Arnar Andersen (Stapa)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. janúar 2018 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. janúar 2018 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Arnar Semingur Andersen frá Stapa, sjómaður, bifreiðaeftirlitsmaður, gangavörður fæddist 12. október 1935 á Litlu-Eyri og lést 24. nóvember 2017.
Móðir hans var Jóna Ingibjörg Magnúsdóttir talsímakona, f. 19. september 1916, d. 20. október 1938, og barnsfaðir hennar Svend Ove Andersen frá Friðrikssundi í Danmörku, körfu-og skipasmiður.

Hálfbróðir Arnars, samfeðra, er
1. Erling Andersen sjómaður, bifreiðastjóri, módelsmiður í Hafnarfirði.
Föðurbræður Arnars voru:
2. Pétur Andersen formaður og útgerðarmaður, ættfaðir Andersenættarinnar í Eyjum.
3. Jens Andersen skipasmiður, skipstjóri.
Bræðrungar Arnars, synir Jens voru:
4. Torfi Alexander Andersen sjómaður.
5. Adolf Andersen bóndi, smiður.
Bræðrungur Arnars, dætur Jens, voru:
6. Jenný Andersen húsfreyja.
7. Elna Andersen.

Arnar missti móður sína, er hann var þriggja ára. Hann ólst upp hjá móðurmóður sinni Guðbjörgu Guðmundsdóttur húsfreyju á Stapa, og manni hennar Guðmundi Jónssyni og fluttist með þeim úr Eyjum.
Hann stundaði sjómennsku, varð síðar bifreiðaeftirlitsmaður, en endaði starfsferil sinn sem gangavörður í skóla.

I. Kona Arnars, (23. maí 1959, skildu), var Jóna Guðrún Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 25. apríl 1936. Foreldrar hennar voru Þórarinn Jónsson verkamaður í Reykjavík, f. 8. janúar 1913, d. 23. apríl 1986, og Guðríður Konráðsdóttir, f. 28. maí 1914, d. í nóvember 2005.
Börn þeirra voru:
1. Hallur Arnarsson, f. 8. nóvember 1959. Kona hans er Jóhanna Reynisdóttir.
2. Magnús Arnarsson, f. 29. desember 1964. Kona hans er Unnur Ágústsdóttir.

II. Síðari kona Arnars, (9. apríl 1982), er Borghildur Þorgeirsdóttir húsfreyja, f. 9. apríl 1947. Foreldrar hennar voru Þorgeir Hafsteinn Jónsson vélvirkjameistari, verkstjóri, f. 27. mars 1923, d. 10. nóvember 2008, og Sigríður Margrét Einarsdóttir húsfreyja frá Stóra-Hvammi, f. 20. janúar 1923, d. 9. febrúar 2003.
Börn þeirra eru:
3. Hildur Ýr Arnarsdóttir húsfreyja, danskennari, f. 23. október 1972. Maður hennar er Örn Arnarson iðnrekstrarfræðingur.
4. Arna Björg Arnarsdóttir, f. 9. janúar 1983.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
  • Borghildur Þorgeirsdóttir.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 14. febrúar 2003.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.