Baldur Johnsen (læknir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2022 kl. 17:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2022 kl. 17:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Baldur Johnsen á Baldur Johnsen (læknir))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Baldur

Baldur Garðar Johnsen var héraðslæknir Vestmannaeyja frá 1951 til 1960. Baldur fæddist í Reykjavík þann 22. október 1910 og lést 7. febrúar 2006. Foreldrar hans voru Sigfús M. Johnsen, bæjarfógeti og Sigurveig Guðrún Sveinsdóttir trésmíðameistara í Reykjavík.

Baldur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1930 og síðar cand. med. frá Háskóla Íslands árið 1936. Hann stundaði framhaldsnám erlendis bæði í Englandi, Danmörku og víðar. Baldur var skipaður héraðslæknir árið 1938 í Reykjafjarðar- og Ögurhéraði, síðan Ísafjarðarhéraði árið 1942 og gegndi því þar til hann var skipaður héraðslæknir í Vestmannaeyjum árið 1951. Baldur var formaður Læknafélags Vestfjarða 1942 til 1943 og átti sæti í bæjarstjórn Ísafjarðar frá 1944 til 1950.

Hann gekkst fyrir stofnun Rotarýklúbbs Vestmannaeyja og var fyrsti forseti hans. Kona hans var Jóhanna Jóhannsdóttir söngkona og áttu þau fjögur börn.


Tenglar


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.