Austurbúðin

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 09:41 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 09:41 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Austurbúðin
Dúdda og Imba með Austurbúðina fyrir aftan.

Húsið Austurbúðin stóð við Strandveg 6. Það var reist árið 1880 úr höggnu móbergi undir Heimaklett og stóð austan við Hraðfrystistöðina. Lengi vel var nafn danska kaupmannsins, J.P.T. Bryde, sem var letrað stórum stöfum á gafl hússins, hið fyrsta sem blasti við þegar siglt var inn höfnina. Verslun Brydes, Brydebúð, var í húsinu.Síðar var í húsinu Netagerð Vestmannaeyja og skrifstofuhúsnæði e.h.

Húsið fór undir hraun í gosinu 1973.


Heimildir

  • Strandvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.