Arnleif Helgadóttir (Heiðardal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. september 2015 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. september 2015 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Arnleif Helgadóttir fæddist 29. janúar 1882 og lést 8. mars 1956. Hún var gift Guðmundi Sigurðssyni. Saman byggðu þau húsið Heiðardal.

Sagt er að Arnleif hafi verið glæsileg kona og mjög gáfuð. Bæjarbúar nutu krafta hennar, ekki síst þeir sem minna máttu sín efnalega. Arnleif var til dæmis í barnaverndarnefnd um árabil. Þar nutu fátæk og vanmáttug börn hennar umhyggju og skilnings.



Heimildir