Bára Þorgeirsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. janúar 2018 kl. 15:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. janúar 2018 kl. 15:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Bára Þorgeirsdóttir''' frá Höfða fæddist þar 1. janúar 1927.<br> Foreldrar hennar voru Svanfríður Jónsdóttir frá V...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Bára Þorgeirsdóttir frá Höfða fæddist þar 1. janúar 1927.
Foreldrar hennar voru Svanfríður Jónsdóttir frá Vík á Flateyjardal í S-Þing, síðar húsfreyja á Litlu-Grund, f. 20. júlí 1904, d. 27. ágúst 1951, og Daníel Þorgeir Lúðvíksson sjómaður frá Eskifirði, f. 27. júlí 1900, síðar útgerðarmaður, smiður á Vopnafirði og á Akureyri, síðast í Reykjavík, d. 13. mars 1967.

Bára var með móður sinni í fyrstu, en síðan með henni og Valdimar Tómassyni á Litlu-Grund.
Þau Svanfríður og Valdimar skildu 1934 og Bára fylgdi móður sinni til Reykjavíkur. Þær mæðgur bjuggu þar saman.
Bára giftist Bandaríkjamanni og fluttist til Bandaríkjanna.

I. Maður Báru er Bruce Skarstad.
Þau eru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.