Aðalheiður Jónsdóttir (Hólnum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. september 2019 kl. 17:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. september 2019 kl. 17:53 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Aðalheiður Jónsdóttir frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, húsfreyja á Hólnum við Landagötu 18 fæddist 12. október 1873 á Arngeirsstöðum í Fljótshlíð og lést 24. ágúst 1933.
Foreldrar hennar voru Jón Erlendsson frá Heylæk í Fljótshlíð, bóndi, rennismiður, f. 19. júlí 1834, d. 18. mars 1898, og kona hans Margrét Árnadóttir frá Arngeirsstöðum, húsfreyja, f. 6. júní 1837, d. 28. júlí 1921.

Aðalheiður var með foreldrum sínum í æsku, á Arngeirsstöðum 1890.
Þau Ólafur giftu sig 1897, bjuggu á Vestri Torfastöðum.
Þau fluttust til Eyja 1925, leigðu í Ásbyrgi með fimm börn sín 1925, en fluttu í nýbyggt hús sitt við Landagötu 18, Hólinn 1927 og bjuggu þar síðan, en Aðalheiður lést 1933.

I. Maður Aðalheiðar, (1897), var Ólafur Sigurðsson frá Snotru í A-Landeyjum, bóndi, síðar verkamaður í Eyjum, f. 24. febrúar 1865, d. 30. janúar 1946.
Börn þeirra í Eyjum:
1. Jóhanna Ólafsdóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1895, d. 27. júlí 1984, kona Guðmundar Jónssonar skósmiðs.
2. Guðrún Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 10. september 1897, d. 2. janúar 1957, kona Carls Gränz málara- og trésmíðameistara.
3. Aðalheiður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 5. nóvember 1901, d. 28. desember 1990, kona Guðna Ólafssonar.
4. Óskar Ólafsson frá Hólnum við Landagötu, pípulagningamaður, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, maður Kristínar Jónsdóttur.
5. Jón Ólafsson sjómaður, verkamaður, síðar í Reykjavík, f. 1. apríl 1910, d. 7. nóvember 1937.
6. Ingólfur Ólafsson sjómaður, síðast í Görðum, f. 23. janúar 1914, d. 12. janúar 1941.
7. Guðmunda Ólafsdóttir vinnukona á Karlsbergi 1930, síðar húsfreyja í Hafnarfirði, f. 10. maí 1916, d. 17. júlí 1994.
8. Kjartan Ólafsson kennari, f. 3. ágúst 1917, d. 13. desember 1969. Kona hans var Sigríður Elísabet Bjarnadóttir húsfreyja.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.