Auðunn Oddsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. ágúst 2006 kl. 15:33 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. ágúst 2006 kl. 15:33 eftir Daniel (spjall | framlög) (dánardagur-hrafnista)
Fara í flakk Fara í leit

Auðunn Oddsson, Sólheimum, fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri 24. september 1893 og lést 29. desember 1969. Auðunn flytur til Vestmannaeyja árið 1927 og gerist sjómaður á Mínervu. Hann byrjaði formennsku á Enok I en var síðar með Síðuhall, Nonna (sem Auðunn tapaði við árekstur suður af Eyjum), Valdimar og Guðrúnu. Eftir það hætti Auðunn formennsku en stundaði þó sjómennsku eftir það.

Auðunn bjó síðustu ár sín á Hrafnistu í Reykjavík og lést 76 ára gamall.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.