Aðalbjörg J. D. Þorkelsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2021 kl. 10:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2021 kl. 10:43 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Aðalbjörg Jónína Dóróthea Þorkelsdóttir fæddist 5. janúar 1892 og lést 5. nóvember 1965.
Foreldrar hennar voru Þorkell Eiríksson sjómaður, f. 16. febrúar 1853 í Reykjavík, d. 18. apríl 1920 og kona hans Sigurveig Samsonardóttir húsfreyja, f. 26. mars 1854 í Svalbarðssókn í N-Þing., d. 7. ágúst 1930.

Systkini Aðalbjargar hér:
1. Kristmann Agnar Þorkelsson yfirfiskimatsmaður í Steinholti f. 23. júlí 1883 á Seyðisfirði, d. 22. janúar 1972.
2. Friðbjörn Þorkelsson sjómaður, f. 25. ágúst 1885 á Seyðisfirði, d. 4. maí 1957.
3. Eirikka Guðrún Þorkelsdóttir húsfreyja á Eskifirði, f. 14. júlí 1888 í Reykjavík, d. 3. desember 1970.
4. Dagmar Þorkelsdóttir húsfreyja á Seyðisfirði, síðast í Hafnarfirði, f. 25. september 1897 í Reykjavík, d. 22. febrúar 1983.

Aðalbjörg var í Sauðagerði C í Reykjavík 1901, fluttist með foreldrum sínum að Péturshúsi, (síðar Stafholt), 1905, var tökubarn í Klöpp 1906, vinnukona þar 1907, var hjá foreldrum sínum á Gjábakka 1908, vinnukona á Hallgilsstöðum í Sauðanessókn, N.-Þing. 1910, kom frá Sauðanesi þar 1919, var leigjandi á Fögruvöllum 1920.
Hún eignaðist barn með Guðlaugi Helga 1916.
Aðalbjörg fluttist til Hafnarfjarðar, lést 1965.

I. Barnsfaðir Aðalbjargar var Guðlaugur Helgi Vigfússon málari frá Svalbarði í Þistilfirði, f. 6. ágúst 1896, d. 7. júní 1952.
Barn þeirra:
1. Ragnheiður Emilía Guðlaugsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 20. nóvember 1916 á Þórshöfn á Langanesi, d. 9. apríl 1996.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.