Axel Hálfdán Magnússon

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Axel Hálfdán Magnússon.

Axel Hálfdán Magnússon sjómaður, símsmiður fæddist 28. maí 1914 í Langa-Hvammi og lést 8. janúar 2000.
Foreldrar hans voru Magnús Þórðarson kaupmaður, verkamaður f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955, og sambúðarkona hans Magnea Gísladóttir frá Björnskoti u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 7. júní 1893, d. 10. febrúar 1975.

Börn Magnúsar og Magneu Gísladóttur.
1. Hafsteinn Magnússon kyndari, f. 17. júní 1913, d. 30. desember 2002.
2. Axel Hálfdán Magnússon sjómaður, símsmiður, f. 28. maí 1914 í Langa-Hvammi, d. 8. janúar 2000.
3. Þorbjörn Ólafur Maríus Magnússon sjómaður, f. 19. september 1916 í Langa-Hvammi, d. í apríl 1943.

Börn Magnúsar og Margrétar Bjarnadóttur sambýliskonu hans:
4. Þórarinn Sigurður Thorlacius sjómaður, f. 27. nóvember 1906 í Langa-Hvammi, drukknaði 29. janúar 1940.
5. Magnús Sigurður Hlíðdal Magnússon sjómaður, f. 11. júlí 1910 í Langa-Hvammi, d. 13. maí 1995.
6. Anna Sigrid Magnúsdóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1913 í Langa-Hvammi, d. 20. apríl 1991.

Börn Magnúsar og Gíslínu:
7. Halldóra Guðleif Magnúsdóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1917 í Langa-Hvammi, d. 28. desember 2004.
8. Drengur, f. 15. janúar 1919 í Litla-Hvammi, lést nokkurra daga gamall.
9. Sigríður Gunnlaugsdóttir Magnúsdóttir húsfreyja, f. 4. maí 1921 í Langa-Hvammi, d. 30. ágúst 2013.
10. Ívar Magnússon verkstjóri, f. 3. október 1923 í Langa-Hvammi, d. 13. nóvember 2005.
11. Guðjón Gísli Magnússon sjómaður, f. 20. október 1924 í Litlakoti, d. 27. febrúar 2000.
12. Óskar Magnússon sjómaður, f. 15 ágúst 1927 á Miðhúsum, d. 7. janúar 1950.
13. Guðrún Lilja Magnúsdóttir ljósmóðir, f. 27. september 1928 á Miðhúsum, d. 11. ágúst 2012.
14. Magnús Magnússon bóndi, verkamaður, f. 10. febrúar 1930 á Miðhúsum, d. 3. janúar 2009.
15. Klara Magnúsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1931 á Miðhúsum, d. 6. desember 1987.
16. Þórður Magnússon bifreiðastjóri, verktaki, f. 11. apríl 1933 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 6. mars 2021.
17. Guðmundur Magnússon blikksmiður, f. 19. september 1934 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 4. janúar 2014.

Börn Þórðar Ívarssonar í Eyjum:
1. Þorkell Þórðarson í Sandprýði, f. 7. desember 1872 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 14.júlí 1945.
2. Magnús Þórðarson Thorlacius kaupmaður, bóndi, verkamaður á Skansinum, f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955.
3. Gísli Þórðarson verkamaður, f. 5. desember 1877 að Ormskoti í Fljótshlíð, síðast í Görðum, d. 7. nóvember 1943.
4. Guðrún Þórðardóttir verkakona, f. 31. ágúst 1882 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. mars 1878.
Barn Þórðar Ívarssonar og fyrri konu hans Sigríðar Nikulásdóttur, f. 8. mars 1838, d. 24. maí 1864 var
5. Ívar Þórðarson á Mið-Sámsstöðum í Fljótshlíð, bóndi, síðar í Eyjum, f. 3. september 1863, d. 10. apríl 1924.

Axel var með föður sínum og Magneu í Langa-Hvammi 1914, með föður sínum og bústýru hans þar 1915, ekki 1916, með föður sínum og Gíslínu í Langa-Hvammi 1917 og 1922, var 11 ára tökubarn á Núpi u. Eyjafjöllum hjá Magnúsi Andréssyni bónda og Guðrúnu Hafliðínu Hafliðadóttur húsfreyju 1925, léttadrengur þar 1929, vinnumaður þar 1930, fór þaðan 1931.
Axel var hjá föður sínum á Miðhúsum 1931, lausamaður á Miðhúsum 1932 og 1934, verkamaður á Eystri-Gjábakka 1940 og 1945.
Hann var um skeið útgerðarmaður í Eyjum, en frá 1945 vann hann hjá Landsíma Íslands, var símsmiður og línumaður til 1982.
Axel dvaldi síðast á Elli-og hjúkrunarheimilinu Grund og lést 8. janúar 2000. Hann var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.