Arnardrangur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 14:32 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 14:32 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Arnardrangur, aðsetur Rauða Krossins.

Húsið Arnardrangur var byggt árið 1928 og stendur við Hilmisgötu 11. Upphaflega var það hús Ólafs Ó. Lárussonar læknis og seinna var það heilsuverndarstöð. Heilsuverndarstöð hafði verið starfrækt í öðru húsnæði en árið 1954 keypti Vestmannaeyjabær Arnardrang og gerði að heilsuverndarstöðinni. Starfaði heilsuverndarstöðin í húsinu frá miðju ári 1955 til 30. maí 1971, þegar hún var flutt í nýja sjúkrahúsið.


Mikil starfsemi hefur verið í húsinu í gegnum árin. Tónlistarskóli Vestmannaeyja var í skólanum um árabil áður en hann flutti í húsnæði Listaskóla Vestmannaeyja við Vesturveg.

Í Arnardrangi fer fram starfsemi Rauða Krossins og Lions-klúbbsins. Rauði Krossinn er með ýmiss konar námskeið ásamt venjulegu hjálpar- og aðstoðarstarfi. Þessi félög hafa staðið að miklum breytingum og endurnýjunum og er húsið orðið allt hið myndarlegasta. Gamli stíllinn fær þó að njóta sín þrátt fyrir miklar endurbætur.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. I. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1982.