Auðunn Oddsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 13:16 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 13:16 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Auðunn Jakob Oddsson, Sólheimum, fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri 24. september 1893 og lést 29. desember 1969. Auðunn flytur til Vestmannaeyja árið 1927 og gerist sjómaður á Mínervu. Hann byrjaði formennsku á Enok I en var síðar með Síðuhall, Nonna (sem Auðunn tapaði við árekstur suður af Eyjum), Valdimar og Guðrúnu. Eftir það hætti Auðunn formennsku en stundaði þó sjómennsku eftir það.

Synir Auðuns voru Gestur og Sigurjón.

Auðunn bjó síðustu ár sín á Hrafnistu í Reykjavík og lést 76 ára gamall.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.