„Atli Heiðar Þórsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Atli Heiðar Þórsson. '''Atli Heiðar Þórsson''' viðskiptafræðingur, starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar fæddist 12. nóvember...)
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 12. september 2019 kl. 17:53

Atli Heiðar Þórsson.

Atli Heiðar Þórsson viðskiptafræðingur, starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar fæddist 12. nóvember 1959 á Selfossi og lést 27. febrúar 2018.
Foreldrar hans voru Guðjóna Þórdís Guðnadóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 30. nóvember 1930, d. 23. maí 2006, og maður hennar Guðfinnur Þór Pálsson frá Ósgerði í Ölfusi, verkstjóri, bifreiðastjóri, matsveinn, afgreiðslustjóri, f. 15. ágúst 1934 að Hæðargarði í Landbroti, d. 4. janúar 2017.

Börn Þórs og Guðjónu:
1. Atli Heiðar Þórsson viðskiptafræðingur, starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar, f. 12. nóvember 1959, d. 27. febrúar 2018.
2. Árni Þórsson, ættleiddur sonur þeirra, býr í Kanada, f. 15. janúar 1966. Kona hans var Dagbjört Fjóla Almarsdóttir. Síðari kona Lilja Guðmundsdóttir.

Atli Þór var með foreldrum sínum í æsku, með þeim í Eyjum og fluttist með þeim í Kópavog 1970.
Hann lauk prófi í Verslunarskóla Íslands og prófi í viðskiptafræði í Háskóla Íslands.
Hann var starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar til dánardægurs.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.