Arnbjörg Hallvarðsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Arnbjörg Hallvarðsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 1786 á Snæbýli í Skaftártungu og lést 26. febrúar 1837.
Foreldrar hennar voru Hallvarður Halldórsson bóndi, f. 1735, og kona hans Arnbjörg Vigfúsdóttir, f. 1786.

Arnbjörg var föðursystir Kristínar Jónsdóttur húsfreyju á Steinsstöðum, ömmu Kristins Sigurðssonar á Löndum.

Arnbjörg var hjá foreldrum sínum á Snæbýli 1801, síðar vinnukona á Herjólfsstöðum í Álftaveri til 1819, á Snæbýli 1823-1825, í Eystri-Ásum 1825-1827. Þá fór hún í Álftaver og þaðan í Eyjar.
Arnbjörg giftist á fimmtugs aldri og eignaðist ekki börn. Hún lést 1837.

Maður hennar, (11. júlí 1829), var Jón Sveinsson sjómaður á Kirkjubæ, f. 1799, d. 29. október 1847. Hún var fyrri kona hans.
Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.