Auður Guðmundsdóttir (Hrafnagili)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. febrúar 2020 kl. 17:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. febrúar 2020 kl. 17:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Auður Guðmundsdóttir''' frá Hrafnagili, húsfreyja fæddist þar 27. janúar 1918 og lést 1. febrúar 2003.<br> Foreldrar hennar voru Guðmundur Ólafsson (Hrafnagili)|G...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Auður Guðmundsdóttir frá Hrafnagili, húsfreyja fæddist þar 27. janúar 1918 og lést 1. febrúar 2003.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Ólafsson frá Lágafelli í A-Landeyjum, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 21. febrúar 1883, d. 20. september 1965, og kona hans Soffía Þorkelsdóttir frá Brekkum í Hvolhreppi, Rang., f. 14. maí 1891, d. 20. janúar 1960.

Börn Soffíu og Guðmundar:
1. Steinunn Hulda Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 20. júní 1911 í Stakkagerði vestra, d. 9. janúar 2009.
2. Auður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 27. janúar 1918 á Hrafnagili, d. 1. febrúar 2003.

Auður var með foreldrum sínum í æsku og enn 1940.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1936.
Hún var lengi aðstoðarmaður á tannlæknisstofu.
Þau Lýður giftu sig 1941, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Fífilgötu 5, síðan á Fífilgötu 2 og lengst í kennarabústöðunum á Heiðarvegi 59.
Lýður lést 2002 og Auður 2003.

Maður Auðar, (1. júní 1941), var Lýður Brynjólfsson frá Ytri-Ey í Vindhælishreppi, A-Hún, skólastjóri, kennari, húsasmiður, f. 25. október 1913, d. 12. mars 2002.
Börn þeirra:
1. Ásgeir Guðmundur Lýðsson lögreglumaður í Eyjum, f. 27. desember 1942 á Fífilgötu 5. Kona hans Sólveig Bára Guðnadóttir.
2. Brynhildur Lýðsdóttir starfsmaður Flugleiða, f. 12. nóvember 1949 á Heiðarvegi 59, ógift, barnlaus.
3. Skúli Lýðsson byggingafræðingur, byggingafulltrúi á Akranesi, f. 9. nóvember 1951 á Heiðarvegi 59. Kona hans Áslaug Maríasdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.