ekki til mála að lána salinn til almennra mannfunda eða dansleikja etc.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.

Árni Filippusson, J. A. Gíslason

Sigurjón Árnason, Hallgr. Jónasson, Páll Bjarnason