Arnoddur Gunnlaugsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 16:23 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 16:23 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Arnoddur Gunnlaugsson fæddist 25. júní 1917 og lést 19. október 1995. Faðir hans hét Gunnlaugur Sigurðsson. Bræður Arnodds voru Aðalsteinn og Elías. Arnoddur bjó á Gjábakka við Bakkastíg 9 og síðar á Sólhlíð 7.

Arnoddur var formaður á mótorbátnum Suðurey.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Arnodd:

Gunnlaugs Addi garpur fær
gerir togið draga,
Suðurey þá sinni rær
sjafnar víða haga.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Arnodd ég orða þarna,
annar sá hafið kannar
stinnur á Suðurey sinni,
sanni með fiskinn spannar.
Kann sín við kvikur hranna
kaskur og sjó við naskur.
Stóran greini skipstjóra
sterkan og verinn merkan.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.