Auðunn Oddsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:42 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:42 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Auðunn Oddsson, Sólheimum, fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri 24. september 1893. Auðunn flytur til Vestmannaeyja árið 1927 og gerist sjómaður á Mínervu. Hann byrjaði formennsku á Enok I en var síðar með Síðuhall, Nonna (sem Auðunn tapaði við árekstur suður af Eyjum), Valdimar og Guðrúnu. Eftir það hætti Auðunn formennsku en stundaði þó sjómennsku eftir það.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.