Baldur VE-24

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2012 kl. 18:45 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2012 kl. 18:45 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Baldur á leið til togveiða.
Feðgarnir Haraldur Hannesson og Hannes sonur hans.
Þórður Sveinsson frá Engidal og Karl G. Marteinsson

Vélbáturinn Baldur VE-155 var keyptur af Sigurði Oddssyni árið 1912 og var formaður á honum til ársins 1923. Runólfur Sigfússon tók við Baldri árið 1924. Báturinn var metinn ónýtur árið 1928.

Baldur VE-24, sem myndirnar eru af, var keyptur frá Danmörku 1939 af þeim Haraldi Hannessyni, sem var skipstjóri, Jónasi Jónssyni skrifstofumanni Tanganum og Rögnvaldi Jónssyni sjómanni. Haraldur var skipstjóri frá byrjun þar til Hannes sonur hans tók við og var með bátinn þar til hann fór í úreldingu.

Halldór Halldórsson var stýrimaður á Baldri VE 24 um 10 ára skeið.

Bátnum var fargað árið 1998.