Arnar Sigurmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. mars 2016 kl. 15:04 eftir Gauti (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. mars 2016 kl. 15:04 eftir Gauti (spjall | framlög) (Taflfélagið 2015)
Fara í flakk Fara í leit

Arnar Sigurmundsson fæddist 19. nóvember 1943 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Sigurmundur Runólfsson og Ísey Skaftadóttir.

Arnar lauk gagnfræðaprófi árið 1960. Hann hefur meðal annars starfað sem framkvæmdarstjóri Viðlagasjóðs og sem framkvæmdarstjóri Samfrosts. Arnar hefur einnig tekið mikinn þátt í félagsstarfi í gegnum tíðina, sat í stjórn Eyverja frá 1964-1977 og hefur fjórum sinnum verið Skákmeistari Vestmannaeyja (1964, 69, 70 og 1979) og var formaður Taflfélagsins á árunum 1962-1965 og fimm áratugum síðar, eða haustið 2015 tók hann aftur við formennsku í félaginu. Arnar hefur verið aðal- og varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Vestmannaeyjum frá árinu 1978. Hann hefur einnig starfað með fjölda nefnda og ráða á vegum bæjarins í gegnum tíðina og er formaður framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.

enn að.