Arnardrangur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2007 kl. 11:01 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2007 kl. 11:01 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Arnardrangur, aðsetur Rauða Krossins.

Húsið Arnardrangur var byggt árið 1928 og stendur við Hilmisgötu 11. Upphaflega var það hús Ólafs Ó. Lárussonar læknis og seinna var það heilsuverndarstöð. Heilsuverndarstöð hafði verið starfrækt í öðru húsnæði en árið 1954 keypti Vestmannaeyjabær Arnardrang og gerði að heilsuverndarstöð. Starfaði heilsuverndarstöðin í húsinu frá miðju ári 1955 til 30. maí 1971, þegar hún var flutt í nýja sjúkrahúsið.


Mikil starfsemi hefur verið í húsinu í gegnum árin. Tónlistarskóli Vestmannaeyja var í skólanum um árabil áður en hann flutti í húsnæði Listaskóla Vestmannaeyja við Vesturveg og þar var einnig æfingaaðstaða Lúðrasveitar Vestmannaeyja. Þá voru A.A. samtökin með aðstöðu á jarðhæð hússins áður en þau fengu aðstöðu í núverandi húsnæði að Heimagötu 24.

Í Arnardrangi fer fram starfsemi Rauða Krossins og Lions-klúbbsins. Rauði Krossinn er með ýmiss konar námskeið ásamt venjulegu hjálpar- og aðstoðarstarfi. Þessi félög hafa staðið að miklum breytingum og endurnýjunum og er húsið orðið allt hið myndarlegasta. Gamli stíllinn fær þó að njóta sín þrátt fyrir miklar endurbætur.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. I. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1982.